Fréttatíminn - 13.12.2013, Síða 104
104 bíó Helgin 13.-15. desember 2013
Hér
kveður
við hið
gamal-
kunna
stef um
baráttu
góðs og
ills.
Frumsýnd Frozen
A llt frá því Walt Disney framleiddi teiknimyndina um Mjallhvíti árið 1937 hefur teiknimyndarisinn, sem
ber nafn hans, gert sér mat úr sígildum
ævintýrum. Þyrnirós, Gosi, Hrói höttur,
Litla hafmeyjan og Pétur Pan eru nærtæk
dæmi. Disney tók sögu H.C. Andersens,
Litlu hafmeyjuna, sínum tökum 1989 og sló
í gegn með krúttlegri útfærslu á harm-
rænni sögu danska höfundarins. Í Frozen
sækir Disney aftur í smiðju Andersens en
myndin er lausbyggð á ævintýrinu um Snæ-
drottninguna.
Frozen gerist í konungsríki þar sem eilífur
vetur ríkir vegna þess að Snædrottningin
Elsa hefur hneppt landið í álög. Anna er bjart-
sýn og vösk stúlka sem leggur upp í ferðalag
til þess að ná fundum Snædrottningarinnar,
en það vill svo til að þær eru systur, og reyna
að fá álögunum aflétt. Elsa sjálf á heldur
ekkert sjö dagana sæla vegna þess að á
henni hvílir sú bölvun að allt sem hún snertir
verður að snjó og ís.
Hér kveður við hið gamalkunna stef um
baráttu góðs og ills og eins og í öllum al-
mennilegum ævintýrum nýtur aðalpersónan
aðstoðar tryggra hjálparhellna. Fjallamaður-
inn ungi, Kristján, slæst í för með Önnu og
það gera líka ofurgáfað hreindýr og orð-
heppni snjókarlinn Ólafur.
Óskarsverðlaunahafinn John Lassetter
stýrði framleiðslu myndarinnar en hann þyk-
ir býsna lunkinn í þessum efnum og á til að
mynda mikið til heiðurinn af mörgum vinsæl-
ustu teiknimyndum sem sögur fara af, eins
og til dæmis Toy Story-myndunum. Engu var
til sparað við gerð Frozen enda ætlar Disney-
samsteypan sér að græða vel á tiltækinu.
Umhverfi sögunnar er unnið upp úr norsku
landslagi en teiknararnir voru sendir til Nor-
egs um hávetur til þess að fá góða tilfinningu
fyrir því hvernig alvöru vetrarríki lítur út.
Frozen verður sýnd bæði með ensku tali og
íslensku en á frummálinu ljá leikararnir Edie
McClurg, Jonathan Groff, Chris Williams,
Josh Gad, Stephen J. Anderson og Kristen
Bell helstu persónum raddir sínar.
Aðrir miðlar: Imdb: 8,1, Rotten Tomatoes: 88%,
Metacritic: 74%
Teiknimyndaliðið hjá Disney hefur í gegnum áratugina víða leitað fanga og gert myndir eftir fjölda
sígildra ævintýra. Danski rithöfundurinn H.C. Andersen hefur reynst teiknimyndarisanum haukur
í horni og afbökun Disney á ævintýrinu um litlu hafmeyjuna gerði stormandi lukku á sínum tíma.
Nú er leitað í smiðju Danans á ný en Frozen sækir innblástur í sögu hans um Snædrottninguna.
Þórarinn
Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Disney í vetrarríki Andersens
Anna og félagar lenda í ævintýrum með snjókarlinum hressa, Ólafi í Frozen.
Frumsýnd HomeFront
Breski jaxlinn Jason Statham er
öflugasti og afkastamesti hasar-
myndaleikari vorra tíma og hefur
tekið við keflinu af gömlu kemp-
unum Sylvester Stallone og Arnold
Schwarzenegger. Stallone virðist
í meira lagi sáttur við arftakann
en þeir félagar hafa gert það gott
saman í tveimur Expendables-
myndum. Og nú mætir Statham
til leiks í Homefront sem gerð er
eftir handriti Stallones sem sjálfur
ætlaði sér einhvern tíma að leika
aðalhlutverkið.
Statham leikur fyrrverandi
fíkniefnalögguna Phil Broker sem
er nýflutt til lítils bæjar ásamt dótt-
ur sinni og vonast til að finna þar
frið eftir að hafa um árabil staðið
í eldlínu baráttu lögreglunnar við
eiturlyfjasala og annað hyski.
Feðginin fá þó ekki að njóta
kyrrðarinnar lengi og eftir að dótt-
irin lendir upp á kant við hrotta
í skólanum verður allt vitlaust.
Fíkniefnaframleiðandinn Gator
blandar sér nefnilega í málið og
er fenginn til að flæma Phil úr
bænum. Þegar hann kemst svo
að fortíð Phils finnst honum upp-
lagt að kála honum bara. Og þá
grípur okkar maður, seinþreyttur
til vandræða, til vopna og fjandinn
verður laus.
Aðrir miðlar: Imdb: 6,7, Rotten Tom-
atoes: 38%, Metacritic 39%.
Hvað ungur nemur...
Jason Statham gefur ekkert eftir frekar
en fyrri daginn.
GrænA ljósið Pioneer
Olíusamsæri í Norðursjó
Frændur vorir, Norðmenn, eru að
verða ansi frekir til fjörsins í gerð
spennumynda og í Pioneer sam-
eina þeir krafta sína Erik Skold-
bærg, leikstjóri Insomnia, og
framleiðendur þeirrar frábæru
spennumyndar Hausaveiðararnir
sem gerð var eftir samnefndri
sögu Jo Nesbø.
Pioneer gerist í upphafi olíuævin-
týrisins í Norðursjó snemma á 9.
áratugnum þar sem samsæri og ofsóknarkennd krauma undir niðri.
Petter sem er hugrakkur atvinnukafari tekur að sér hættulegasta verkefni í heimi
þegar hann ákveður að kafa niður á botn Noregshafs, en skyndilegur harmleikur
breytir öllu, og Petter áttar sig á því að hann er kominn í bráða lífshættu.
Kafarinn Petter kemst að því að norska
olíuævintýrið er ekkert grín.
SKÓLANEMAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS!
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR & KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS - MIÐASALA: 412 7711
MANDELA:
LONG WALK TO FREEDOM (12)
ONIBABA (16)
SUN: 20.00