Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.12.2013, Page 108

Fréttatíminn - 13.12.2013, Page 108
 LeikféLag akureyrar Hátíðarsýning á 40 ára atvinnuafmæLi Æfingar hafnar á Gullna hliðinu Æfingar eru hafnar hjá Leikfélagi Akureyrar á Gullna hliðinu eftir Davíð Stefánsson en verkið verður frumsýnt 17. janúar næstkomandi. Egill Heiðar Anton Pálsson leikstýrir verkinu en það er nú sett upp í fjórða sinn hjá LA. Sýningin er hátíðarsýning félagsins á 40 ára atvinnuafmæli þess, að því er fram kemur í tilkynningu leik- félagsins. Verkið fjallar um uppgjör kerlingar við líf sitt og Jón mann sinn. Ferðalag hennar til hins gullna hliðs með sálartetur bónda síns í skjóðu er löngu orðið þekkt í íslenskum leikbókmenntum og leitast uppfærslan við að vera trú þessari reisu og varpa ljósi á hvaðan við komum. Hljómsveitin Eva, með þær Sigríði Eir Zophoníasardóttur og Jóhönnu Völu Höskuldsdóttur innanborðs, semur nýja tónlist við verkið og tekur þátt í uppfærslunni með lifandi tónlistarflutningi. Með hlutverk kerlingarinnar fer María Pálsdótt- ir sem eftir nokkuð hlé stígur aftur á fjalirnar hjá LA. Auk hennar leika Aðalbjörg Árnadóttir, Hann- es Óli Ágústsson, Hilmir Jensson og fjórtán nem- endur úr Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar í sýningunni. Egill Ingibergsson hannar leikmynd og lýsingu, Helga Oddsdóttir hannar búninga, Ingibjörg Huld Haraldsdóttir er aðstoðarleikstjóri og Gígja Hólmgeirsdóttir aðstoðarkona er í starfs- námi hjá LA. Leikhópurinn fór í Laufás í fyrstu viku æfinga til að anda að sér torfbænum. Mynd Bjarni Eiríksson  svaLur og vaLur Húbba! Húbba! Snúa aftur úr tuttugu ára útlegð Jean Antoine Posocco hefur glatt hjörtu margra mynda- sögu unnenda á Íslandi með því að hefja útgáfu á ævintýrum Svals og Vals, eftir tuttugu ára hlé. m yndasöguhetjurnar Svalur og Valur nutu mikilla vinsælda á Íslandi fyrir þremur ára- tugum eða svo þegar útgáfa evrópskra myndasagna stóð í blóma á Íslandi. Lukku-Láki reið um héruð, Ástríkur lumbraði á klikkuðum Rómverjum, Tinni leysti hverja ráðgátuna á fætur annarri og Zorglúbb málaði merki Coca- Cola á tunglið. Myndasöguútgáfan fjaraði út og Svalur og Valur hafa ekki komið út á íslensku í tuttugu ár. Teiknaranum Jean Antoine Posocco, sem búið hefur á Íslandi um langt árabil, fannst þetta með öllu óhæft og hefur nú sleppt þeim Sval og Val lausum á ís- lenskum bókamarkaði eftir allt of langt hlé. Og þetta er bara byrjunin: „Útgáfan mun halda áfram á næsta ári. Það er á hreinu,“ segir Jean. „Við munum koma með bók og sögur sem hafa ekki birst áður á íslensku.“ Þegar fram líða stundir munu svo kunnuglegir titlar bætast við. „Mark- miðið er að endurútgefa allar bækurnar sem komu út hérna.“ Áform Jeans velta þó fyrst og fremst á viðtökunum. „Auðvitað veltur þetta allt á lesendunum og því fleiri sem kaupa því meiri ástæða er til að gefa út. Markhópurinn er til og við erum með nokkrar hugmyndir um hvernig er hægt að virkja hann betur.“ Svalur og Valur eru 75 ára á þessu ári og fjöldi teiknara hefur sinnt þeim á tímabilinu. Jean segir íslenska lesendur þekkja sögur Franquin, Fournier og Tome og Janry. Í bókinni sem Jean gefur út núna eru fyrstu sögur Franquins um Sval og Val. Stefán Pálsson sagnfræðingur er manna fróðastur um Sval og Val á Ís- landi. Hann ritar formála að bókinni og lýsir þar mikilli ánægju með framtaks Jeans og segir meðal annars: „Vonandi verður útgáfa þessarar stórskemmti- legu og merku bókar upphafið að nýrri endurkomu Svals og Vals inn á íslensk heimili.