Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.05.1995, Qupperneq 8

Læknablaðið - 15.05.1995, Qupperneq 8
384 LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 ferð veikinda að leitast við að draga úr kvíða og vonleysi, sem má fyrst reyna með viðtölum, því næst með lyfjum. Kvíði getur hækkað blóð- þrýsting og blóðsykur, aukið útskilnað á maga- sýrum og framkallað hjartabilun eða jafnvel banvæna hjartaóreglu. Geðlægð getur veikt ónæmiskerfi líkamans og að líkindum dregið úr mótstöðu þess gegn sýkingum og æxlismynd- unum. Þýðingarmikið er að meðhöndla geð- lægð eftir föngum, með þeim ráðum sem tiltæk eru hverju sinni. Vonin er læknisdómur sem seint verður ofmetinn, mektugt lyf, en má allt um það ekki vera byggð á fölskum forsendum. Þó er oftast hægt að veita sjúklingum nokkra von, ef ekki til langframa þá til skamms tíma, ef ekki um bata á sjúkdómum og meinsemdum þá um linun á óþægindum og þjáningum af völdum þeirra. Heppilegt er að læknirinn nálgist sjúklinginn án dæmandi viðhorfs gagnvart honum og temji sér umburðarlyndi andspænis ruglingslegri frá- sögn hans, tvískinnungi, óvissu og streitu í fari hans. Til viðbótar læknisfræðilegri þekkingu læknisins styrkir það hann að hafa góð tök á sálrænum og félagslegum þáttum í umgengni við aðra og látlausa framkomu. Ekki er minnst um það vert fyrir lækninn að hlusta af áhuga og með athygli á það sem sjúklingurinn er að segja. Fátt er sjúklingnum eins ofarlega í huga og sjúkdómur hans. Því er mikils vert að lækn- irinn láti sjúklingnum í té upplýsingar og út- skýringar á eðli sjúkdómsins, orsökum hans, gangi og horfum. Stundum þegar um er að ræða illkynja mein mætti þó upplýsingaþáttur læknisins snúast upp í eftirgrennslan hans um það hversu mikið sjúklingurinn vill í raun og veru fá að vita um sjúkdóm sinn. Ekki er vert að þröngva vitneskju um banvænan sjúkdóm upp á hann nema í tilfellum alnæmis eða þeirra krabbameina sem opinbera sig sjálf sjúklingn- um eða hann vilji ótvírætt vita um örlög sín. Allt breytist og orð Hávamála eiga sér nú ekki oftlega stað; „örlögsín / viti engifyrir, /þeim er sorgalausastr sefi. “ Góð samskipti læknis við sjúklinga eru ávallt nauðsynleg hvort heldur sem um er að ræða sjúkdóma sem eru vægir eða þungir, skammvinnir eða langvinnir, lækn- anlegir eða ólæknandi, hjaðnanlegir eða ban- vænir. Segja má að í þeim samskiptum sé listin í læknisfræði fólgin og verði svo alla tíð. Haft er eftir Vilmundi Jónssyni að læknar væru dekurbörn samfélagsins. Ekki verður sagt að það gildi nú orðið svo harðsótt sem læknisnámið er og svo ábyrgðarmikið sem læknisstarfið er. Hins vegar má láta þau orð falla að læknar séu forréttindastétt ekki svo mjög í launakjörum sínum eins og í samskipt- um sínum við sjúklinga í glímu sinni við þá og sjúkdóma þeirra þar sem skiptast á sigrar og ósigrar, árangur og vonbrigði. En fáir læknar sem annast sjúklinga rnunu kjósa að hverfa úr vinnu eða skipta um starf. Það segir sína sögu um læknisstarfið. Heilladrýgstu laun læknisins munu vera kynni hans af fólki í öllum þess fjölbreytileika og margvíslegum tjáningum, hlutdeild hans í tilveru og örlögum þess og reynsla hans af eðli lífsins, dýpt þess og leynd- ardómum. Þau laun eru lækninum ekki lítils virði á leið hans í starfi og lífi frá unga aldri til elliára. Ólafur Sigurðsson fyrrverandi yfirlæknir Akureyri HEIMILDIR 1. Jónsson V. Læknar á Islandi. Reykjavík: ísafoldarprent- smiðja hf, 1970; bd. I: 77-9. 2. Thomas L. The Youngest Science. Notes of a Medicine Watcher. New York: The Viking Press, 1983: 20. 3. Blum RH. The Management of The Doctor-Patient Rela- tionship. New York: The McGraw-Hill Book Company Inc, 1960: 105, 253. 4. Zinn W. The Empathic Physician. Ann Intern Med 1993: 153, 306-12. 5. Vilhjálmsson B. Orð eins og forðum. Reykjavík: Útg. Hafsteinn Guðmundsson, 1985: 54.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.