Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.12.2013, Page 54

Fréttatíminn - 13.12.2013, Page 54
Jólamatseðill Tapas barsins Frá 18. nóvember 5.990 kr. Hefst með Faustino freyðivíni í fordrykk 7 gómsætir jólatapas fylgja síðan í kjölfarið Tvíreykt hangikjöts tartar með balsamik vinaigrette Rauðrófu- og piparrótargrafinn lax Spænsk marineruð síld með koriander og mangó Léttreykt andabringa með malt- og appelsínsósu Kalkúnabringa með spænskri „stuffing“ og calvados villisveppasósu Steiktur saltfiskur með sætri kartöflumús Hægelduð grísasíða með heimatilbúnu rauðkáli, fíkjum og fjallagrasasósu Og í lokin tveir ljúfir eftirréttir Rise a la mande með berjasaft Ekta súkkulaðiterta Vesturgata 3B | 101 Reykjavík | Sími 551 2344 | www.tapas.is RESTAURANT- BAR tvö ljóð eftir konur, Jakobínu Sigurðardóttur og Höllu Eyjólfsdóttur. Halla samdi ljóðið „Frostrós á gleri“ sem ég þekkti ekki fyrir og ég féll strax fyrir því. Þetta er fallegur kveðskapur sem talar til manns. Þau fjalla ekki um jólasveina og jólagjafir heldur um barnið í jötunni, um birtu og hlýju.“ Átta lög eru á plötunni og segir Sigríður að þau hafi haft skamman tíma til að vinna plötuna, en þau hafi ákveðið að bíða með út- gáfuna ef þau yrðu ekki ánægð. „Við vildum ekki gefa afslátt af neinu. Það var svona sem við vildum gera þetta og það er gleðilegt að það skyldi ganga upp.“ Þetta er í fyrsta skipti sem Sigríður gefur út jólaplötu og seg- ir hún það í raun vera dæmigert fyrir hana að gefa út einmitt svona plötu. „Þetta er mjög íslenskt og fer bara beint í kjarnann.“ Sigríður, Guðmundur og fleiri hafa áður unnið saman að jólaplötu því fyrir tveimur árum tóku þau upp plötu heima fyrir jólin, létu prenta 200 eintök og gáfu í jólagjafir. Spurð um uppáhalds jólalagið segist Sig- ríður hlusta mikið á jólalög og hafa sérstakt dálæti á sálminum „Það aldin út er sprung- ið“ sem hún segist bara hlusta á yfir hátíðina sjálfa. Ég segist ekkert kannast við þennan sálm en Sigríður sannfærir mig um að ef ég heyri hann þá muni ég þekkja hann. Eftir viðtalið fór ég því á netið og fann Sigríði sjálfa syngja þennan sálm, og ég kannaðist vissulega við hann. „En það jólalag sem mér finnst skemmtilegast að syngja er Jóla- kötturinn eftir Ingibjörgu Þorbergs. Lagið er skemmtilegt og þetta er mikill texti. Ég söng þetta um daginn fyrir börn og áttaði mig á því að þau hlusta mjög vel, þau vita hver jólakötturinn er og þeim fannst þetta allt hálf skelfilegt. Mér þykir vænt um jóla- köttinn því við eigum hann. Jólakötturinn er íslenskt fyrirbrigði eins og Grýla og við ættum að halda í það eins lengi og við getum – jólasveinana þrettán, Grýlu og jólaköttinn. Óvenjulegt jólatré Á bernskuheimili Sigríðar voru gerðar ým- iss konar tilraunir þegar kom að jólatrénu. „Mamma hefur verið svona jólaólíkindatól. Ég man að jólatréð var ekki alltaf hefð- bundið. Stundum voru það bara greinar með skrauti á borðinu, og ég man að stundum sagði ég við mömmu: „Af hverju getum við ekki verið með venjulegt jólatré?