Læknablaðið - 15.01.1996, Blaðsíða 115
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
91
Hörmutegt slys á Skaga:
Tólf ára drengur
hrapar 50 metra
Eftir þrjár klukkustundir tókst
að komast niður I fjö'runa fyrir
neðan þverhnípið
SKAGASTRÖND, 2. júní. —
I* A Ð hörmulcga slys varð
hcr í gær, skammt frá bæn-
um Króksscli í Skagahreppi
að 12 ára drengur, Sigur-
bcrg Gröndal Ragnarsson,
frá lllið, Hcliissandi, hrapaði
fram af svonefndu Króks-
bjargi, um 50 m hæð, ofan
í fjöru og stórslasaðist. —
Nánari atvik voru þcssi:
Þverhnípt bjarf.
1 K.óksicII búa bræðurnir Sig-
urður og Ólafur Pálssynir og
p.mgað hafði drengurinn ráðizt
ti! sumardvalar. Um kl. 4 c.h. í
gær var hann scndur niður að
vcgamótum mcð brcf I póstkass-
ann. Er drcngurinn kom ekki til
baka á cðlilcgum tíma var farið
hann hafði runnið um 20 m. leið
áður en hann stcyptist íram af
þverhnýptu bjarginu. Geta menn
scr þess til, að hann haíi verið að
huga að eggjum, en varp er þarna
nokkuð.
Sjólelðis i fjöruna.
Ófaert er með öllu I fjöruna,
ncma aí sjó. Var sLrax hringt i
héraðslækninn á Blönduósi,
Hannes Finnbogason og hélt
hann þegar, ásamt aðstoðarlækni
sínum, Þór Halldórss., til Kálfs
hamarsvikur, en þnðan voru
þcir svo um 30 minútur á slys-
staðinn með bút.
Er læknarnir komu að drengn-
um haíði hann legið þarna f
fjörunni i mcira cn þrjár klukku
stundir. Hann virtist vera með
rænu en óráði og var mjög mikið
slasaður.
Sóttur i sjúkraflugvél.
Drengurinn var siðan fluttur
til Blönduóss og þangað sótti
Bjöm Pálsson hann 1 sjúkraílug-
vél sinni um kL eitt í nótt og
ílutti til Reykjavíkur. — Þ. J.
— ★ —
Tíðindamaður blaðslns áttl tal
við Landsspitalann i gærkvöldi
og íékk þær upplýsingor, að
líðan hans væri cftir atvikum.
Úrklippa úr Morgunblaðinu frá 3. júní 1961.
við brúnina væri 20 metra snar-
brött skriða. Eftir þeirri skriðu
hefur drengurinn runnið og síð-
an svifið fram af brúninni.
Eftir um það bil hálfa klukku-
stund var ljóst að öll lífsmörk
fóru hratt batnandi. Töldum við
nú óhætt að spelka brotin og
færa hann yfir í sjúkrakörfuna.
Við héldum til skiptis uppi
flöskunni með vökvanum á
meðan róið var aftur að Kálfs-
hamarsvík. Vökvagjöf var hald-
ið áfram í bílnum, en hægt var
að hengja flöskuna á fatasnaga á
dyrastafnum aftan við framsæt-
ið. Þór fylgdist með drengnum,
en ég ók bflnum. Eftir 20 mín-
útna akstur frá Kálfshamarsvík
fór drengurinn að kveinka sér
og skömmu eftir að við komum
á Héraðshælið á Blönduósi var
hann farinn að svara tiltali.
Við höfðum strax símasam-
band við Björn Pálsson flug-
mann. Hittist svo á að hann var
á leið til Vestmannaeyja með
einn farþega. Hann breytti strax
um stefnu og sagðist mundu
verða kominn á flugvöllinn hjá
Akri (malarvöllur skammt frá
Blönduósi) eftir eina og hálfa
klukkustund. Eftir símtalið við
Björn Pálsson var haft samband
við handlækningadeild Land-
spítalans. í símann svaraði Hall-
dór Arinbjarnar.
A meðan beðið var eftir flug-
vélinni var vökvagjöf haldið
áfram og gefinn viðbótar-
skammtur af penicillíni. Dreng-
urinn var blóðflokkaður og
þvagleggur færður upp. Lífs-
mörk fóru hratt batnandi. Þegar
við lögðum af stað að flugvellin-
um var blóðþrýstingur orðinn
eðlilegur, en púls hraður, enda
hafði drengurinn misst mikið
blóð, vegna svo margra brota.
I sama mund og við komum
að flugvellinum við Akur, lenti
Björn Pálsson flugvél sinni ör-
ugglega, án nokkurra ljósa á
vellinum, en klukkan mun þá
hafa verið tæplega eitt eftir mið-
nætti en nóttin var björt og veð-
urskilyrði til flugs hin bestu.
Körfunni rennt inn í flugvélina.
Skipst var á nokkrum orðum við
Björn flugmann og farþegann
hans. Kvöddum við þá með
heillaóskum og innilegu þakk-
læti, fyrir skjót viðbrögð.
Skömmu síðar sáurn við þá
hverfa suður í miðnæturhúmið.
Snorri Hallgrímsson og Hall-
dór Arinbjarnar unnu að því um
nóttina að setja sama brotin.
Aðstoðarlæknir og sjúkra-
skrárritari þessa nótt var Asgeir
Birgir Ellertsson. Við komu á
Landspítalann mældist blóð-
þrýstingur 115/70, Hb 55% púls
140/mín. Strax var gefið blóð.
Varðandi atburðarásina hef
ég stuðst við nokkrar línur, sem
ég skrifaði í flýti á bakhlið lyf-
seðils, merktum Blönduósshér-
aði og er enn að finna í sjúkra-
skrá piltsins frá árinu 1961.
Eftirmáli
Samkvæmt sjúkraskrá var
drengurinn með skerta vitund
og ruglaður, með hækkaðan
blóðþrýsting. Vakti það upp
grun um blæðingu undir heila-
himnu (subdural hematoma).
Var því leitað ráða hjá dr.
Bjarna Jónssyni á Landakoti.
Taldi hann líklegast að hér væri
á ferðinni heilabjúgur, eftir
heilahristing. Á þriðja degi fór
óráðið ört minnkandi og varð
piltur brátt alveg eðlilegur.
Eftir 30 daga var brotið á
hægri upphandlegg lagfært og
fest með nagla, en Snorri getur
þess í aðgerðarlýsingu umrædda
nótt, að hann teldi óráðlegt að
festa með nagla 14 klukku-
stunda gamalt opið brot. Lær-
beinsbrotið (fractura per-
trochanterica) var meðhöndlað
með strekki í 40 daga og greri án
skekkju. Svo fór eiiinig með