Læknablaðið - 15.09.1994, Page 66
334
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
Heilsugæslustöð eða
háskólaklíník
Nýlega var auglýst staða
heilsugæslulæknis við Heilsu-
gæslustöðina Sólvangi. Þessi
auglýsing hefur orðið mér um-
hugsunarefni, og við lestur
hennar hafa rifjast upp fyrir mér
innanhússumræður, sem áttu
sér nokkrum sinnum stað, með-
an ég var starfandi á þessari
stöð, þar sem rætt var um
mönnun á stöðinni.
I áðurnefndri auglýsingu er
tekið fram, hvaða kostum um-
sækjandi skuli búinn, og þa$,
gefur væntanlega til kynna hvað
hann skuli aðhafast þegar hann
er kominn í stöðuna. Þar stend-
ur meðal annars „ Vegna kennslu
og ránnsóknarskyldu á vegum
Háskóla Islands, eru kenitsla og
vísindastörf mikilvœgir þœttir
starfsins.“ Og ennfremur:
„Lögð er áliersla á reynslu við
rannsóknastörf'.
Þarna er verið að segja, að
þessi læknir skuli taka að sér
vinnu fyrir Háskóla íslands, það
er að umtalsverðum hluta af
vinnutíma hans skuli varið til
annars en annast heimilislækn-
ingar fyrir Hafnfirðinga. Það er
því spurning, hvort Háskóli Is-
lands hefði ekki átt að auglýsa
þessa stöðu. Það er líka spurn-
ing, hvort allir læknar stöðvar-
innar hafi sömu skyldum að
gegna gagnvart Háskóla Is-
lands. Og hvað um annað starfs-
fólk? Ég veit ekki til að þetta
gildi um heilsugæslulækna á
öðrum stöðvum.
Félag íslenskra heimilislækna
hefur gefið út svokallaðan stað-
al fyrir heilsugæslustöðvar þar
sem settar eru fram kröfur stétt-
arinnar um mönnun og aðbún-
að á heilsugæslustöðvum. Sam-
kvæmt þessum staðli telst það
hæfilegt að hver heimilislæknir
annist 1500 manns, ef hann sér
jafnframt um heilsuvernd fyrir
hópinn. Þar sem læknir gegnir
jafnframt vaktþjónustu „erjafn-
an gert ráð fyrir fœrri einstakl-
ingum á livern lœkni.“
í ráðherratíð Guðmundar
Bjarnasonar fyrrverandi heil-
brigðisráðherra var það yfirlýst
stefna heilbrigðisráðuneytisins
að þetta ákvæði um 1500 manns
á lækni skyldi gilda, og ég veit
ekki annað en að þetta sé enn
stefna ráðuneytisins.
í ársskýrslu Heilsugæslu-
stöðvarinnar Sólvangi fyrir árið
1992 kemur fram, að íbúatala á
upptökusvæði stöðvarinnar það
ár var 17.238 manns. Það er vit-
að að íbúum fer fjölgandi á
þessu svæði, svo að það er vægt
áætlað að þeir séu nú 18.000. Ef
miðað er við staðal FÍH ættu því
12 heilsugæslulæknar að vinna
við þessa stöð og raunar fleiri,
þar sem læknar stöðvarinnar
sinna vöktum að einhverju
leyti. Hins vegar eru nú einung-
is sjö heilsugæslulæknar starf-
andi við stöðina, en auk þess
sérfræðingur í barnalækningum
í hálfu starfi og prófessor í hálfu
starfi sem heimilislæknir auk
þess að vera prófessor í fullu
starfi. Það máþvísegjaaðþarna
séu átta læknisstöður þegar allt
hefur verið talið með og vantar
þá að minnsta kosti fjögur
stöðugildi til að stöðin sé full-
skipuð læknum samkvæmt
staðli FÍH og ráðuneytisins.
Þessi heilsugæslustöð er því
stórlega vanmönnuð til að sinna
almennum heimilislækningum á
svæðinu, þó ekki sé bætt á hana
verkefnum. Við þessar aðstæð-
ur kemur svo Háskóli Islands
inn á stöðina og krefur hana um
þjónustu umfram það sem tíðk-
ast á öðrum heilsugæslustöðv-
um, svo sem kennslu og rann-
sóknir án þess að sjá fyrir aukn-
um vinnukrafti til að sinna
þessum auknu verkefnum. Það
hlýtur að liggja í augum uppi að
með þessu er háskólinn að
íþyngja stöðinni sem þjónustu-
stöð fyrir Hafnfirðinga, taka frá
henni vinnuafl og nýta í sína
þágu.
Þegar þess er gætt að það
gildismat virðist vera ríkjandi
um þessar mundir að meira sé
lagt upp úr hlutum eins og rann-
sóknum, svokölluðum vísinda-
störfum, ráðstefnusetum og
kennslu en daglegu starfi við
lækningar er mikil hætta á að
hið daglega læknisstarf verði út-
undan þegar þetta tvennt togast
á um tíma læknisins. Hér er
spurning um áherslur því allt er
þetta nauðsynlegt innan vissra
marka.
I ársskýrslu Heilsugæslu-
stöðvarinnar Sólvangi er það
talið samviskusamlega fram,
hvað hver og einn hefur setið á
mörgum ráðstefnum, hve marg-
ar greinar hann hefur skrifað
eða verið með í og fleira í þeim
dúr. Það er hins vegar ekki tek-
ið fram, hve mörgum stundum
menn hafa skilað í klínískri
vinnu inni á stöðinni. Með hlið-
sjón af því, sem að framan er
sagt er þó fyllilega ástæða til að
huga að því. Ef þáttur háskól-
ans bólgnar út án þess að séð sé