“ Þetta var alltaf mjög frjálslegt. En mamma á svo fallegt heimili og er mikil smekkkona og núna skil ég hana svo vel að hafa viljað nota hlutina á nýstárlegan hátt. Að sama skapi var aldrei fastmótað hvað við borðuðum eða hvert við fórum. Þetta snerist meira um stemningna og einhvern anda sem hefur alltaf fylgt heimilinu hennar og ég hef viljað tileinka mér líka, kyrrð og ró yfir sjálfa há- tíðina. Ég er yfirleitt með kveikt á Rás 1 sem er besti vinur minn um jólin. Yfirleitt reyni ég að vera búin að öllu á Þorláksmessu og geta þá hlustað á jólakveðjurnar. Ég á stóra fjölskyldu, á margar systur sem eiga mörg börn og stór hluti af mínum jólum er að vera með þeim.“ Sigríður er langyngst fimm systra og fékk því nánast uppeldi einkabarns. „Systur mínar voru orðnar svo stórar. Ég átti þá í staðinn aukasett af mömmum en það hefur breyst í gegnum tíðina og þær eru nú orðnar vinkonur mínar. Elsta systir mín er reyndar látin en hún var 21 ári eldri en ég og hefði þess vegna getað verið mamma mín. Ég er mjög heppin að hafa alltaf getað leitað til hennar.“ Eins og stundum er með börn þá langaði litlu Sigríði í allt öfugt við það sem hún hafði. „Mig langaði að eiga bróður og vera með venjulegt jólatré en í dag er ég mjög ánægð og þakklát fyrir systur mínar.“ Héldu að jólin kæmu ekki Enn eitt af þeim lögum sem færa Sigríði jólin er „Bráðum koma blessuð jólin.“ „Ef þú tekur burt textann er lagið ekki jólalegt en um leið og þú heyrir fyrstu orðin kemur jólatilfinningin. Ég söng þetta lag sem barn í kórum og í skólanum, og það var alltaf mikið spilað á Rás 1. Það er eins og þetta lag ýti á jólatakkann á mér. Þannig skil ég vel þegar fólk fær þessa tilfinningu þegar það finnur ilminn af hangikjöti eða af einhverj- um ákveðnum kökum. Ég skil að fólk tengi við hefðir sem voru á þeirra bernskuheimili en mér finnst samt að þú eigir að geta fundið jólin þó þú hafir ekki þessa utanaðkomandi hluti.“ Sigríður rifjar upp þegar hún eyddi jólum í París með vinkonu sinni þegar þær voru um tvítugt. „Við bjuggum úti, vorum frekar blankar og ákváðum að fara ekki heim um jólin. Við byrjuðum á að ákveða að við ætl- uðum bara að útiloka að það væru jól því við vorum alveg vissar um að við yrðum bara grátandi og miður okkar. Þegar jólin nálg- uðust fórum við síðan og keyptum í gríni fullt af ljótu jólaskrauti og stóru plastdóti. Við fengum að vísu sent hangikjöt, baunir, malt og appelsín – eins klisjulega og það hljómar. Við keyptum síðan fullt af litlum pökkum handa hvor annarri til að hafa nóg að opna, kveiktum á mjög hátíðlegri tónlist með King's College Choir og þegar klukkan varð sex voru bara allt í einu komin jól. Við vorum búnar að undirbúa okkur undir að jólin myndu ekkert koma til okkar, í úthverfi í París þar sem nágrannarnir héldu ekki jól og það var opið á barnum. Ég hugsaði þá með mér að það sem skipti máli væri bara að stilla sig inn á jólin og þau koma þrátt fyrri allt. Við fórum svo í messu í Sacre Coeur og sungum Heims um ból á íslensku. Kirkjan var full af túristum og það var ekki þessi sami innileiki en hann var bara heima hjá okkur. Þá fattaði ég að ég þarf ekki að hafa allt sem ég hélt að ég þyrfti til að upplifa jólin, ég gat bara safnað mér saman í mín eigin jól.“ Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Sigríður Thorlacius var ekki komin með aðventukrans á fyrsta í aðventu en hefur bætt úr því þó hún reikni ekki með því að jólalöggan mæti heim til hennar. Ljósmynd/Hari 54 viðtal Helgin 13.-15. desember 2013
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.