Læknablaðið - 15.09.1994, Blaðsíða 35
MÓNÍT-L
(ísósorbíð mónónítrat)
-forðalyf við hjartaöng einu sinni á dag.
Mónít-L (ísósorbíö mónónítrat)
Framleiöandi: OMEGA FARMA hf.. Kársnesbraut 108, 200 Kópavogur.
Foróahylki; C 01 D A 14. Hvert foröahylki inniheldur: Isosorbidi mononitras
INN 30 mg eða 60 mg. Eiginleikar: Ísósorbíð mónónítrat er virkt umbrotsefni
ísósorbíð dínítrats. Það slakar á sléttum vöðvum æða, aðallega í bláæðum, minnkar
þannig flæði til hjartans og þar meö hjartastærö og auðveldar samdrátt hjartans. Lyfið
hefur einnig bein útvíkkandi áhrif á kransæðarnar. Aðgengi lyfsins er um 90%.
Blóðþéttni nær hámarki eftir 3-4 klst. og eftir 12 klst. er þéttni ekki svo mikil að þol
myndist. Helmingunartími er 4-8 klst. Umbrotnar í lifrinni og niðurbrotsefni útskiljast í
þvagi. Áhrif lyfsins vara í um 12 klst. Ábendingar: Hjartaöng, til að koma í veg fyrir
verk. Frábcndingar: Lágur blóöþrýstingur, sérstaklega eftir hjartadrep. Mikið
blóðleysi. Aukinn þrýstingur í miötaugakerfi. Slagæðasjúkdómur í heila. Ofnæmi fyrir
nítrötum. Meöganga og brjóstagjöf: Öryggi lyfsins á meðgöngu og við brjóstagjöf
hefur ekki verið staðfest. Aukavcrkanir: Höfuðverkur. Æðasláttur og roði. Lágur
blóðþrýstingur. Svimi. Yfirlið. Hraður hjartsláttur. Uppköst. Milliverkanir: Áfengi
getur aukið blóðþrýstingslækkandi áhrif lyfsins. Varúó: Við brátt hjartadrep á aöeins
að nota lyfið undir mjög nákvæmu eftirliti. Skammtastæröir handa fullorónum:
í upphafi meðferðar er ráðlagöur skammtur 30 mg á dag. Venjulegur skammtur er 60
mg á dag, gefið að morgni. Ef þörf krefur má auka skammt í 120 mg á dag sem taka
skal í einum skammti að morgni. Vegna hættu á myndun þols viö
langvarandi notkun nítrata er óráólcgt aö nota nítröt samfleytt mcira
en 12 klst. í hvcrjum sólarhring. Lyfió er ekki ætlaö börnum.
Pakkningar:
Foröahylki 30 mg: 30 stk.; 100 stk.
Foróahylki 60 mg: 30 stk.; 100 stk.
o
OMEGA FARMA
íslenskt almenningshlutafélag
um lyfjaframleióslu, stofnaö 1990