Læknablaðið - 01.12.1975, Page 45
LÆKNABLAÐIÐ
111
ar héraðsins geta ekki vænzt þeirrar bættu og
auknu þjónustu, sem vel búin og stærri lækna-
miðstöð í tengslum við sjúkrahús gæti veitt
þeim, nema að nokkru leyti. Telur stjórn
Læknafélags Islands, að Laugaráshérað eigi að
sameinast Selfosshéraði um læknamiðstöð á
Selfossi og muni trúlega gera það í framtíð-
inni, en jafnframt yrði þá séð fyrir föstum
viðtalstíma læknis í Laugarási og sennilega
víðar, væntanlega á Laugarvatni, við Búrfells-
virkjun og e.t.v. einnig á Flúðum.
Virðingarfyllst,
f.h. stjórnar Læknafélags íslands,
Baldur Fr. Sigfússon
ritari
4. Læknamiðstöð á Egilsstöðum, bréf dags.
27.12. 1970, þar sem óskað var umsagnar L.l.
um tilmæli hreppsnefndar Borgarfjarðar-
hrepps eystra um aðild að þeirri læknamiðstöð,
sem nú er að risa. Var erindi þessu svarað með
eftirfarandi bréfi til heilbrigðis- og trygginga-
máiaráðuneytisins:
12. janúar 1971.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
Laugavegi 172,
Reykjavík.
Vér þökkum bréf ráðuneytisins frá 27.12.
1970, þar sem óskað er eftir umsögn Lækna-
félags Islands, að Bakkagerðishérað verði aðili
að læknamiðstöð, sem nú er verið að reisa á
Egilsstöðum.
Á stjórnarfundi i L.I. þ. 12. jan. 1971 var
fjallað um áðurnefnt bréf og samþykkt að
mæla með tillögunni, athugasemdalaust.
Virðingarfyllst,
f.h. stjórnar Læknafélags Islands,
Baldur Fr. Sigfússon
ritari
Afrit sent til
hreppsnefndar Borgarfjarðarhrepps.
Samstarf lœkna í lceknamiöstöðvum
Á aðalfundi 1970 var samþykkt tillaga um,
að L.I. sæi til, að samin yrðu frumdrög að
reglum um fjárhagslegan og verklegan sam-
starfsgrundvöll lækna og læknamiðstöðva al-
mennt. Stjórn L.I. tilncfndi Baldur Fr. Sigfús-
son, Ingimar Hjálmarsson og Örn Bjarnason í
nefnd til að athuga þetta mál og gera tillögur
um samstarfsgrundvöll á þvi sviði, sem að ofan
getur.
LágmarksstaÖall fyrir lœknamiðstöövar
Á aðalfundi 1970 var samþykkt tillaga um
það, að stefna beri að því að semja lágmarks-
staðal fyrir starfsemi læknamiðstöðva, svo og
ganga frá reglugerðum um læknamiðstöðvar,
en frumdrög að slíkum regiugerðum hafa ver-
ið samin eins og getur i fyrri ársskýrslum.
Landlækni var ritað eftirfarandi bréf um
þetta mál:
Reykjavík 12. ágúst 1970.
Hr. landlæknir,
Sigurður Sigurðsson,
Arnarhvoli, Reykjavík.
Aðalfundur Læknafélags Islands haldinn í
Vestmannaeyjum 20.—21. júní 1970 gerði eftir-
farandi ályktun varðandi lágmarksstaðal
sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana.
„Aðalfundur Læknafélags Islands 1970 álykt-
ar, að setja beri lágmarksstaðal fyrir sjúkra-
hús og heilbrigðisstofnanir á grundvelli til-
lagna nefndar L.R., sem birtist í Læknablað-
inu, 1. og 2. tbl. 1967.
Fundurinn telur, að eðlilegt sé, að lækna-
samtökin og stjórnendur áðurnefndra stofn-
ana geri tillögur um slíkan lágmarksstaðal í
samráði við heilbrigðisyfirvöld.“
Virðingarfyllst,
f.h. Læknafélags Islands,
Baldur Fr. Sigfússon Arinbjörn Kolbeinsson
ritari formaður
Samvinna og verkaskipting sjúkrahúsa í
Reykjavík
Með bréfi dags. 10. júní 1971 óskaði L.R. eftir
því, að L.I. tilnefndi einn mann í nefnd á veg-
um L.R. Á nefndin, sem verður 5 manna nefnd,
að athuga, hvernig samvinnu og verkaskipt-
ingu sjúkrahúsa i Reykjavík verði bezt hagað
í framtíðinni og gera tillögur þar um, sem
ræddar yrðu á fundi í félaginu síðar á þessu
hausti. Var samþykkt að tilnefna af hálfu L.I.
Gunnlaug Snædal og Guðmund Jóhannesson
til vara í nefnd þessa.
Heilbrigöismálanefnd
Nefnd þessi var skipuð þann 12.10. 1970 skv.
þingsályktun frá 22.4. 1970, og voru eftirtaldir
menn í nefndinni: Ásmundur Brekkan og
Brynleifur H. Steingrímsson, tilnefndir af L.I.,
Páll Sigurðsson, ráðuneytisstjóri, formaður
nefndarinnar, Tómas Helgason, prófessor, til-
nefndur af læknadeild, og Magnús Guðjónsson,
tilnefndur af Sambandi ísl. sveitarfélaga. Hóf
nefndin störf 27.10. 1970. Var henni ætlað að
endurskoða ýmsa þætti heilbrigðislöggjafar,
einkum með tilliti til úrbóta á læknisþjónustu
í dreifbýlinu. Stjórn L.I. átti 2 fundi með þeim
læknum, sem tekið höfðu sæti í nefndinni skv.
tilnefningu L.I., og skýrðu þeir nokkuð frá
störfum nefndarinnar. Á fundum þessum komu
fram mismunandi sjónarmið á ýmsum atriðum,
sem nefndin hafði gert tillögur um eða var að
móta tillögur um. Þótti stjórn L.I. sýnt, að
frumvarp þetta mundi þurfa gaumgæfilegrar