Læknablaðið - 15.01.1996, Blaðsíða 117
Varstu búinn að sjá
[jiawr
auglýsinguna?
nemandann sjálfan, eða fjöl-
skylduna. Sonurinn valdi að
skrifa um þessa háskaför föður
síns. Eftir að kennarinn hafði
lesið ritsmíð sonarins, tók hann
piltinn afsíðis og sagði við hann
með föðurlegri umvöndun, að
svona bull mætti maður aldrei
skrifa. Drengurinn kom heim
niðurdreginn og reiður. En til
þess að sanna mál sitt fór hann á
afgreiðslu Morgunblaðsins og
fékk þetta blað gefins.
Ég fetaði í fótspor hans og
fékk ljósrit af fréttinni. Fréttari-
tarinn telur skriðuna vera 20
metra en hengiflugið 30 metra.
Er það trúlega hið rétta. Séu 30
metrar hið rétta, samsvarar það
10 hæða húsi. Að skriðunni við-
bættri, en þar er hvergi hægt að
fóta sig, er hæð Króksbjargs sú
sama og turn Borgarspítalans
(50 m).
Fleirum en kennaranum þyk-
ir sagan vera ótrúleg. En skýr-
ing er til á flestu sem gerist.
Þennan dag var glaða sólskin og
Þór Haildórsson.
hiti eins og ég hef áður minnst á.
Það er ástæðan fyrir því að mér
hefur verið svo tíðrætt um veðr-
ið. Tómas R. Jónsson skrif-
stofustjóri, sem þá átti heima á
Blönduósi en sleit barnsskónum
á Króki, sem Króksbjarg er
kennt við, seig til eggjatöku í
bjargið á yngri árum sínum.
Hann sagði mér að uppstreymi
lofts gæti orðið mjög mikið við
svona aðstæður, svo mikið „að
við lægi að maður fyki upp eftir
bjarginu“, eins og hann orðaði
það. Enda sést hversu hratt
fuglar hefjast upp, án þess að
blaka væng. Er því líklegt að
drengurinn hafi svifið í loftinu
eftir að hann steyptist fram af
brúninni þegar skriðunni
sleppti og fallið mjög hægt í
uppstreyminu. Hefur hið raun-
verulega fall því ekki verið
nema lítill hluti af þessum 30
metrum. Eftir brotunum að
dæma, má ætla að hann hafi
komið niður á fjórar fætur og
líklegt að hann hafi lent í sand-
inum á milli steinanna, þar sem
við komun að honum. Ég man
ekki til þess að ég hafi þakkað
Þór mikilsverða hjálp þennan
dag, talið hana vera svo sjálf-
sagða. Þótt seint sé geri ég það
nú.