Læknablaðið - 01.12.1975, Side 66
124
LÆKNABLAÐIÐ
sakfelld í úrskurði gerðardóms, hver á þá að
ákveða viðurlögin?
Tillaga XVII. Aðalfundur L.I. 1971 telur
brýna þörf á betra húsnæði fyrir skrifstofu og
félagslega aðstöðu samtakanna. Fundurinn
heimilar stjórninni að veita fé af rekstraraf-
gangi og taka lán til byggingaframkvæmda allt
að 2 milljónum króna.
Tillaga XVII. Aðalfundur L.I. 1971 heimilar
stjórninni að láta allt að helming rekstraraf-
gangs síðasta og núlíðandi árs (þ.e. árin 1970
og 1971) renna i Styrktarsjóð lækna.
Tillaga XIX. Aðalfundur L.I. 1971 telur
mjög mikiivægt, að skipulagi almannavarna
verði sem fyrst komið í viðunandi horf. Fund-
urinn leggur sérstaka áherzlu á, að starfsemi
sjúkrahúsa verði samræmd með tilliti til mót-
töku fjöldaslysa, og ennfremur, að öll sjúkra-
hús og heilbrigðisstofnanir verði skylduð til að
koma á hjá sér virku neyðarkerfi.
Tillaga XX. Aðalfundur L.l. 1971 væntir
þess, að nefnd sú, sem heilbrigðismálaráðuneyt-
ið hefur skipað til könnunar vandamálum, sem
rekja má til áfengisneyzlu meðal þjóðarinnar,
geri itarlegar tillögur til úrbóta og að þeim
verði fylgt eftir með raunhæfum aðgerðum.
Tillaga XXI. Aðalfundur L.I. 1971 felur
stjórn L.I. að yfirfara bréf frá Ólafi Halldórs-
syni, Bolungarvík, og gerða því þau skil, er
stjórnin álítur bezt og réttust.
Tillaga XXII. Aðalfundur L.I. 1971 beinir
því til stjórnar L.I. að fylgjast vel með mála-
ferlum þeim, sem Daníel Daníelsson á í við
stjórn Sjúkrahúss Húsavíkur, og aðstoða hann,
éf ástæða þykir til.
Tillaga XXIII. Aðaifundur L.I. 1971 felur
stjórn félagsins að kanna grundvöll fyrir
nefndarskipan með aðild félagsins, Sjúkrasam-
lags Reykjavíkur og Tryggingastofnunar rikis-
ins. Verksvið nefndarinnar verði að taka á
móti og afgreiða kvartanir frá almenningi
varðandi læknsþjónustu.
Tillaga XXIV. Aðaifundur L.I. 1971 beinir
þeim tilmælum til stjórnar félagsins, að skipuð
verði sáttanefnd í Húsavikurmálinu.
Tillaga XXV. Aðalfundur L.I. 1971 ályktar
að beina þeim tilmælum til stjórnar Styrktar-
sjóðs ekkna og munaðarlausra barna ís-
lenzkra lækna, að sjóðurinn verði tekinn í
vörzlu skrifstofu læknafélaganna.
Tillaga XXVI. Aðalfundur L.I. 1971 leggur
áherzlu á, að unnið verði markvisst að sam-
ræmingu sjúkrahúsþjónustunnar í Reykjavík,
og verði föstu skipulagi flýtt, svo sem mögu-
legt er.
Fundurinn beinir því til stjórnenda ein-
stakra sjúkrahúsa í Reykjavík, að ekki verði
unnið að neinum breytingum og viðbótum á
þjónustu sjúkrahúsanna nema í samræmi við
væntanlega skipulagsáætlun. Mál þessi eru
gengin svo langt í ranga átt, að undir engum
kringumstæðum má gera leiðréttingu erfiðari
en orðið er.
Tillaga XXVII. Aðalfundur Læknafélags Is-
lands haldinn 16.—18. sept. 1971 í Domus
Medica, Reykjavík, lýsir ánægju sinni með
framkomin drög að lögum um heilbrigðisþjón-
ustu, sem félagið hefur fengið til umsagnar, og
telur, að í höfuðdráttum felist i þeim viður-
kenning á margyfirlýstri stefnu L.I. í skipu-
lagningu á heilsugæzlumáium þjóðarinnar.
Félagið fékk drög þessi til umsagnar á sl.
vori og skilaði þá bráðabirgðaáliti til heil-
brigðis- og tryggingamálaráðherra, þar sem
fram kom, að frestur sá, sem gefinn var, hafi
verið of skammur, og vill fundurinn Ieggja
áherzlu á það. Málið hefur síðan verið í hönd-
um stjórnar L.I. og nefndar, sem hún skipaði,
og hefur nefnd sú skilað áliti til fundarins.
Telur fundurinn, að málið sé svo yfirgrips-
mikið og geri ráð fyrir svo miklum breyting-
um á núverandi skipan, að félagið þurfi enn
nokkurn tíma til athugunar á málinu, og ósk-
ar L.í. því að fá tækifæri til þess að koma á
framfæri ábendingum á síðari stigum málsins.
Hins vegar leggur fundurinn áherzlu á, að end-
urskoðun þessa máls verði ekki tafin að nauð-
synjalausu. Fundurinn leggur sérstaka áherzlu
á, að höfð verði áframhaldandi náin samráð
við stéttarsamtök lækna um afgreiðslu máls
þessa. Fundurinn lýsir sig sammála því, sem
kemur fram í nefndaráliti ágústnefndar L.I.,
að landlæknisembættið verði eflt að mun og
teiur varhugavert, að embætti ráðuneytis-
stjóra og embætti landlæknis verði sameinað.
Felur aðalfundurinn stjórn félagsins að
ganga frá skýrslu ágústnefndar L.I. og senda
hana til heilbrigðisstjórnarinnar.