Læknablaðið - 01.12.1975, Page 50
116
LÆKNABLAÐIÐ
tekjum. Réttur til lífeyrislauna i veikindum,
ef aukatekjur falla niður og þ.h. skal hins
vegar miðast við launaflokk skv. fylgiskjali
11“. Eftir ákvörðun fjármálaráðuneytisins
voru laun héraðslækna í vissum héruðum skert
með eftirfarandi hætti: Laun héraðslækna,
sem hafa apótek, lækka um 10%, en staðar-
uppbót verður kr. 7.800 í grunn á mánuði í
stað hálfra byrjunarlauna áður. Áður en á-
kvörðun þessi var tekin, höfðu fulltrúar fjár-
málaráðuneytisins rætt við samninganefnd L.I.
um þessi kjaramál. Á formannaráðstefnu L.I.
í maí komu fram efasemdir um það, að á-
kvarðanir þessar um lækkun á launum hér-
aðslækna gætu staðizt lögum samkvæmt. I
lok maí gerði stjórn L.I. lauslega athugun á
lögmæti þessara framkvæmda, og sýndist hún
orka tvímælis. 1 samráði við lögfræðing félags-
ins var héraðslæknum, sem þarna áttu hlut
að máli, bent á að taka við launum sínum með
fyrirvara. Hróifur Ásvaldsson, viðskiptafræð-
ingur, var fenginn til þess að reikna út, hver
áhrif launabreytingarnar hafa á laun héraðs-
lækna, sem áður voru i 18., 19. og 20. launa-
flokki. Þá var lögfræðingur félagsins, Guð-
mundur Ingvi Sigurðsson, fenginn til þess að
kanna nánar lögmæti þessara ráðstafana.
(Skýrslur þessara sérfræðinga voru meðal
fylgiskjala ársskýrslu).
Samninganefnd
Eins og fram hefur komið í fréttabréfum,
voru samningar lausir frá og með 1. marz sl.
I sambandi við umræður um launaflokka hér-
aðslækna var einnig rætt um taxta þann, sem
verið hefur til endurskoðunar og umræðu sl.
ár. Þegar samkomulag um launaflokka lá fyrir
og áður er nánar greint frá í fréttabréfum,
var gert munnlegt samkomulag um, að nýr
taxti yrði eðlilegt framhald af launaflokks-
ákvörðuninni (26. ifl.), og yrði hann ekki sam-
inn fyrr en í haust eða eftir 1. okt. nk. Taxt-
inn, sem þannig er ósaminn ennþá, en er í
beinu framhaldi af Iaunahækkun héraðslækna,
er þvi e.t.v. þýðingarmesti áfanginn, þegar um
heildarlaun er að ræða. Sú samninganefnd,
sem kosin verður á aðalfundi L.í. í haust, hef-
ur því það verkefni að vinna að koma taxtan-
um í það horf, sem fráfarandi nefnd hefur
lagt grundvöll að.
Eins og áður er frá greint, hefur Sjúkra-
samlag Akureyrar í bréfi, er það sendir lækn-
um, bent á, að L.I. sé skv. samningum skuld-
bundið að útvega lækna á þá staði, Þar sem
það hefur gert númerasamninga.
Þar sem hinn undirritaði samningur er
úr gildi genginn og hefur í rauninni aðeins
verið lauslega framlengdur munnlega hvað
greiðslur snertir, teljum við, að ekki sé hægt
að líta þannig á, að læknafélagið sé bundið af
honum að þessu leyti. Þetta bendir þó eindreg-
ið til þess, að ekki sé hægt að láta ákvæði sem
þessi standa í samningum lengur, því að sjálf-
sögðu getur stjórn L.I. ekki skuldbundið sig til
að útvega lækna á ákveðna staði, nema starfs-
skilyrði og launakjör séu þannig, að þau upp-
fylli kröfur um framkvæmd þeirrar beztu iækn-
isþjónustu, sem hægt er að veita á hverjum
tima. Samningar ná aðeins til greiðslna en ekki
til starfsaðstöðu að neinu verulegu leyti, og er
því fyrirsjáanlega ókleift fyrir Læknafélag Is-
lands að takast á hendur neinar skuldbinding-
ar um að útvega lækna til starfa, þar sem
starfsaðstöður eru óskýrgreindar og enginn
lágmarksstaðall verið settur. — Þá hefur for-
maður kjaranefndar ásamt samninganefnd
þeirri, er unnið hefur á vegum L.R. að samn-
ingum fyrir skólalækna, rætt við fulltrúa ráðu-
neytis um greiðslur til skólalækna, og munu
þeir samningar vera á lokastigi, þannig að lík-
legt er, að gengið verði frá þeim nú í þessum
mánuði.
Almannatryggingar
Stjórn félagsins tók til meðferðar samþykkt,
sem gerð var á aðalfundi L.I. 1970, en þar
kom fram tillaga frá Læknafélagi Austurlands,
þar sem stjórn L.I. var falið að hefja aðgerðir
í þá átt að auka áhrif félagsins á mótun og
framkvæmd almannatrygginga hér á landi,
m.a. með því að fara þess á leit við ráðherra
tryggingamála, að hann skipaði mann tilnefnd-
an af L.I. í nefnd þá, sem sett hefur verið á
iaggirnar til þess að semja frumvarp til nýrra
tryggingalaga. Formaður félagsins og Guð-
steinn Þengilsson ræddu við Pál Sigurðsson
ráðuneytisstjóra um væntanlegar breytingar á
almannatryggingum. Kvað Páll tillögur við-
komandi nefndar komnar á lokastig, og því
ekki tímabært að þessu sinni að reyna að fá
fulltrúa frá L.I. í nefndina. Ýmis atriði, sem
Iæknar hefðu bent á, væru þegar komin inn í
tillögurnar, t.d. greiðslur fyrir nauðsynlega
sjúkrahjálp erlendis, og talsverð hækkun verð-
ur á sjúkrabótum til húsmæðra. Þá hefur einn-
ig verið rætt um það í stjórn L.I að stofna
sérstaka tryggingamálanefnd innan félagsins,
og hefur stjórnin haft fund með Hauki Þórð-
arsyni og beðið hann um að taka að sé for-
ystu þessarar nefndar, en ekki hefur verið
gengið frá nefndarskipuninni enn.
Mál frá Alþingi
Tvö mál bárust frá vorþinginu til umsagnar
Læknafélags Islands. Fyrra málið var tillaga
til þingsályktunar (nr. 102) um kynferðis-
fræðslu í skólum, og var málinu svarað já-
kvætt með bréfi 12. marz 1970.
Hitt málið var tillaga til þingsályktunar (nr.
99) um einkarétt ríkisins til lyfjasölu, og var
því svarað með eftirfarandi bréfi.
15. apríl 1971.
Allsherjarnefnd sameinaðs Alþingis
Reykjavík.
Vér þökkum bréf yðar dags. 4. febr. 1971,
þar sem beðið er um umsögn þingsályktunar-
tillögu þess efnis, að ríkið fái einkarétt til
lyfjasölu, mál nr. 89.