Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.12.2013, Side 106

Fréttatíminn - 13.12.2013, Side 106
106 bækur Helgin 13.-15. desember 2013 Ævisaga Hermanns Gunnarssonar, Hemmi Gunn: sonur þjóðar, sem Orri Páll Ormarsson skráði, trónir á toppi Bóksölulistans yfir ævisögur. Hemmi á toppnum  Bókadómur Háski í Hafi s jómennskan er Íslendingum í blóð borin enda hafa fiskveiðar verið hryggjarstykkið í efnahag þjóðar- innar alla síðustu öld og sjávarfang hefur haldið lífinu í mannskapnum í gegnum aldirnar. Það hefur aldrei verið heiglum hent að sækja björg í bú í greipar Ægis. Okkur er því tamt að tala um sjómennina okkar sem hetjur hafsins og ekki verður tölu komið á alla úr þeirra röðum sem hvíla í votri gröf. Þótt margt hafi breyst á síðustu ára- tugum og mikilvægi sjávarútvegsins fyrir þjóðarbúið sé að einhverju leyti víkjandi er enn um grundvallar atvinnnugrein að ræða og flestir láta sig atvinnuveginn varða og svo lengi sem land byggist mun- um við geta rifist um hverjir séu réttir eigendur auðlindanna í hafinu, heildin eða fáir útvaldir. Bók Illuga Jökulssonar, Háski í hafi – Sjóslys við Ísland í byrjun 20. aldar, hefur því eðlilega breiða skírskotun enda fyrir- finnst varla sú fjölskylda á Íslandi sem á ekki í það minnsta einn sjómann í ætt- artré sínu. Lesandinn á því sérstaklega auðvelt með að tengja sig við sögurnar sem Illugi rekur hér af sinni alkunnu stílfimi. Harmurinn og gleðin sem fylgja sigrum og ósigrum andspænis ægivaldi hafsins snerta einhverja rammíslenska taug sem bærist meira að segja í brjósti borgarbarns sem ólst upp á síðustu áratugum 20. aldarinnar og hefur aldrei migið í saltan sjó. Sögur sjómannanna sem gerðu út við allt aðrar aðstæður en þekkjast í dag eru sannkallaðar Íslend- ingasögur. Bókin í annálsformi og sjóslys á fyrstu árum 20. aldar eru í forgrunni þótt höfund- ur standist einstaka sinnum ekki mátið og bregði sér aftar í tímann, jafnvel aftur til Kára Sölmundarsonar í Njálssögu. Illugi telur upp slys þar sem menn fór- ust, segir frá björgunarafrekum og eins og við má búast frá hendi höfundar er samfélagslýsing í bakgrunninum. Illugi leggur mest í allnokkrar lengri frásagnir þar sem dramatísk gáfa hans fær að njóta sín. Dæmi um slíka sögu er skaði sem varð þegar 27 manns, þar af margar táningsstúlkur, fórust með smábáti við Vestmannaeyjar eftir að skipstjóri og áhöfn höfðu sýnt glæpsam- legt gáleysi við að ofhlaða bátinn. Einnig eru eftirminnilegar frásagnir af hrakningum þýskra skipbrotsmanna á Skeiðarársandi og Ingvarsslysinu við Viðey þegar Reykvíkingar fylgdust heilan dag með tuttugu mönnum týnast í sjóinn einn og einn úr strönduðu skipi. Slysa- varnamál voru í algjörum ólestri og Illugi dregur sannarlega ekki dul á hve illa Ís- lendingar stóðu sig í þeim efnum, bæði stjórnvöld og flestir sjómenn. Þó eru á því undantekningar, eins og Jón Sturlaugs- son frá Stokkseyri, sem einnig er sagt frá. Margar styttri frásagnanna eru þó ekki síður áhrifamiklar en þær lengri, og má þar nefna frásögn af því þegar nokkrir þrautþjálfaðir sjómenn drukkna í blíðskaparveðri rétt frá landi í Ísafjarð- ardjúpi, eða þegar kona á Snæfellsnesi leggur út í sannkallaðan háska í hafi til að komast aftur til nýfædds barns síns. Það vantar því ekkert upp á dramatík- ina í þessari kröftugu bók Illuga sem er ágæt áminning fyrir landkrabbana um að sjómennskan er ekkert grín. Þórarinn Þórarinsson Sjómennskan er ekkert grín Steinunn Jenný Karlsdóttir hefur sent frá sér barnabók þrátt fyrir ungan aldur, en hún er aðeins átta ára. Þetta er frumraun hennar á ritvellinum en bókina