Læknablaðið - 15.09.1994, Blaðsíða 60
328
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
Hjúkrunarfrœðingarnir eru áhugasamir uin tölvur. Hér eru Ansumany, Armindo, Inácio og Joséað œfa
gnmdvallaratriði tölvunotkunar.
raunir í Gabúhéraðinu með að
krefja greiðslu fyrir allar heim-
sóknir og er krafist borgunar
eftir því hver sjúkdómurinn er.
Gengur þessi stefna undir nafn-
inu Bamako framtakið (Iniciat-
iva de Bamako) og á það rætur
að rekja til þings Afríkudeildar
Alþjóðaheilbrigðisstofnunar-
innar í Bamako í Mali árið 1987.
Má með sanni segja að upphæð-
irnar séu lágar á okkar mæli-
kvarða en í þorpum þar sem
hverjum aur er velt fyrir sér
verður slíkur kostnaður mörg-
um erfiður í skauti. Er því vand-
rataður meðalvegurinn. Opin-
ber stefna stjórnvalda hér í
landi, studd af Alþjóðaheil-
brigðisstofnuninni og Barna-
hjálp Sameinuðu þjóðanna, er
nú að byrja með slíkt greiðslu-
kerfi í öllu landinu. í fram-
kvæmd þýðir þetta að sjálfstæði
heilsugæslustöðvanna eykst
verulega, til dæmis hvað snertir
innkaup á lyfjum, viðhald
stöðvarinnar og laun starfs-
manna. Hér í Biombo erum við
ekki komin af stað ennþá enda
mörg ljón í veginum, svo sem
mikið ólæsi og lítil reynsla af ná-
kvæmu bókhaldi yfir lyf og pen-
ingagreiðslur.
Ekki er hægt að ljúka lýsingu
á heilsugæslu Biombo sýslunnar
án þess að nefna hina hefð-
bundnu læknisfræði sem er
mjög stunduð í þorpunum. Má
öruggt telja að margir þeirra, ef
ekki flestir, sem koma til heilsu-
gæslustöðvanna leiti einnig til
sinna eigin skottulækna eins og
við köllum þá samkvæmt ís-
lenskum lagabálki. Er aðdrátta-
rafl slíkra lækna mikið og hér í
nágrenninu er sjúkrahús eitt
með legupláss fyrir um 100
manns rekið af slíkum skottu-
lækni. Er árangurinn augljós-
lega góður þar sem hann hefur
starfað hér í yfir 20 ár og að-
sóknin góð, einnig af Evrópu-
mönnum.
Læknisstarf í Biombo
Hverju getur barnalæknir,
eins og undirritaður, komið til
leiðar við slíkar aðstæður? Pað
er sjálfsagt öllum augljóst sem
lesa þetta greinarkorn að málið
snýst ekki beint um það að sitja í
fremstu víglínu sem læknir og
sinna sjúkum. Læknar sem
starfa við slíkar aðstæður kom-
ast fljótt að raun um hversu
mikil hópvinna heilsugæslu-
starfið í raun og veru er. Hver
hlekkur er mikilvægur til að ár-
angur náist og hann verður
aldrei betri en veikasti hlekkur-
inn. Því snýst starf okkar lækn-
anna tveggja í héraðinu mest
um það að skipuleggja starfsem-
ina á heilsugæslustöðvunum.
Þetta er gert með reglulegum
heimsóknum á heilsugæslu-
stöðvarnar og með námskeið-