Læknablaðið - 15.09.1994, Qupperneq 7
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
283
Oxford árið 1992 og nefndu eftir Cochrane,
The Cochrane Collaboration. Reynslan hefur
sýnt að gagnabankar svo sem MEDLINE gefa
ekki nægilegar upplýsingar (5,6) og því verða
tengiliðir eða áhugamenn um allan heim að
fara kerfisbundið yfir ákveðin efni og safna í
þennan gagnagrunn. Þar er einnig reynt að
safna saman óbirtum rannsóknum eða þeim
sem sýnt hafa neikvæðar niðurstöður. Það varð
fljótlega ljóst að nauðsynlegt var að stofna víð-
tækara samstarfsnet af þessu tagi og opnaðar
hafa verið skrifstofur í Kanada, Ástralíu og
víðar. Þann 13. október árið 1993 var síðan
komið á laggirnar norrænni deild á þessu sviði,
The Nordic Cochrane Centre í Kaupmanna-
höfn (7) og veitir læknirinn Peter C. Gptzsche
henni forstöðu. Tengiliðir við þessa stofnun á
Norðurlöndunum hafa gert grein fyrir þessu
mikilvæga framtaki hver í sínu landi (7-10) og
undirritaður fyrir íslands hönd. Auk þess að
efla og endurnýja stöðugt gagnabankana í klín-
ískum rannsóknum er hlutverk þessa sam-
starfsnets einnig að stuðla að því að koma vel
staðfestum rannsóknarniðurstöðum á framfæri
við heilbrigðisyfirvöld. í framtíðinni mun því
verða farið yfir allar íslenskar rannsóknir sem
falla innan þessa ramma og upplýsingar um
þær, svo sem ágrip á ensku, ljósrit af töflum og
myndum, sendar til okkar manna í Kaup-
mannahöfn. Ég vona að íslensk starfssystkin
sýni þessu máli áhuga, en vænta má að rann-
sóknir með „meta-analýsu“ aðferðum verði
vinsælar á næstu árum og skili okkur dýrmæt-
um upplýsingum sem koma sjúklingum og
skattgreiðendum að verulegu gagni.
Jóhann Ág. Sigurðsson
HEIMILDIR
1. Altman DG. The scandal of poor medical research. We
need less research, better research, and research done
for the right reasons. BMJ 1994; 308: 283-4.
2. Antman EM, Lau J, Kupelnick B, Mosteller F, Chal-
mers TC. A comparison of results of meta-analyses of
randomized control trials and recommendations of clin-
ical experts. Treatments for myocardial infarction.
JAMA 1992; 268; 240-8.
3. Cochrane AL. Effectiveness and Efficiency: Random
Reflections on Health Services. London: Nuffield Pro-
vincial Hospitals Trust, 1972.
4. Cochrane AL. 1931-1971: a critical review, with partic-
ular reference to the medical profession. In: Medicines
for the year 2000. London: Office of Health Economics,
1979: 1-11.
5. Chalmers I, Dickersin K, Chalmers TC. Getting to grips
with Archie Cochrane’s agenda. All randomised con-
trolled trials should be registered and reported. BMJ
1992; 305: 786-8.
6. Silagy C. Developing a register of randomised con-
trolled trials in primary care. BMJ 1993; 306: 897-900.
7. Krag E. Metaanalyser: Nye krav til klinikeren. Dan-
mark pá en central position i det internationale Co-
chrane-samarbejde. Ugeskr Læger 1994: 156: 14-5.
8. Bjprndal A. Vilke av de helsetjenster vi tilbyr, er effek-
tive? Tidskr Nor Lægeforen 1993; 113: 3669-70.
9. Werkö L. Kliniska studier i nya databaser. Norden in i
Cochrane-natverket. Lakartidningen 1994: 91: 837-8.
10. Gptzsche PC. Metaanalyser: metodologiske og for-
skningsetiske overvejelser. Bibliotek for Læger 1993;
185: 17-29.