Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.1975, Blaðsíða 92

Læknablaðið - 01.12.1975, Blaðsíða 92
138 LÆKNABLAÐIÐ KAFLAR OR ÁRSSKÝRSLU L.í. ÁRIÐ 1972-1973 Inngangur Skýrsla þessi, sem var flutt af Snorra P. Snorrasyni á aðalfundi L.L 22. ágúst 1973, nær yfír tímabilið frá 24. júní 1972 til 22. ágúst 1973. Gjaldskyldir félagar í L.I. árið 1972 voru 316, þar af 250 í L.R. Innheimta félagsgjalda gekk vel. Aðeins 1 læknir á ógreitt árgjald ársins 1972. Stjórn LæJcnafélags Islands Á aðalfundi L.I., sem haldinn var 24. júní 1972, voru eftirtaldir kjörnir í stjórn: Guðjón Magnússon, Reykjavík, endurkjörinn ritari til 2ja ára, Guðmundur Sigurðsson, Eg- ilsstöðum, kjörinn gjaldkeri til 2ja ára, Snorri P. Snorrason, Reykjavík, formaður, kjörinn í september 1971 til 2ja ára. Úr stjórn gekk Guðmundur Jóhannesson, Reykjavík, gjaldkeri. I varastjórn voru kjörnir:: Guðmundur Jóhannesson, Reykjavik, til 2ja ára, Heimir Bjarnason, Hellu, til 2ja ára. Fyrir í varastjórn var: Brynleifur H. Steingrímsson, Selfossi, kjör- inn í september 1971 til 2ja ára. Bókaðir fundir stjórnar L.I. urðu alls 28, en að auki voru haldnir 5 sameiginlegir fundir með stjórn L.R. Verður hér getir helztu verkefna á liðnu starfsári. I. KAFLI Frá skrifstofunni Rekstur skrifstofunnar hefur runnið í líku fari og undanfarin ár. Skrifstofan veitir nú lögfræðilega aðstoð við gerð heildarkjarasamn- inga lækna og hefur einnig veitt einstökum læknum aðstoð við samningsgerð gagnvart stofnunum. Framkvæmdastjóri læknafélaganna sat aðal- fund svæðafélaganna á Norðurlandi vestra og á Austurlandi. Flutti hann þar yfirlit yfir starfsemi skrifstofunnar og veitti ýmsar upp- lýsingar um félagsleg réttindi lækna. Er þessi þáttur í starfsemi' skrifstofunnar mjög æski- legur til að læknár úti á landi verði ekki af- skiptir, að því er varðar ýmsar upplýsingar um þjónustu félagsins og félagsleg réttindi. Stjórnir félaganna tóku þá ákvörðun á ár- inu að ráða sérstakan mann til að annast dag- lega afgreiðslu sjóða félaganna, og hefur sá maður nú verið ráðinn. Er það Gunnar Sig- urðsson, sem áður hafði verið kaupfélagsstjóri á Hvammstanga í 11 ár. Væntir skrifstofan sér góðs af svo reyndum starfskrafti. Gunnar mun að auki færa allt bókhald skrifstofunnar, en það hefur aukizt stórum að undanförnu, eink- um vegna mikillar aukningar i Lífeyrissjóði lækna, bæði á lánum og meðlimum. Fanney Guðmundsdóttir, sem vann hér á skrifstofunni í rúmt ár og annaðist bókhald félaga og sjóða, hefur látið af störfum. Kann stjórn L.I. henni beztu þakkir fyrir vel unnin störf. Bygging skrifstofuhúsnœöis Það hefur lengi verið rætt innan læknasam- takanna, að skrifstofuhúsnæði það, sem nú er búið við, væri algjörlega ófullnægjandi fyrir starfsemina og að félögin þyrftu sem fyrst að eignast sitt eigið húsnæði. Hafa ýmsir mögu- leikar verið kannaðir, en að lokum var tekin ákvörðun af stjórnum félaganna um að byggja viðbótarbyggingu við Domus Medica í austur- átt. Byggingaframkvæmdir hófust 24. apríl sl. og hefur miðað mjög vel áfram. Viðbótarbygg- ing þessi er um 90m2 að stærð og er á tveim hæðum. Efri hæð er viðbót við salinn í Domus Medica og bætir mjög alla aðstöðu þar til fundahalda og móttöku. Viðbótarbyggingin gerði stækkun eldhússins einnig mögulega, en þar var mjög þröng og erfið starfsaðstaða. Skrifstofa læknafélaganna fær neðri hæðina til umráða. Auk þess fær skrifstofan um 110m2 rými, sem skóverzlun Steinars Waage var áður í og læknafélögin yfirtaka nú. Er þar um eignayfirfærslu að ræða frá Domus Medica til læknafélaganna. L.I. gefur eftir bókaða skuld, sem Domus Medica var í við L.I. að fjárhæð kr. 1. 530.000. Þá yfirtaka læknafélögin skuld, sem Domus Medica var í við Námssjóð lækna að fjárhæð kr. 1.650.000. Hefur stjórn Námssjóðsins sam- þykkt, að skuldaskipti þessi eigi sér stað, og fá læknafélögin að borga skuldina niður á 5 árum. Þá fá félögin viðbótarlán úr Námssjóði lækna að fjárhæð kr. 2.000.000 sem verður til 8 ára. Byggingaframkvæmdum hefur miðað mjög vel áfram, og er salurinn uppi tilbúinn. Á neðri hæðinni er verið að innrétta, og standa vonir til, að hægt verði að flytja inn með skrifstofuhald fyrir miðjan september n.k. Kostnaður við framkvæmdir skiptist þann- ig, að Domus Medica og læknafélögin gera bygginguna sameiginlega fokhelda og frá-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.