Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.12.2013, Page 46

Fréttatíminn - 13.12.2013, Page 46
F yrirkomulagi deildarkeppn-innar á Englandi var breytt fyrir keppnistímabilið 1992– 93. Liðin í efstu deild stofnuðu þá Úrvalsdeildina og um leið var tölu- röð hinna deildanna breytt á þann veg að sú næstefsta varð 1. deild og svo framvegis. Manchester United hafði oft byrjað tímabil vel en síðan runnið á rassinn. Nú var þessu öfugt farið. Liðið fór afar illa af stað í hinni nýstofnuðu Úrvalsdeild og tapaði fyrstu tveimur leikjunum, þar af 0-3 í hinum síðari, sem var gegn Everton. Þá gerði liðið eitt jafntefli, en svo sigraði það í næstu fimm leikjum. Beinu brautinni var þó ekki náð. Fimm jafntefli í röð og síðan tveir ósigrar sýndu ótvírætt fram á mikinn óstöðugleika hjá liðinu og við því varð að bregðast. Marka- skorun var aðalvandamálið. „Liðið skoraði ekki nema 21 mark í deild- inni á seinni hluta síðasta tímabils á móti 42 mörkum á þeim fyrri,“ sagði Alex Ferguson þegar hann rifjaði upp vandann sem steðjaði að liðinu. „Okkur vantaði greinilega marka- skorara, einhvern sem gat gert gæfumuninn í jöfnum leikjum.“ „Spurðu hvort Eric Cantona sé til sölu.“ Sumarið 1992 hafði Ferguson borið víurnar í Alan Shearer, framherja hjá Southampton, sem kaus frekar að ganga í raðir Blackburn en Manchester United. Þá keypti hann Dion Dublin frá Cambridge og lof- aði hann mjög góðu, en meiddist því miður fljótlega og varð strax ljóst að hann yrði lengi frá. Það varð til þess að knattspyrnustjórinn fór aftur á stúfana og reyndi að kaupa David Hirst frá Sheffield Wednesday. Þeim megin var ekki ljáð máls á því en Svo hljóp nokkuð óvænt á snærið hjá Ferguson. Gefum honum orðið: „Martin Edwards, stjórnar- formaður félagsins, og ég gátum ómögulega séð fyrir okkur það sem í vændum var þegar við sátum síðdegi eitt, seinni hluta nóvem- bermánaðar, inni á skrifstofunni hans og ræddum hvað við þyrftum að gera til þess að vinna Englands- meistaratitilinn. Við vissum að það þýddi ekkert að sverma fyrir leik- mönnum hjá helstu keppinautum okkar: Liverpool, Arsenal, Manc- hester City og Leeds. Þaðan yrði Enginn seldur til Manchester United. En kannski mætti ræða við þá hjá Everton um Peter Bear- dsley. Hann hafði ekki náð að sýna sitt rétta andlit þar eftir sölu frá Liverpool og um hann vorum við að ræða þegar síminn hringdi hjá Edwards. Á hinum enda línunnar var einn af stjórnarmönnum Leeds, Bill Fotherby, og var tilgangur símtalsins að kanna hvort að Denis Irwin væri til sölu. Það kom ekki til greina að selja hann og tóku Edwards og Fotherby þá upp annað tal og óskyldara. En einmitt þá fékk ég hugmynd. Ég vildi ekki trufla spjall þeirra, gekk því að skrif- borðinu sem Edwards sat við og skrifaði á blað fyrir framan hann: „Spurðu hvort Eric Cantona sé til sölu.“ Edwards leit spyrjandi á mig og þegar ég kinkaði kolli til merkis um að mér væri alvara gerði hann eins og ég bað um. Fotherby hikaði, en sagði svo að það væri ekki úti- lokað; kvaðst myndu ræða við knattspyrnustjóra Leeds, Howard Wilkinson, um þetta og hafa svo samband innan klukkustundar. Þegar Edwards hafði slitið símtalinu spurði hann: „Af hverju Cantona?“ „Jú, við unnum Leeds, 2-0, fyrr á tímabilinu,“ svaraði ég, „og eftir leikinn voru Bruce og Pal- lister að tala um hann og í síðustu viku barst hann í tal á milli mín og Gérard Houllier [landsliðsþjálfara Frakka], sem hefur mikið álit á hon- um.“ … Við þurftum ekki að bíða lengi eftir símtalinu frá Fotherby. Hann hringdi aftur innan hálftíma og sagði að Wilkinson væri til í að selja Cantona fyrir eina milljón og þrjú hundruð þúsund pund. Ed- wards tókst að lækka upphæðina í eina milljón punda og sigrarnir voru rétt handan við hornið.