Læknablaðið - 01.12.1975, Side 62
120
LÆKNABLAÐIÐ
um, myndi útkoman hafa orðið önnur og mun
hagstæðari læknum. Viðbótargreiðslan á
grunnlaunin skv. nýja kerfinu er kr. 7.800
mínus kr. 4.019 eða kr. 3.782, en skv. eldri
reglum hefði staðaruppbótin í 26. launaflokki
orðið kr. 18.440 (þ.e. % byrjunarlaun). Mun-
urinn er kr. 14.658, og í stað kr. 43.962 mán-
aðarlauna hefðu þau orðið kr. 58.620.
1 yfirlitinu að framan sést, að hækkun launa
með frádrætti og viðbót er frá júlí 1970 tii
júlí 1972 31—45%, að meðaltali 37% (saman-
burður á launum í 1. og 3. lið). Talið, er, að
almenn launahækkun starfsmanna rikisins með
nýju samningunum hafi numið 30—34%. Þeir
læknar, sem hér um ræðir, hafa því náð frem-
ur hagstæðum samningum, ef miðað er við
ríkisstarfsmenn í heild. Hins vegar er á það
að líta, að langskólagengnir menn fengu yfir-
leitt mun meiri launahækkun en heildin, og
frá þeim sjónarhóli er samanburðurinn ekki
læknum í hag.
Hér að framan hefur verið gerður saman-
burður á launum eins og þau voru fyrir samn-
inga í desember 1970 og eins og þau verða,
eftir að full grunnlaunahækkun kemur til
framkvæmda 1. júlí 1972. Á tímabilinu 1. júlí
1970 og 1. júlí 1972 kemur grunnlaunahækkun-
in í áföngum þannig, að frá 1. júlí — 31. des-
ember 1970 greiðist þriðjungur endanlegrar
hækkunar, á árinu 1971 greiðist helmingur af
endanlegri hækkun. Á þessu tveggja ára tíma-
bili eru launastig ríkisstarfsmanna mjög mörg.
Þeir læknar, sem hér um ræðir, tóku laun
eftir þrem launaflokkum og í hverjum flokki
voru 6 launaþrep eftir starfsaldri. 1 nýja kerf-
inu eru svo þrjú þrep eftir starfsaldri, auk
tveggja á starfsþjálfunarstigi. Hér verður ekki
reynt að gera grein fyrir öllum þeim tilvikum
launa, sem fyrir geta komið hjá héraðslæknum
á þessu tímabili. Hins vegar verður hér á eftir
reynt að gera tölulegan samanburð á því, hvort
launafyrirkomulagið er hagstæðara læknum á
umræddu tímabili, hið eldra eins og það er
sett fram í lið 2 í yfirlitinu að framan, eða hið
nýja( liður 3). Sá samanburður er að sjálf-
sögðu ekki algildur, heldur miklu fremur tak-
markaður, þar sem forsendur af fjölmörgum
hugsanlegum eru lagðar til grundvallar. Mið-
að er við sama starfsaldur og í yfirlitinu, þ.e.
3ja ára starfsaldur. Verðlagsuppbót 4,21% er
bætt við grunnlaunin frá 1. september 1970
og reiknað með henni óbreyttri út tímabilið,
eða til 1. júlí 1972.
I. Eldra fyrirkomu'lag LæknishéruÖ
A B C
a. Föst laun (18., fl„ 19. fl„ 20. fl.)
Júli — desember 1970 143.244 152.000 158.960
Allt árið 1971 306.828 324.540 339.492
Janúar — Júní 1972 163.216 177.000 185.244
Alls a 618.288 653.540 683.696
b. Staðaruppbót (% laun)
Júlí — desember 1970 66.203 69.382 72.623
Allt árið 1971 140.892 147.822 154.938
Janúar — Júní 1972 76.329 80.361 84.411
Alls b 283.424 297.565 311.972
Samtals a og b 901.712 951.105 995.668
II. Nýja fyrirkomulagiö
c. Föst laun (26. fl.)
Júlí — desember 1970 167.294 173.178 177.262
Allt árið 1971 379.980 388.968 395.136
Janúar — Júní 1972 226.740 228.528 229.764
Alls 774.014 790.674 802.162
Frá dregst 10% af c 77.401 79.067 80.216
Alls c 696.613 711.607 721.946
d. Staðaruppbót (7.800 í grunn)
Júlí — desember 1970 48.114 48.114 48.114
Allt árið 1971 97.541 97.541 97.541
Janúar -— Júní 1972 48.771 48.771 48.771
Alls d 194.426 194.426 194.426
Samtals c og d 891.039 906.033 916.372
Mism., a plús b hærra en c og d 10.673 45.072 79.296
Niðurstöðutölur hér að ofan benda til þess,
að eldra fyrirkomulagið sé læknum heldur
hagstæðara en hið nýja á umræddu tímabili.
Þessar niðurstöður eru ekki einhlitar, þar sem
samanburðarmöguleikar eru margir, eins og
áður er sagt. Með því að deila með 6, 12 eða
24 i tölur að ofan fást laun per mánuð.