Læknablaðið - 15.09.1994, Blaðsíða 65
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
333
íðorðasafn lækna 57
Type, typus
Ensk-ameríska heitið type er
talið komið úr grísku, af typos
sem þýða má á nokkra mismun-
andi vegu, til dæmis sem fyrir-
mynd, mark, merki eða mót. I
latínu má reyndar finna heitið
typus sem þýtt hefur verið með
orðunum ^erð, tákn, mynd eða
ímynd. í Iðorðasafni lækna má
finna eftirfarandi skýringu á
type: gerð. Sameindir, bakter-
íur, frumur og vefir sem hafa
sameiginleg einkenni. Dæmin,
sem þar eru tekin um notkun
type í læknisfræðilegum heit-
um, eru tvær gerðir lungna-
blöðrufrumna, type I og type II
cell, og sex gerðir glýkógen-
kvilla, type I-VI, en ofangreind
þýðing á type er þó ekki notuð í
þessum dæmum. í fljótu bragði
tókst undirrituðum ekki að
finna önnur dæmi í íðorðasafn-
inu um notkun type í samsettum
heitum, ef frá er talið heitið
karyotype. Par hefur reyndar
farið svo að erlenda heitið hefur
verið þýtt beint samkvæmt orð-
hlutum, kjarnagerð, en ekki
tekið tillit til þeirra íslensku
heita sem komin voru í notkun,
litningamynd og litningagerð.
Til útskýringar skal það nefnt
að karyotype er notað á tvo
vegu, annars vegar sem heiti á
nákvæmum uppdrætti eða
mynd af litningum manns eða
dýrs og hins vegar sem heiti á
lýsingu á byggingu og fjölda
litninganna í ákveðnu tilviki.
Sem dæmi má nefna að eðlilegir
litningar karlmanns (the normal
male chromosomes) eru tákn-
aðir með stöfunum 46,XY, sem
er táknleg lýsing á litningagerð
hans. Mynd af eðlilegum eða af-
brigðilegum litningum, teikni-
mynd eða ljósmynd, nefnist ein-
faldlega litningamynd. Litning-
arnir eru vissulega staðsettir í
frumukjarnanum, en heitið
kjarnagerð er ekki heppilegt
þegar eingöngu er verið að lýsa
þeim.
Typus
Sem sérstakt uppflettiorð í
íðorðasafni lækna finnst latn-
eska heitið typus eingöngu í
samsetningunni typus sanguin-
is, blóðflokkur. í nýrri þýðingu
á fósturfræðinni (nomina embr-
yologica), sem gefin verður út á
næstunni, kemur heitið typus
meðal annars fyrir í samsetning-
unni typus dysmorphicus, rang-
formunargerð, það er að segja
tegund vansköpunar. Eflaust
má líta svo á að enska heitið
type og latneska heitið typos
séu samheiti. í læknisfræðiorða-
bók Stedman’s eru fleiri dæmi
um notkun type í samsetning-
um, svo sem blood type og pers-
onality type. Hefð er fyrir heit-
inu blóðflokkur, en undirrituð-
um er ekki kunnugt um það
hvort slíkt á einnig við um pers-
ónuleikagerð.
Typing
í orðabók Stedman’s er einn-
ig að finna typing, sem er lýst
þannig: Flokkun samkvæmt
gerð (classification according to
type). Typing er ekki sérstakt
uppflettiorð í íðorðasafni
lækna, en kemur meðal annars
fyrir í samsetningunni blood
typing, sem er samheiti við að-
alheitið blood grouping, blóð-
flokkun. Par er einnig komin á
föst hefð. Sama má segja um
tissue typing, vefjaflokkun, sem
ekki finnst þó í íðorðasafninu.
Karyotyping er heiti á þeirri að-
gerð, að rannsaka og greina
fjölda og byggingu litninganna
með skoðun í smásjá eða á smá-
sjármynd, og nefnist litninga-
greining. Þessi heiti þarf að taka
inn í íðorðasafn lækna.
Group
Síðasta flokkunarheitið, sem
undirritaður vildi taka til um-
fjöllunar í þetta sinnið, er
group. Það finnst ekki sem sér-
stakt uppflettiorð í íðorðasafn-
inu, en kemur meðal annars
fyrir í samsetningunum: Blood
group, blóðflokkur; control
group, samanburðarhópur og
symptom group, einkennaheild.
í fyrrgreindri orðabók Sted-
man’s er heitið skilgreint sem
hópur líkra eða skyldra hluta.
Fleiri samsetningar má nefna,
svo sem elemental group, frum-
efnahóp; group medicine,
hópstarf lækna; group therapy,
hópmeðferð; muscle group,
vöðvahóp og therapeutic
group, meðferðarhóp.
Undirritaður óskar eftir
ábendingum frá lesendum um
fleiri orð og heiti sem varða
flokkun eða röðun í hópa, sem
þýða þarf eða taka til samræm-
ingar, og ættu heima í íðorða-
safni lækna.
Jóhann Heiðar Jóhannsson