“ Þvílík kaup! Eric Cantona og Alex Ferguson náðu strax vel saman. Knattspyrnu- stjórinn vissi að leikmaðurinn hafði býsna sérstakan persónuleika að geyma og tækist að virkja hann á réttan hátt þá yrði það til heilla fyrir alla sem tengdust Manches- ter United. Hann var öðruvísi en aðrir og fékk leyfi til þess að vera það. Gott dæmi um það er þegar allir leikmenn Manchester United áttu einhverju sinni að mæta í sínu fínasta pússi við eitthvert tækifæri. Og það voru allir í eins jakkafötum, dökkum og stífpressuðum, nema Cantona. Hann var léttklæddur í skærum litum eins og þátttakandi í kjötkveðjuhátíð og engum kom til hugar að setja út á það. Allra síst Ferguson sem gekk bara til hans og sagði þetta eitt: „Flottur.“ Eða svo segir sagan. Cantona var ekki orðinn löglegur með Manchester United þegar leik- menn þess héldu niður til London, undir lok nóvembermánaðar, til að keppa við Arsenal. Hann fór þó með liðinu þangað, einungis til að horfa á leikinn að menn héldu, en klukk- an hálf tíu á leikdeginum, laugar- daginn 28. nóvember, bankaði Brian Kidd upp á hótelherbergið hjá Ferguson og sagði: „Eric vill æfa.“ Ferguson bað Kidd að fara út með Eric og aðstoða hann við æf- inguna. Hélt knattspyrnustjórinn að þetta tæki aðeins stutta stund, en þegar hann gekk til hádegisverðar voru þeir ókomnir. Tuttugu mín- útum síðar birtust þeir og þá mundi Ferguson eftir einu sem Houllier hafði sagt um leikmanninn: „Can- tona vill æfa mikið og þarf að æfa mikið.“ Það voru orð að sönnu. Can- tona lét sér ekki nægja hinar hefð- bundnu æfingar, heldur staldraði hann lengur við á æfingasvæðinu að þeim loknum og æfði aukalega. Á fyrstu æfingunni eftir leikinn gegn Arsenal, sem Manchester United sigraði 0-1 með marki frá Mark Hughes, kom Cantona að máli við Ferguson og bað hann að útvega sér tvo leikmenn til að æfa aukalega með sér. Knattspyrnu- stjórinn varð í fyrstu hissa á þessari beiðni, enda ekki venjan að menn stöldruðu lengur við á æfingasvæð- inu en nauðsyn krefði. Hann fékk þó þrjá leikmenn til þess að verða eftir; tvo til að gefa boltann fyrir á Cantona og einn markvörð. Þetta vakti athygli hinna og næsta dag urðu fleiri að eigin ósk eftir með honum og sífellt fjölgaði í þeim hópi á næstu dögum. Það voru ekki síst ungu leikmennirnir sem vildu verða eftir með Cantona og aðstoða hann, sem og læra af honum. Þar hafa piltar á borð við Ryan Giggs og David Beckham verið nefndir og ekki urðu þeir lakari leikmenn fyrir vikið. Segja má að Cantona hafi breytt viðhorfi æði margra hjá Manches- ter United til æfinga og sýnt þeim fram á það með óyggjandi hætti að aukaæfingin skapar meistarann. Lýkur hér með þessum stutta kafla úr bókinni Sir Alex, en Manchester United varð í fyrsta sinn Englands- meistari undir stjórn Alex Ferguson árið 1993 og svo margsinnis eftir það. Í bókinni Sir Alex, eftir Guðjón Inga Eiríksson, er farið yfir hinn magnaða knattspyrnustjóraferil Sir Alex Ferguson hjá Manchester United. Hér á eftir verður gripið niður í bókina og einmitt á þeim stað þegar stjórinn nældi í Eric Cantona – leik- manninn sem var síðasta púslið í fyrsta stórliði Ferguson-tímans hjá Rauðu djöflunum. Sögulegt símtal Eric Cantona var keyptur til Manchester United í nóvember árið 1992. Liðið vann ensku deildina í fyrsta sinn undir stjórn Alex Ferguson vorið eftir. Ljósmyndir/NordicPhotos/Getty Alex Ferguson fagnaði vel og innilega þegar Manchester United varð Englandsmeist- ari vorið 1993. Cantona fagnar með Ryan Giggs sem þá var ungur og upprennandi leikmaður United. Giggs er enn að spila, tuttugu árum síðar. Gullmeðferð fyrir konuna þína í jólapakkann Yndisleg 50 mín. andlitsbað sem veitir húðinni mýkt, raka og ljóma enda uppistaða kremana gull, nudd á andllit, háls og herðar sem gefur slökun og losar um þreytu. Verð kr. 8900.- Þverholti 18 Sími: 552 2460 Handprjónasamband Íslands Skólavörðustíg 19 s. 552-1890 www.handknit.is Kærleiksvettlingar Góðir fyrir jólin 46 bækur Helgin 13.-15. desember 2013
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.