Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.12.1975, Page 101

Læknablaðið - 01.12.1975, Page 101
LÆKNABLAÐIÐ 143 12. april 1973 Læknafélag Islands, Domus Medica, Reykjavík. Ráðuneytið hefur móttekið bréí Læknafé- lags Islands, dags. 5. þ.m., þar sem greint er frá ályktun stjórna ýmissa læknafélaga um heilbrigðismál, fjármögnun þeirra og áætlana- gerð á því sviði. Ráðuneytið metur þann skilning, sem í ályktuninni felst, á góðri nýtingu fjármuna til heilbrigðismála. f ályktuninni segir: „Meðan svo er ástatt, þá er það háskaleg stefna að leggja í óhóflegar fjármagnanir á einstökum sviðum heilbrigðisþjónustu og vanrækja samtimis aðra þætti hennar, ekki síður nauðsynlega." Ráðuneytinu er ekki ljóst, hvaða svið heil- brigðisþjónustu hafa verið óhóflega fjármögn- uð samkvæmt þessu og óskar nánari vitneskju um, hvað við er átt í þessum hluta ályktunar- innar. F.h. r. Jón Sigurðsson. Eftirfarandi svarbréf, dags. 7. maí 1973, var sent fjármálaráðuneytinu: 7. maí 1973 Fjármálaráðuneytið, hr. ráðuneytisstjóri Jón Sigurðsson, Arnarhvoli, Reykjavik. Efni: Svar við bréfi dags. 12.OJf. 1973. í ofangreindu bréfi er vitnað í ályktun læknasamtakanna frá 17.03. s.l. og óskað nán- ari skýringar á 3ju mgr. ályktunarinnar. I ályktuninni kemur ekkert frarn um, að til- tekin svið heilbrigðisþjónustu hafi verið óhóf- lega fjármögnuð. Hins vegar er varað við ó- hóflegri fjármögnun á einstökum sviðum og þeirri áskorun beint til viðkomandi yfirvalda, að áætlanir um byggingu geðdeildar Land- spítalans verði teknar til endurskoðunar með framangreind sjónarmið í huga. Hjálagt fylgir fréttatilkynning frá L.í. um sama efni. Virðingarfyllst, Páll Þórðarson, framkv.stj. Hjál.: Fréttatilkynning. 1 aprílmánuði sendi Geðlæknafélagið frá sér tilkynningu til fjölmiðla, þar sem veitzt var að iæknasamtökunum vegna ályktunar formanna- ráðstefnunnar, frá 17. marz. Af því tilefni sendi L.I. frá sér eftirfarandi fréttatilkynn- ingu, dags. 7. mai 1973: Athugasemd frá Lœknafélagi Islands vegna ályktunar Geðlœknafélagsins Geðlæknafélagið hefur sent frá sér tilkynn- ingu, þar sem gefið er í skyn, að læknasam- tökin hafi tekið upp „aðskilnaðár- og misrétt- isstefnu gagnvart geðsjúkum", eins og það er orðað. Tilefni þessara ásakana er ályktun fundar stjórnar Læknafélags Islands með fulltrúum frá aðildarfélögum þess efnis, að gæta verði ýtrustu hagsýni i framkvæmd heilbrigðismála, ef takast á að láta almenning njóta góðs af framförum í læknisfræði, vegna þess að magn og gæði læknisþjónustunnar takmarkist fyrst og fremst af því fjármagni, sem veitt er til framkvæmda í heilbrigðismálum og því verði að gæta þess, að óhæfilega mikil fjármögnun á takmörkuðu sviði heilbrigðismála komi ekki um of niður á öðrum þáttum hennar ekki sið- ur mikilvægum. Ætla mætti, að um þessi at- riði væri ekki skiptar skoðanir meðal lækna, því að víða kreppir skórinn að og mörg brýn verkefni í heilbrigðismálum bíða úrlausnar. Af þeim verkefnum má nefna byggingu heilsu- gæzlustöðva víðs vegar um land, en þær eiga að stuðla að bættri læknisþjónustu, og við þær eru bundnar vonir um, að takast megi að leysa læknaskortinn í strjálbýli. Byggja þarf sjúkradeildir fyrir langlegu- sjúklinga, en á því sviði er sjúkrarúmaskortur einna mestur. Einnig skortir sjúkrarúm fyrir þá sjúklinga, sem á endurhæfingu þurfa að halda. Læknafélag Islands hefur aidrei látið að því liggja, að ekki skorti sjúkrarúm fyrir geð- veika. Hins vegar kemur fram í ályktun fé- iagsins sú skoðun, að við hönnun hins fyrir- hugaða geðspítala á Landspítalalóð hafi ekki verið gætt hagsýni sem skyldi. Þessi skoðun er ekki gripin úr lausu lofti og hefur verið rökstudd meðal annars af kennurum í lækna- deild, bygginganefnd Landspítalans og Lækna- ráði Landspítalans. Þessu til áréttingar skal tekið fram, að stærð fyrirhugaðrar geðdeildar á suðausturhorni Landspítalans er 11860 gólfflatarfermetrar, en það er nokkru stærri bygging en öll nýbygg- ing Landspítalans, og nemur hún nálega 30% af öllum byggingum, sem heimilaðar verða á Landspítalalóð skv. samningi Reykjavíkur- borgar og ríkisins. Stjórn Læknafélags Islands telur því um- mæli geðlæknafélagsins um læknasamtökin ó- makleg og vísar á bug þeirri aðdróttun, sem þar kemur fram, að stjórn samtakanna vilji mismuna hinum ýmsu sjúklingahópum. Vill stjórnin af þessu tilefni taka fram, að hún styður eindregið áform um byggingu 50—60 rúma geðdeildar í byggingasamstæðu Land- spítalans eins og byggingarnefnd Landspítalans og Læknaráð Landspítalans hafa lagt til, enda sé gætt fyllstu hagsýni við byggingu slíkrar deildar í samræmi við aðrar deildir spílalans."
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.