skrifaði hún með aðstoð föður síns, Karls Th. Birgissonar, ritstjóra Herðubreiðar. Sigrún Erla Karlsdóttir mynd- skreytti ævintýrið. Feðginin fögnuðu útgáfunni í bókabúð Máls og menningar síðastliðinn miðvikudag. „Kátur – Ævintýri ofurhvolps“ lýsir ævintýrum hvolpsins Káts sem berast frá miðbæ Reykjavíkur í sveitina og jafnvel um furðuheima sem enginn þekkir nema Kátur sjálfur. Aðspurður segir Karl frá því að þau hafi fengið hvolp fyrir um ári síðan og þá hafi hugmyndin byrjað að fæðast. Hundalífið var þeim framandi og sagan er tilraun þeirra til að sjá heiminn með augum hvolpsins. „Við fengum okkur hvolp fyrir ári síðan og vildum skilja hann“ segir Karl, faðir Steinunnar. „Við vildum vita hvernig hann hugsaði og sá heiminn.“ Bókin er því skáldskapur en byggir á skemmtilegum og óvæntum uppákomum tengdum nýju lífi með Kát. Ung stúlka stígur fram á ritvöllinn Íslenski glæpakóngurinn Arnaldur Indriðason hefur fyrir löngu lagt undir sig íslenskan bókamarkað og ekkert lát er á sókn hans í nágrannalöndunum. Skuggasund var verðlaunuð á Spáni áður en hún kom út og nú berast þær fregnir frá Bretlandi að þýðing Victoriu Cribb á Furðu- ströndum, Strange Shores, hafi verið valin ein af bestu glæpasögum ársins í Bretlandi af þremur virtum dag- blöðum: The Times, Financial Times og The Evening Standard. Arnaldur er ausinn lofi og gagnrýnandi The Times segir Erlend eina áhugaverðustu persónu glæpa- sagna um þessar mundir. Paul Binding, gagnrýn- andi Times Literary Supplement, fór einnig fögrum orðum um bókina í langri grein þar sem hann sagði höfundinn teygja sig út fyrir hefðbundinn ramma glæpasagnanna inn í heim fagurbókmenntanna. Arnaldur á árslista í Bretlandi  Háski í hafi Illugi Jökulsson Sögur 273 s, 2013 Tvær eftirminnilegar Bókaútgáfan Hólar holabok.is / holar@holabok.is Von - Saga Amal Tamimi. Þetta er sagan af stúlkunni sem var fangelsuð af Ísraelsmönnum og flýði síðar á lífsleiðinni á ævintýralegan hátt til Íslands. Hún hefur margsinnis óttast um líf sitt og á þá einu von að komið sé fram við hana og alla aðra af virðingu. Undir hraun er einstök frásögn Sigga á Háeyri af eldgosinu í Heimaey, flóttanum upp á fastalandið og öllu því sem á eftir fylgdi. Barnabækur á pólsku. Książki dla dzieci i młodzieży po polsku BERGSTAÐARSTRÆTI 7 Skemmtileg saga Bókin er um strák sem fer út að leika sér með ref og lendir óvænt í heim- sókn hjá tveimur dvergum. Mér fannst bókin mjög skemmtileg. Fyndnast fannst mér á blaðsíðu 25 þegar dverg- arnir gáfu Gumma grænan, súrsætan drykk og brauð með arfa sem honum leist fyrst mjög illa á en fannst svo bara mjög gott á bragðið. Ægir Thorarensen Skúlason, 6 ára. Gummi og dvergurinn úrilli Dagbjört Ásgeirsdóttir Óðinsauga, 34 síður, 2013. Steinunn Jenný og Karl fögnuðu útgáfu bókar- innar ásamt vinum og vandamönnum í Máli og menningu. Mynd/Hari Harmur- inn og gleðin sem fylgja sigrum og ósigrum andspænis ægivaldi hafsins snerta einhverja ramm- íslenska taug. Í bókinni Háski í hafi – Sjóslys við Ísland í byrjun 20. aldar segir Illugi Jökulsson átakanlegar og á köflum hádramatískar sögur af sjóslysum við strendur Íslands á fyrstu árum síðustu aldar. Stílgáfa Illuga nýtur sín vel í þessum áhrifaríka annál um eina allra hörðustu stétt íslenskrar atvinnusögu sem býður öllum hættum byrginn þegar lagt er upp með að sækja gull í greipar Ægis. Illugi Jökulsson er alltaf í bolt- anum og hefur undanfarið dælt út knattspyrnubókum en hér horfir hann til hafs og segir átakanlegar sögur af sjóslysum við Íslands strendur í byrjun 20. aldar.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.