“ Jean segist finna mikinn meðbyr. „Við höfum fengið mikið lof fyrir að ráðast í gefa Sval og Val út aftur þannig að það ætti að vera markaður fyrir mynda- sögubækur hérna. Málið er að þetta list- form hefur verið í lægð í tuttugu ár og það tekur örugglega tíma að venja fólk aftur á að kaupa myndasögur í bókum. Ég hef trú á því að það sé hægt að reka slíka útgáfu hérna þótt hún verði ekki stór í sniðum. Það má líka segja að það sé afrek út af fyrir sig að hafa náð eyrum stóru útgefendanna sem treysta okkur til að vera fánaberi fransk-belgísku myndasöguhefðarinnar á Íslandi.“ Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Myndasöguhetjurnar Svalur og Valur nutu mikilla vinsælda á Ís- landi á seinni hluta síðustu aldar þegar myndasögu útgáfa stóð hér í blóma. Félagarnir tveir, Gormur, íkorninn Pési, Sveppagreifinn og þrjóturinn Zorglúbb áttu trausta og dygga aðdáendur hér en engu að síður hurfu þeir af sjónarsviðinu. Tuttugu ár eru liðin frá því Svalur og Valur komu síðast út á íslensku en teiknarinn Jean Antoine Po- socco hefur nú bætt úr þessu með útgáfu bókar með þremur sögum um vinina tvo. Vonandi verður út- gáfa þess- arar stór- skemmti- legu og merku bók- ar upphafið að nýrri endurkomu Svals og Vals inn á íslensk heimili. Í fyrstu Svals og Vals bókinni sem kemur út á íslensku í tuttugu ár birtast fyrstu sögur Fran- quins um kappana. Svalur og félagar nutu mikilla vinsælda á Íslandi áttunda og níunda áratugnum. 108 menning Helgin 13.-15. desember 2013 TVEIR HRAFNAR listhús, Art Gallery Baldursgata 12 101 Reykjavík +354 552 8822 +354 863 6860 +354 863 6885 art@tveirhrafnar.is www.tveirhrafnar.is Opnunartímar: 12:00-17:00 miðvikudaga til föstudaga 13:00-16:00 laugardaga og eftir samkomulagi AðVENTA TVEIR HRAFNAR LISTHÚS Davíð Örn Halldórsson Hallgrímur Helgason Hulda Hákon Húbert Nói Jóhannesson Jón Óskar Ragnar Þórisson Steinunn Þórarinsdóttir Óli G. Jóhannsson og Kristján Davíðsson Mary Poppins „Stórfengleg upplifun“ – EB, Fbl Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is Mary Poppins (Stóra sviðið) Fös 13/12 kl. 19:00 Fös 27/12 kl. 19:00 Lau 4/1 kl. 13:00 Lau 14/12 kl. 19:00 Lau 28/12 kl. 13:00 Sun 5/1 kl. 13:00 Sun 22/12 kl. 13:00 Sun 29/12 kl. 13:00 Sun 12/1 kl. 13:00 Fim 26/12 kl. 13:00 Fös 3/1 kl. 19:00 Súperkallifragilistikexpíallídósum! Leiksýning á nýjum skala. Jeppi á Fjalli (Nýja sviðið) Fös 13/12 kl. 20:00 38.k Fös 20/12 kl. 20:00 Mið 15/1 kl. 20:00 Gamla bíó Lau 14/12 kl. 20:00 39.k Lau 28/12 kl. 20:00 Fim 16/1 kl. 20:00 Gamla bíó Sun 15/12 kl. 20:00 40.k Sun 29/12 kl. 20:00 Fös 17/1 kl. 20:00 Gamla bíó Þri 17/12 kl. 20:00 Fös 10/1 kl. 20:00 Gamla bíói Lau 18/1 kl. 20:00 Gamla bíó Mið 18/12 kl. 20:00 Lau 11/1 kl. 20:00 Gamla bíó Sun 19/1 kl. 20:00 Gamla bíó Fim 19/12 kl. 20:00 Sun 12/1 kl. 20:00 Gamla bíó Flytur í Gamla bíó í janúar v. mikilla vinsælda Hamlet (Stóra sviðið) Lau 11/1 kl. 20:00 Frums. Lau 18/1 kl. 20:00 4.k. Sun 26/1 kl. 20:00 7.k. Sun 12/1 kl. 20:00 2.k Sun 19/1 kl. 20:00 5.k. Fös 31/1 kl. 20:00 8.k. Fim 16/1 kl. 20:00 3.k. Fim 23/1 kl. 20:00 6.k. Þekktasta leikrit heims Refurinn (Litla sviðið) Lau 21/12 kl. 20:00 12.k Lau 4/1 kl. 20:00 Fim 9/1 kl. 20:00 Sun 22/12 kl. 20:00 Sun 5/1 kl. 20:00 Fim 9/1 kl. 20:00 Glænýtt verðlaunaverk. Spennuþrungið, reifarakennt og margrætt Jólahátíð Skoppu og Skrítlu (Nýja sviðið) Lau 14/12 kl. 11:00 aukas Lau 21/12 kl. 13:00 Fös 27/12 kl. 13:00 Lau 14/12 kl. 13:00 Lau 21/12 kl. 14:30 Fös 27/12 kl. 14:30 Lau 14/12 kl. 14:30 Lau 21/12 kl. 16:00 aukas Lau 28/12 kl. 13:00 Sun 15/12 kl. 11:00 Sun 22/12 kl. 13:00 Lau 28/12 kl. 14:30 Sun 15/12 kl. 13:00 Sun 22/12 kl. 14:30 Sun 29/12 kl. 13:00 Sun 15/12 kl. 14:30 Sun 22/12 kl. 16:00 aukas Sun 29/12 kl. 14:30 aukas Bestu vinkonur barnanna koma okkur í hátíðarskap 74,6% ... kvenna 35 - 49 ára á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann* *konur 35 – 49 ára á höfuðborgarsvæðinu. Capacent jan - mars 2013 850 svör
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.