Læknablaðið - 01.12.1975, Síða 108
150
LÆKNABLAÐIÐ
Önnur mál:
Einar Baldvinsson lagði fram tillögu, sem
segir, að aðalfundur L.I. beini þeim tilmælum
til stjórnarinnar að standa vörð um 4. mgr. 3.
gr. i lögum um kjarasamninga opinberra
starfsmanna.
Hann taldi varhugavert að afhenda B.H.M.
samningsrétt okkar, því að nú væru á döfinni
miklar breytingar á því, hverjir teldust til há-
skólamenntaðra manna, t.d. væru kennarar
mjög að færast í þann hóp. Taldi hann hættu
á, að eftir nokkurn tíma stæðum við eins í
B.H.M. og orðið var í B.S.R.B., þegar lækna-
félagið sagði sig úr því 1962.
Guðjón Magnússon sagði, að B.H.M. hefði
verið stofnað til þess að ná fullum samnings-
rétti við ríkið, innifæli þetta verkfallsrétt.
Sagði hann, að lög B.H.M. væru bráðabirgða-
lög eins og þau væru og ekki kæmi til mála að
fá samningsrétt lausráðinna lækna í hendur
B.H.M. Hins vegar yrði að hrökkva eða
stökkva um það, hvort við ætluðum að standa
heilir að aðild okkar í B.H.M. eða ekki. Hann
taldi útilokað að afhenda samningsrétt án þess
að bera það undir alla lækna. Óskaði hann
eftir, að Einar drægi tillögu sína til baka og
bar sjálfur fram tillögu, sem segir, að aðal-
fundur L.I. beini þeim tilmælum til stjórnar
L.I., að fullt samráð verði haft við lausráðna
lækna í þjónustu hins opinbera varðandi sér-
stakan samningsrétt skv. heimild í núgildandi
lögum um kjarasamninga opinberra starfs-
manna.
Tillaga Einars Baldvinssonar, var samþykkt
með 5 atkvæðum gegn 4. Þá bar fundarstjóri
upp tillögu Guðjóns Magnússonar, sem var
samþykkt samhljóða.
Formaður Snorri P. Snorrason þakkaði Páli
Þórðarsyni, framkvæmdastjóra, hans ágæta
starf, sem valdið hefði algjörum þáttaskilum í
starfsemi læknafélaganna, sem hann taldi með
meiri blóma en nokkru sinni áður.
Þá bauð hann F.Í.L.B. sérstaklega velkomið
í félagið, þakkaði fulltrúum fundarsetu, óskaði
góðrar heimferðar og sleit fundi.