Læknablaðið - 01.12.1975, Qupperneq 101
LÆKNABLAÐIÐ
143
12. april 1973
Læknafélag Islands,
Domus Medica,
Reykjavík.
Ráðuneytið hefur móttekið bréí Læknafé-
lags Islands, dags. 5. þ.m., þar sem greint er
frá ályktun stjórna ýmissa læknafélaga um
heilbrigðismál, fjármögnun þeirra og áætlana-
gerð á því sviði.
Ráðuneytið metur þann skilning, sem í
ályktuninni felst, á góðri nýtingu fjármuna til
heilbrigðismála.
f ályktuninni segir:
„Meðan svo er ástatt, þá er það háskaleg
stefna að leggja í óhóflegar fjármagnanir
á einstökum sviðum heilbrigðisþjónustu og
vanrækja samtimis aðra þætti hennar,
ekki síður nauðsynlega."
Ráðuneytinu er ekki ljóst, hvaða svið heil-
brigðisþjónustu hafa verið óhóflega fjármögn-
uð samkvæmt þessu og óskar nánari vitneskju
um, hvað við er átt í þessum hluta ályktunar-
innar.
F.h. r.
Jón Sigurðsson.
Eftirfarandi svarbréf, dags. 7. maí 1973, var
sent fjármálaráðuneytinu:
7. maí 1973
Fjármálaráðuneytið,
hr. ráðuneytisstjóri
Jón Sigurðsson,
Arnarhvoli,
Reykjavik.
Efni: Svar við bréfi dags. 12.OJf. 1973.
í ofangreindu bréfi er vitnað í ályktun
læknasamtakanna frá 17.03. s.l. og óskað nán-
ari skýringar á 3ju mgr. ályktunarinnar.
I ályktuninni kemur ekkert frarn um, að til-
tekin svið heilbrigðisþjónustu hafi verið óhóf-
lega fjármögnuð. Hins vegar er varað við ó-
hóflegri fjármögnun á einstökum sviðum og
þeirri áskorun beint til viðkomandi yfirvalda,
að áætlanir um byggingu geðdeildar Land-
spítalans verði teknar til endurskoðunar með
framangreind sjónarmið í huga.
Hjálagt fylgir fréttatilkynning frá L.í. um
sama efni.
Virðingarfyllst,
Páll Þórðarson, framkv.stj.
Hjál.: Fréttatilkynning.
1 aprílmánuði sendi Geðlæknafélagið frá sér
tilkynningu til fjölmiðla, þar sem veitzt var að
iæknasamtökunum vegna ályktunar formanna-
ráðstefnunnar, frá 17. marz. Af því tilefni
sendi L.I. frá sér eftirfarandi fréttatilkynn-
ingu, dags. 7. mai 1973:
Athugasemd frá Lœknafélagi Islands vegna
ályktunar Geðlœknafélagsins
Geðlæknafélagið hefur sent frá sér tilkynn-
ingu, þar sem gefið er í skyn, að læknasam-
tökin hafi tekið upp „aðskilnaðár- og misrétt-
isstefnu gagnvart geðsjúkum", eins og það er
orðað.
Tilefni þessara ásakana er ályktun fundar
stjórnar Læknafélags Islands með fulltrúum
frá aðildarfélögum þess efnis, að gæta verði
ýtrustu hagsýni i framkvæmd heilbrigðismála,
ef takast á að láta almenning njóta góðs af
framförum í læknisfræði, vegna þess að magn
og gæði læknisþjónustunnar takmarkist fyrst
og fremst af því fjármagni, sem veitt er til
framkvæmda í heilbrigðismálum og því verði
að gæta þess, að óhæfilega mikil fjármögnun
á takmörkuðu sviði heilbrigðismála komi ekki
um of niður á öðrum þáttum hennar ekki sið-
ur mikilvægum. Ætla mætti, að um þessi at-
riði væri ekki skiptar skoðanir meðal lækna,
því að víða kreppir skórinn að og mörg brýn
verkefni í heilbrigðismálum bíða úrlausnar.
Af þeim verkefnum má nefna byggingu heilsu-
gæzlustöðva víðs vegar um land, en þær eiga
að stuðla að bættri læknisþjónustu, og við þær
eru bundnar vonir um, að takast megi að
leysa læknaskortinn í strjálbýli.
Byggja þarf sjúkradeildir fyrir langlegu-
sjúklinga, en á því sviði er sjúkrarúmaskortur
einna mestur. Einnig skortir sjúkrarúm fyrir
þá sjúklinga, sem á endurhæfingu þurfa að
halda.
Læknafélag Islands hefur aidrei látið að því
liggja, að ekki skorti sjúkrarúm fyrir geð-
veika. Hins vegar kemur fram í ályktun fé-
iagsins sú skoðun, að við hönnun hins fyrir-
hugaða geðspítala á Landspítalalóð hafi ekki
verið gætt hagsýni sem skyldi. Þessi skoðun
er ekki gripin úr lausu lofti og hefur verið
rökstudd meðal annars af kennurum í lækna-
deild, bygginganefnd Landspítalans og Lækna-
ráði Landspítalans.
Þessu til áréttingar skal tekið fram, að stærð
fyrirhugaðrar geðdeildar á suðausturhorni
Landspítalans er 11860 gólfflatarfermetrar, en
það er nokkru stærri bygging en öll nýbygg-
ing Landspítalans, og nemur hún nálega 30%
af öllum byggingum, sem heimilaðar verða á
Landspítalalóð skv. samningi Reykjavíkur-
borgar og ríkisins.
Stjórn Læknafélags Islands telur því um-
mæli geðlæknafélagsins um læknasamtökin ó-
makleg og vísar á bug þeirri aðdróttun, sem
þar kemur fram, að stjórn samtakanna vilji
mismuna hinum ýmsu sjúklingahópum. Vill
stjórnin af þessu tilefni taka fram, að hún
styður eindregið áform um byggingu 50—60
rúma geðdeildar í byggingasamstæðu Land-
spítalans eins og byggingarnefnd Landspítalans
og Læknaráð Landspítalans hafa lagt til, enda
sé gætt fyllstu hagsýni við byggingu slíkrar
deildar í samræmi við aðrar deildir spílalans."