Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.12.2013, Page 72

Fréttatíminn - 13.12.2013, Page 72
Málið dekkað Þ Það stendur bíll í hlaðinu hjá flestum og víða tveir. Einkabíllinn er þarfaþing, raun- ar svo að erfitt er fyrir flesta að ímynda sér daglegt stúss án hans. Við förum á bílnum í vinnuna og hann auðveldar okkur öll helstu erindi, hvort heldur þarf að sækja börn eða senda, ná í afa eða ömmu eða skjótast út í búð. Ógleymd eru þá ferðalög, lengri eða skemmri. Auðvi- tað má segja að við notum bílinn of mikið, skynsamlegra væri að fara styttri leiðir gangandi eða hjólandi og aðrar í strætó. Það gera vitaskuld margir – en því er ekki að leyna að bílinn sparar okkur sporin. Yngri dóttir okkar hjóna leit raunar á bílinn sem einn af fjölskyldunni þegar hún var að vaxa úr grasi. Hún endasentist með móður sinni út og suður í bílnum sem við áttum þá, var með sitt dót í honum og skildi því ekki þegar við seldum hann og fengum okkur nýjan. Það dugði lítt að halda því fram að hann hefði verið orðinn lúinn og tími kominn á endurnýjun. Þannig fer maður ekki með þá fjölskyldu- meðlimi sem þreytast. Hvað á þá að gera við ömmu og afa – svo ekki sé talað um langömmu og langafa? Á að selja þau? Við þessu voru fá svör en við sefuðum stúlkuna með því að kíkja annað slagið á þann gamla á stæði nýju eigendanna. Hún tók nýja bílinn aldrei almennilega í sátt og harmaði það ekkert sérstaklega þegar við seldum hann. Þá var hún enda orðin táningur og skildi málið betur. Það mátti selja bílinn en ekki ömmu. Sumir fullorðnir tengjast bílum sínum raunar all sterkum böndum, að því er manni virðist. Þannig sá ég viðtal nýverið í sjónvarpi við mann sem á þrjá Mustang- bíla, tvö nýleg tryllitæki og eitt gamalt sem jafnframt er fyrsti bíllinn sem hann eignaðist. Bíladella þessa manns er því ansi sérhæfð. Ég hef aldrei eignast tryllitæki. Sem ungur maður hefði ég getað hugsað mér það en það kom aldrei til, af ýmsum ástæðum. Í fyrsta lagi átti ég ekki fyrir slíku apparati og þegar við hjónakornin létum loks eftir okkur að kaupa bíl réðu fjölskylduþarfir valinu. Svo hefur verið alla okkar tíð. Konan hefur af skynsemi séð til þess að við höfum ekki anað út í neina vitleysu. Aðeins einu sinni, í stuttan tíma, áttum við amerískan bíl af hóflegri stærð, ekki tryllitæki. Kon- unni fannst húddið hins vegar of langt og hringdi því í mig einn góðan veðurdag og bað mig vinsamlegast að losa mig við doll- aragrínið, hún hefði pantað japanska pútu sem hentaði okkur betur. Ég gerði eins og fyrir var lagt. Í seinni tíð höfum við leyft okkur þann munað að reka tvo bíla. Með einföldum heimilisútreikningum má eflaust sýna fram á að það sé óskynsamlegt – en það verður að hafa það. Við vorum orðin ansi leið á eilífu skutli og höfum rekið einn aðalbíl sem konan ekur hvunndags og við saman þegar þannig stendur á og síðan annan og ódýrari sem ég nota í vinnuna. Þetta er ágætt fyrirkomulag. Konunni finnst stundum að bíllinn „minn“ sé orðinn heldur lúinn og því þurfi stundum að kaupa í hann dempara eða gorm. Ég bendi hins vegar á að afskriftir séu meiri af fína bílnum „hennar“ og því jafnist þetta út þótt ekki þurfi að sinna honum að öðru leyti en að fara með hann í reglubundna skoðun í umboðinu – og að henni lokinni bíði konfektmolar á stokknum milli sætanna frá hanskaklæddum verkstæðis- mönnum. Bílum þarf að sinna með ýmsu móti, auk fyrrgreindra skoðana. Það þarf að setja á þá eldsneyti. Sá gjörningur er á minni könnu. Ég held raunar að mín ágæta kona líti aldrei á eldsneytismæl- inn þegar hún ekur, hún treystir því að ég athugi stöðu hans og fylli tankinn eftir þörfum. Bílana þarf líka að hreinsa. Á mínum yngri árum nennti ég því en viðurkenni að nú er ég orðinn latur við þá iðju. Við rennum bílunum því gegnum þvottastöð þegar þurfa þykir, að minnsta kosti þeim nýrri. Hinn er frekar sjálf- hreinsandi og nokkuð má treysta á að rigning og rok hjálpi til. Síðan þarf að skipta um dekk að vori og hausti. Ég hef yfirleitt farið með vagnana á hjólbarðaverkstæði og beðið meðan ágætir starfsmenn þar hafa sett undir sumar- eða vetrardekk, eftir árstíðum. Í haust kom ég því hins vegar ekki í verk með bíl konunnar – eða sameiginlega bíl- inn okkar – eftir því hvernig á það er litið, en kaupa þurfti vetrardekk undir hann. Ég hafði ekki stórar áhyggjur þar sem bíll- inn er fjórhjóladrifinn og því ólíklegt að hún yrði strandaglópur. Mín ágæta kona nennti hins vegar ekki að bíða, eftir að desember gekk í garð með frosti og snjó, og tók málið í eigin hendur. Hún hringdi í hjólbarðaverkstæði og sagðist þurfa dekk undir bíl sinn hið bráðasta. Hjólbarðamað- urinn sá engin tormerki á því, hann ætti dekk af öllum stærðum og gerðum svo hún væri velkomin með bílinn. „Hvaða dekkjastærð þarftu?,“ spurði hann stimamjúkur við frúna á hinum enda línunnar. „Það veit ég ekki,“ sagði konan, sannleik- anum samkvæmt. „Það er ekkert vandamál, við finn- um út úr því, hvaða tegund er bíllinn?,“ sagði maður- inn, mjúkmáll sem fyrr. „Landkrúser,“ svaraði kon- an umsvifalaust og taldi málið leyst. „Landkrúser,“ sagði dekkjamaðurinn, „hvaða gerð, 90, 120 eða 150?“ „Hef ekki hugmynd,“ sagði minn betri helming- ur og dekkjakaupandi, „ en hann er hvítur!“ Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL Te ik ni ng /H ar i 72 viðhorf Helgin 13.-15. desember 2013
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.