Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.12.2013, Side 59

Fréttatíminn - 13.12.2013, Side 59
Jólasveinarnir Segja vil ég sögu af sveinunum þeim, sem brugðu sér hér forðum á bæina heim. Þeir uppi á fjöllum sáust, – eins og margur veit, – í langri halarófu á leið niður í sveit. Grýla var þeirra móðir og gaf þeim tröllamjólk, en pabbinn Leppalúði, – það var leiðindafólk. Þeir jólasveinar nefndust, – um jólin birtust þeir. Og einn og einn þeir komu, en aldrei tveir og tveir. Þeir voru þrettán þessir heiðursmenn, sem ekki vildu ónáða allir í senn. Að dyrunum þeir læddust og drógu lokuna úr. Og einna helzt þeir leituðu í eldhús og búr. Lævísir á svipinn þeir leyndust hér og þar, til óknyttanna vísir, ef enginn nærri var. Og eins, þó einhver sæi, var ekki hikað við að hrekkja fólk og trufla þess heimilisfrið. Stekkjarstaur kom fyrstur, stinnur eins og tré. Hann laumaðist í fjárhúsin og lék á bóndans fé. Hann vildi sjúga ærnar, – þá var þeim ekki um sel, því greyið hafði staurfætur, – það gekk nú ekki vel. Giljagaur var annar, með gráa hausinn sinn. – Hann skreið ofan úr gili og skauzt í fjósið inn. Hann faldi sig í básunum og froðunni stal, meðan fjósakonan átti við fjósamanninn tal. Stúfur hét sá þriðji stubburinn sá. Hann krækti sér í pönnu, þegar kostur var á. Hann hljóp með hana í burtu og hirti agnirnar, sem brunnu stundum fastar við barminn hér og þar. Sá fjórði, Þvörusleikir, var fjarskalega mjór. Og ósköp varð hann glaður, þegar eldabuskan fór. Þá þaut hann eins og elding og þvöruna greip, og hélt með báðum höndum, því hún var stundum sleip. Sá fimmti, Pottaskefill, var skrítið kuldastrá. – Þegar börnin fengu skófir hann barði dyrnar á. Þau ruku upp, til að gá að hvort gestur væri á ferð. Þá flýtti’ ann sér að pottinum og fékk sér góðan verð. Sá sjötti, Askasleikir, var alveg dæmalaus. – Hann fram undan rúmunum rak sinn ljóta haus. Þegar fólkið setti askana fyrir kött og hund, hann slunginn var að ná þeim og sleikja á ýmsa lund. Sjöundi var Hurðaskellir, – sá var nokkuð klúr, ef fólkið vildi í rökkrinu fá sér vænan dúr. Hann var ekki sérlega hnugginn yfir því, þó harkalega marraði hjörunum í. Skyrjarmur, sá áttundi, var skelfilegt naut. Hann hlemminn o´n af sánum með hnefanum braut. Svo hámaði hann í sig og yfir matnum gein, unz stóð hann á blístri og stundi og hrein. Níundi var Bjúgnakrækir, brögðóttur og snar. Hann hentist upp í rjáfrin og hnuplaði þar. Á eldhúsbita sat hann í sóti og reyk og át þar hangið bjúga, sem engan sveik. Tíundi var Gluggagægir, grályndur mann, sem laumaðist á skjáinn og leit inn um hann. Ef eitthvað var þar inni álitlegt að sjá, hann oftast nær seinna í það reyndi að ná. Ellefti var Gáttaþefur, – aldrei fékk sá kvef, og hafði þó svo hlálegt og heljarstórt nef. Hann ilm af laufabrauði upp á heiðar fann, og léttur, eins og reykur, á lyktina rann. Ketkrókur, sá tólfti, kunni á ýmsu lag. – Hann þrammaði í sveitina á Þorláksmessudag. Hann krækti sér í tutlu, þegar kostur var á. En stundum reyndist stuttur stauturinn hans þá. Þrettándi var Kertasníkir, – þá var tíðin köld, ef ekki kom hann síðastur á aðfangadagskvöld. Hann elti litlu börnin sem brostu, glöð og fín, og trítluðu um bæinn með tólgarkertin sín. Á sjálfa jólanóttina, – sagan hermir frá, – á strák sínum þeir sátu og störðu ljósin á. Svo tíndust þeir í burtu, – það tók þá frost og snjór. Á þrettándanum síðasti sveinstaulinn fór. Fyrir löngu á fjöllunum er fennt í þeirra slóð. – En minningarnar breytast í myndir og ljóð. jólasveinar 59 Helgin 13.-15. desember 2013
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.