Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.12.2013, Síða 32

Fréttatíminn - 13.12.2013, Síða 32
Verðmætt veganesti Framtíðarreikningur Íslandsbanka er verðmæt gjöf sem vex með barn inu. Hann er bundinn þar til barnið verður 18 ára og ber hæstu vexti almennra verðtryggðra inn lánsreikninga bankans hverju sinni. Með því að stofna Framtíðarreikning í nafni barns safna ástvinir fyrir það í sjóð sem getur seinna meir orðið ómetanlegt veganesti út í lífið. Þú finnur sérfræðinga í sparnaði í þínu útibúi.Framtíðarreikningur vex með barninu Öllum nýjum Framtíðarreikningum og innlögnum yfir 3.000 kr. fylgir falleg peysa.* Jólakaupauki! * Meðan birgðir endast. Við bjóðum góða þjónustu islandsbanki.is | Sími 440 4000 stöð er að fara að sýna þættina sem er mjög gaman. Þetta er stöð fyrir sænskumælandi Finna sem er skondið því ég er Svíi en tala íslensku í þáttunum. Mér finnst þetta bara virkilega spennandi og hvetur mig áfram.“ Lúsíumessa í dag Fjölskylda Yesmine skiptist á að eyða jól- unum á Íslandi og í Svíþjóð. „Við erum hér annað hvert ár. Þá er hangikjötsveisla í sveitinni með tengdaforeldrunum. Síðasta aðfangadag vorum við bara heima hjá okkur og borðuðum kalkún og fórum svo til þeirra daginn eftir. Önnur hver jól erum við síðan í Svíþjóð og þá eldar pabbi mest af matnum. Mér finnst gott að vera hjá pabba og við erum náin. Mamma dó árið 2007 þegar dóttir mín var bara þriggja mánaða.“ Yesmine vill ekki fara nánar út í það. „En fjöl- skylda mömmu er mjög stór og við hittumst alltaf þegar ég fer til Svíþjóðar. Pabbi minn kemur líka oft hingað um jólin þegar við erum hér og jafn- vel systir mín líka. Mér finnst gott þegar þau koma.“ Yesmine heldur í ýmsar sænskar jóla- hefðir og bakar lúsíubollur með börnunum. „Þetta er bara sætt hveitideig með saffran. Lúsíuhátíðin er falleg hefð sem ég held mikið upp á “ Í Svíþjóð eru haldnar Lúsíugöngur ungmenna sem öll eru klædd hvítu og í farar- broddi er stúlka í hvítum kyrtli með kerta- ljósakrans um höfuðið en það var siður að á morgni Lúsíumessu kæmi ung stúlka klædd sem Lúsía með morgunverð handa heim- ilisfólkinu. „Ronja hefur tekið þátt í Lúsíu- göngunni hér á Íslandi síðustu þrjú ár. Þá eru sungnir sálmar og jólalög og þetta er afskap- lega fallegt. Í íþróttahúsinu Globen í Stokk- hólmi er alltaf stór hátíð og þykir það mikill heiður að vera valin sem Lúsía.“ Lúsíumessa er 13. desember og af því tilefni stendur Sænska félagið á Íslandi fyrir messu í Sel- tjarnarneskirkju í jólahefðir Íslendinga vakti athygli Yesmine þegar hún flutti hingað. „Mér fannst mjög skrýtið að hér væru 13 jóla- sveinar sem allir gæfu í skóinn. Fyrst fannst mér þetta algjört rugl en ég er búin að venjast þessu. Í Svíþjóð er bara einn jólasveinn sem kemur nóttina fyrir aðfangadag. Finnst fannst mér það bara algjört rugl að það væru svona margir jólasveinar,“ segir hún hlæjandi og bætir við: „Mér finnst þeir líka svolítið ljótir og alltaf að stríða fólki. Jólasveinninn í Svíþjóð er sætur. Ég hef sagt Ronju hvernig jólasveinninn í Svíþjóð er og við lesum jóla- sögur frá báðum löndum þannig að jólahefð- irnar eru svolítið blandaðar. Svíar borða síðan lútfisk í staðinn fyrir skötu,“ segir hún en lútfiskur er útvatnaður fiskur sem hefur legið í lúti. „Mér finnst gaman að hefðum og hef borðað skötu en mér finnst lútfiskur betri. Hann er mildari.“ Yesmine og Addi giftu sig fyrir fimm árum en þau kynntust upphaflega árið 1998. „Það tók okkur alveg þrjú ár að ná saman. Fyrst vorum við bara góðir vinir en þegar við fórum að vinna meira saman fóru hlut- irnar að breytast.“ Hún sér ekki ein um elda- mennskuna á heimilinu heldur er Addi einnig liðtækur í eldhúsinu. „Þegar ég elda nota ég meira af kryddi, hvítlauk, chilli og engifer. Hann eldar minna kryddaðan mat. Hann eld- ar mjög góðan mat og er mjög duglegur. Addi er mikill veiðimaður og hann er algjör snill- ingur í að elda lax. Hann eldar líka gott lamb. Stundum fer hann aðeins út í ítalska matar- gerð. Minn stíll er ekki endilega hefðbundinn indverskur matur heldur fæ ég frekar inn- blástur frá Indlandi og fleiri asískum löndum og bæti svo við ferskum íslenskum blæ.“ Nýtt chilli-súkkulaði Enn er óákveðið hvað verður á veisluborðinu næsta aðfangadag og Yesmine spyr hvað ég ætli að borða á aðfangadag, svona til að fá hugmyndir en á mér er lítið að græða því ég hef ekki heldur hugmynd um hvað ég borða. „Kannski höfum við bara kalkún aftur,“ segir hún hugsi. „Eða lamb.“ Við erum staðnar upp og ég aftur farin að dást að útsýninu þegar Yesmine segist skyndilega hafa steingleymt einu, bregður sér aðeins frá og kemur til baka með kramar- hús úr sellófani fullt af súkkulaðibitum. „Þetta er chilli-súkkulaði. Ég er búin að vera að kenna fólki að búa svona til á námskeiðum og fólk hefur verið mjög hrifið. Þetta er dökkt súkkulaði með hnetum, möndluflögum og kryddi þannig að þetta er bara frekar hollt nammi. Mér fannst kominn tími til að gefa eitthvað frá mér meira en bækur þannig að nú er ég að framleiða chilli-súkkulaði.“ Yesm- ine hefur verið gestakokkur í Munnhörp- unni í Hörpu, þar býr hún til góðgætið sem verður meðal annars til sölu þar og í Kjólar og Konfekt. Ég stenst ekki freistinguna og spyr hvort ég megi ekki opna kramarhúsið og smakka. „Auðvitað,“ segir hún. Ég finn hvernig kryddbragðið blandast við súkkulað- ið og minnir á jól og austurlönd á sama tíma. Nú þegar ég er búin að smakka súkkulaðið krefst hún þess að ég taki allt kramarhúsið með mér. „Þetta er það fyrsta matarkyns sem ég sendi frá mér undir eigin nafni. Það fer svo eftir viðtökunum hvort það verður eitt- hvað meira seinna.“ Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Bókahillurnar setja svip sinn á eldhúsið hjá Yesmine og hefur fólk sem kemur til hennar jafnvel tekið mynd af þeim til að setja upp svipaðar hillur hjá sér. Ljós- myndir/Hari 32 viðtal Helgin 13.-15. desember 2013
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.