Læknablaðið - 01.12.1975, Síða 104
146
LÆKNABLAÐIÐ
september 1972 World Congress on Medical
Education í Kaupmannahöfn.
Skýrsla um þessa ferð liggur frammi á skrif-
stofunni.
AÖalfundur AlþjóÖasamtaka lceknaféluganna
Arinbjörn Kolbeinsson sat aðalfund Alþjóða-
samtaka læknafélaganna, sem haldinn var í
Amsterdam dagana 17.—21. september 1972.
Erlendir gestir
9. ágúst 1973 kom til landsins skemmtiferða-
skip með rúmlega 100 þýzka lækna. Hafði
skipið hér aðeins dægurviðdvöl, en sigldi síðan
austur um haf.
Að beiðni World Medical Association hlutað-
ist L.I. til um, að Arinbjörn Kolbeinsson
fræddi hina erlendu gesti um heilbrigðismál á
Islandi. Flutti hann erindi með skýringar-
myndum, sem skrifstofa L.I. hafði látið gera.
Erindið í heild liggur frammi á skrifstofu
læknafélaganna.
Nordisk Medicin
Þetta er annað árið, sem L.I. stendur að út-
gáfu Nordisk Medicin. Hefur þátttaka okkar
öll mætt á Baldri Fr. Sigfússyni, sem dvelur
við framhaldsnám í Svíþjóð.
I blaðinu hafa á síðasta ári birzt greinar
eftir íslenzka lækna, svör formanns L.I. við
spurningum blaðsins um stöðu lækna og
læknafélaga og þróun heilbrigðismála og
hringborðsumræður um stjórnun heilbrigðis-
mála, sem m.a. Ólafur Ólafsson, landlæknir
tók þátt í.
Berlega hefur komið i Ijós, að rit þetta er
hið þarfasta og mun stuðla að bættu upplýs-
ingastreymi milli lækna á Norðurlöndum og
bættum samskiptum um heilbrigðismál og fé-
lagsleg efni.
Ritið er sem áður sent læknum þeim að
kostnaðarlausu.
IV. KAFLI
LÆKNABLAÐIÐ, SJÚÐIR OG NEFNDAR-
STÖRF:
Lœknablaöiö
Um síðustu áramót tók Læknablaðið ham-
skiptum. Var broti þess breytt, blaðið saumað
í stað þess að vera heft, og bryddað upp á
ýmsum nýmælum í efnisvali og uppsetningu.
Með hinu nýja broti nýtist blaðsíðurými betur.
Stefnt er að fjölgun tölublaða og hefur ekki
skort efni í blaðið, en vegna tafa í prent-
smiðju hefur útgáfa dregizt.
Prófarkalesari blaðsins, Sverrir Tómasson,
cand. mag, lét af störfum um áramót, en Páll
Ásmundsson, ritstjóri, hefur annazt prófarka-
lestur.
SjóÖir
1. LífeyrissjóÖur lœkna
Við síðustu kjarasamninga sjúkrahúslækna,
þar sem kveðið var á um greiðslur vinnuveit-
enda í Hfeyrissjóði, iókst Lífeyrissjóði lækna
mjög bolmagn, þvi að ákvæði þetta gerði það
að verkum, að yngri læknar sýndu mun meiri
áhuga á inngöngu í sjóðinn heldur en áður
hafði verið.
2. NámssjóÖir
Tveir námssjóðir eru starfandi á vegum
lækna. Annars vegar Námssjóður lækna og
hins vegar Námssjóður sjúkrahúslækna. Aðilar
að Námssjóði sjúkrahúslækna hafa fyrst og
fremst verið læknar í starfi hjá ríkisspitölun-
um, og hefur iðgjald verið 5% fastra launa.
I Námssjóði iækna, sem varðveittur er hjá
Sjúkrasamlagi Reykjavíkur, renna hins vegar
4 Vl> % fastagjalds heimilislækna hér í Reykja-
vík og sama hlutfall fastagjalds sérfræðinga.
Ákvörðun hefur verið tekin af stjórnum
læknafélaganna um sameiningu, og hefur bréf
þar að lútandi verið sent stjórnum beggja sjóð-
anna. Stendur nú á svari frá Námssjóði lækna,
en Námssjóður sjúkrahúslækna hefur fyrir sitt
leyti samþykkt sameiningu.
3. Styrktarsjóöur lækna
Allir starfandi læknar greiða til Styrktar-
sjóðs lækna. Iðgjald þangað er innifalið í ár-
gjaldi til svæðafélaga og til L.I. og er nú kr.
600.00.
Nefndastörf
1. Kjaranefnd L.f.
Þann 29. september 1972 var gerður nýr
samningur milli L.I. og menntamálaráðuneyt-
isins um gjald fyrir heilsuvernd í skólum.
Samningur þessi fól í sér rúmlega 7% grunn-
kaupshækkun á gjaldi frá því sem áður var.
Þá gerði Kjaranefnd L.I. einnig samning við
Tryggingastofnun ríkisins f.h. sjúkrasamlag-
anna á Akranesi, Akureyri, Isafirði og Siglu-
firði um númeragjald til heimilislækna á þeim
stöðum. L.R. er einnig aðili að þessum samningi
f.h. starfandi lækna í Hafnarfirði, Garðahreppi,
Keflavík og Njarðvíkum. Er þetta i fyrsta
skipti, sem númerasamningur þessi er gerður
sameiginlega af báðum félögunum. Samningur
þessi fól í sér sömu grunnkaupshækkun og þá,
sem náðist hjá starfandi heimilislæknum í
Reykjavík. I samningnum eru nýmæli um fast
gjald fyrir vaktir á þrem stöðum, þannig að
ríkissjóður greiðir hluta héraðslæknislauna,
sem síðan skiptist milli vakthafandi lækna.
Framlag ríkissjóðs er sem hér segir: 50% hér-
aðslæknislauna í Hafnarfirði, 70% á Akureyri
og 85% i Keflavík. Vaktir eru reiknaðar 490 á
ári.
2. Laganefnd L.í.
Laganefnd L.l. skilaði áliti s.l. haust og voru
breytingatillögur hennar sendar öllum svæða-
félögum til umsagnar. Hafa nokkrar breyt-
ingatillögur borizt og verða þær teknar fyrir
á aðalfundi í haust. I uppkasti laganefndar er
m.a. lagt til, að stjórn L.I. verði skipuð 7
mönnum.
3. Starfsmatsnefnd L.t.
Starfsmatsnefnd L.I. var fyrst skipuð í samn-