Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.09.1994, Side 35

Læknablaðið - 15.09.1994, Side 35
MÓNÍT-L (ísósorbíð mónónítrat) -forðalyf við hjartaöng einu sinni á dag. Mónít-L (ísósorbíö mónónítrat) Framleiöandi: OMEGA FARMA hf.. Kársnesbraut 108, 200 Kópavogur. Foróahylki; C 01 D A 14. Hvert foröahylki inniheldur: Isosorbidi mononitras INN 30 mg eða 60 mg. Eiginleikar: Ísósorbíð mónónítrat er virkt umbrotsefni ísósorbíð dínítrats. Það slakar á sléttum vöðvum æða, aðallega í bláæðum, minnkar þannig flæði til hjartans og þar meö hjartastærö og auðveldar samdrátt hjartans. Lyfið hefur einnig bein útvíkkandi áhrif á kransæðarnar. Aðgengi lyfsins er um 90%. Blóðþéttni nær hámarki eftir 3-4 klst. og eftir 12 klst. er þéttni ekki svo mikil að þol myndist. Helmingunartími er 4-8 klst. Umbrotnar í lifrinni og niðurbrotsefni útskiljast í þvagi. Áhrif lyfsins vara í um 12 klst. Ábendingar: Hjartaöng, til að koma í veg fyrir verk. Frábcndingar: Lágur blóöþrýstingur, sérstaklega eftir hjartadrep. Mikið blóðleysi. Aukinn þrýstingur í miötaugakerfi. Slagæðasjúkdómur í heila. Ofnæmi fyrir nítrötum. Meöganga og brjóstagjöf: Öryggi lyfsins á meðgöngu og við brjóstagjöf hefur ekki verið staðfest. Aukavcrkanir: Höfuðverkur. Æðasláttur og roði. Lágur blóðþrýstingur. Svimi. Yfirlið. Hraður hjartsláttur. Uppköst. Milliverkanir: Áfengi getur aukið blóðþrýstingslækkandi áhrif lyfsins. Varúó: Við brátt hjartadrep á aöeins að nota lyfið undir mjög nákvæmu eftirliti. Skammtastæröir handa fullorónum: í upphafi meðferðar er ráðlagöur skammtur 30 mg á dag. Venjulegur skammtur er 60 mg á dag, gefið að morgni. Ef þörf krefur má auka skammt í 120 mg á dag sem taka skal í einum skammti að morgni. Vegna hættu á myndun þols viö langvarandi notkun nítrata er óráólcgt aö nota nítröt samfleytt mcira en 12 klst. í hvcrjum sólarhring. Lyfió er ekki ætlaö börnum. Pakkningar: Foröahylki 30 mg: 30 stk.; 100 stk. Foróahylki 60 mg: 30 stk.; 100 stk. o OMEGA FARMA íslenskt almenningshlutafélag um lyfjaframleióslu, stofnaö 1990

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.