Læknablaðið - 15.09.1994, Blaðsíða 5
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
281
Forsíða: Utan hrings og innan nr. 3,
1970 eftir Vilhjálm Bergsson.
© Vilhjálmur Bergsson/MYNDSTEF.
Olía.
Stærð: 94x90.
Eigandi: Listasafn íslands.
Ljósm.: Kristján Pétur Guðnason.
Frágangur fræðilegra
greina
Upplýsingar um ritun fræðilegra
greina er að finna í Fréttabréfí lækna
7/94.
Stutt samantekt
Handriti skal skilað með tvöföldu
línubili á A4 blöð með 40 mm spássíu
vinstra megin. Hver hluti handrits
skal byrja á nýrri blaðsíðu í eftirtal-
inni röð:
Titilsíða
Ágrip og nafn greinar á ensku
Ágrip
Meginmál
Þakkir
Heimildir
Töflur: Hver tafla með titli og neð-
anmáli á sér blaðsíðu
Myndatextar
Myndir eða gröf verða að vera vel
unnin á ljósmyndapappír (glossy
prints) eða prentuð með leysiprent-
ara.
Sendið frumrit og tvö afrit af grein-
inni og öliu er henni fylgir (þar á með-
al myndum) til ritstjórnar Lækna-
blaðsins, Hlíðasmára 8, 200 Kópa-
vogur. Greininni þarf að fylgja bréf
þar sem lýst er yfir af hálfu þess höf-
undar sem annast bréfaskipti að allir
höfundar séu lokaformi greinar sam-
þykkir og þeir afsali sér birtingarrétti
(copyright) til blaðsins.
Umræða og fréttir
Heilsugæsla í Biombo héraðinu í Gíneu-Bissá:
Geir Gunnlaugsson ......................... 326
íðorðasafn lækna 57:
Jóhann Heiðar Jóhannsson................... 333
Heilsugæslustöð eða háskólaklíník:
Guðmundur Helgi Þórðarson.................. 334
Eftirritunarskyld lyf:
Ólafur Ólafsson ......................... 335
Tryggingafréttir........................... 338
Tillögur um vísindasiðanefnd og Siðaráð
landlæknis:
Frá landlæknisembættinu ................. 339
Handareining á vegum slysa- og
bæklunarlækningadeildar Borgarspítalans:
Magnús Páll Albertsson .................. 339
Okkar á milli ............................. 340
Stöðuauglýsingar........................... 341
Fundaauglýsingar .......................... 344
Ráðstefnur og fundir ...................... 346
Segavarnir
Blóðsegamyndun í aðgerðum og í kjölfar þeirra er vel þekkt
fyrirbrigði. Tíðni er mismunandi eftir aðgerðum og ástandi
sjúklingsins. Talið er að hæsta tíðnin sé við liðskiptaaðgerðir,
til dæmis á mjöðmum. Rek til lungna er alvarlegasti fylgikvilli
þessara blóðsega og getur orðið sjúklingum að aldurtila. Á
undanförnum árum hafa komið upplýsingar um segavarnir í
sambandi við skurðaðgerðir og hafa ábendingar verið að skýr-
ast. Á handlækningadeild Landspítalans var segavarnarmeð-
ferð beitt í sambandi við skurðaðgerðir en engin ákveðin stefna
var þó mörkuð. Undirritaður vann að því að setja á fót vinnu-
hóp um segavarnir og var stjórnandi þeirrar vinnu Páll Torfi
Önundarson. en með honum í hópnum voru Halldór Baldurs-
son bæklunarskurðlæknir, Halldór Jóhannsson yfirlæknir á
handlækningadeild og Þorsteinn Svörfuður Stefánsson yfir-
læknir á gjörgæsludeild. Þessi hópur vann síðan greinargerð og
hefur Páll Torfi skrifað yfirlitsgrein um segavarnir og birtist
hún í þessu blaði.
Niðurstaða vinnuhópsins koma skýrt fram í greininni og hafa
þessar leiðbeiningar verið teknar í notkun á handlækninga-
deild Landspítalans.
Jónas Magnússon prófessor