Læknablaðið - 15.01.1996, Blaðsíða 25
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
13
Nýgengi: Á árunum 1989 og 1990 fundust
einstaka stofnar penicillín ónæmra pneumó-
kokka, en engin sjáanleg tengsl voru á milli
þeirra einstaklinga sem báru bakteríurnar. Á
árinu 1991 varð talsverð aukning í fjölda
ónæmra stofna, einkum á síðasta ársfjórðungi,
og hélst þessi hraða aukning allt til ársins 1994
(mynd 3). Hlutfallslegt nýgengi jókst þannig
frá árinu 1988, í 2,3% árið 1989, 2,7% 1990,
8,4% 1991,16,3% 1992 og upp í 19,8% árið 1993
(mynd 4) (46,49,50). Sýkingarnar voru greini-
lega algengari á vetrum en sumrum. Veturinn
1991-1992 var mikið um sýkingar af völdum
Respiratory syncytial veiru, og veturinn 1992-
1993 var mikið um sýkingar Streptococcus
pyogenes (óbirtar upplýsingar frá veirufræði-
og sýklafræðideildum Landspítalans). Mögu-
lega hafa þessir faraldrar valdið aukinni sýkla-
lyfjanotkun og átt þátt í hraðri aukningu pen-
icillín ónæmra stofna þessa tvo vetur.
Yngsti sjúklingurinn sem greinst hefur með
penicillín ónæma pneumókokka var 15 daga
gamalt stúlkubarn með augnslímubólgu, en sá
elsti var 95 ára karlmaður með lungnasýkingu.
Langflestir sjúklinganna hafa verið börn, en
71% sýkinganna hafa verið í börnum tveggja
ára og yngri. Einnig koma sýkingarnar reglu-
lega fyrir í elstu aldurshópunum, sjá aldurs-
dreifingu á mynd 5.
Helstu sýkingarnar hafa verið öndunarfæra-
sýkingar, einkum eyrnabólgur, en svo skúta-
bólgur (sinusitis), versnunarköst (acute exa-
cerbation) langvinnar berkjubólgu og lungna-
bólga. Að minnsta kosti 16 hafa fengið
blóðsýkingu, 10 börn og sex fullorðnir, langoft-
ast í tengslum við lungnabólgu. Til þessa hefur
enginn hérlendis fengið heilahimnubólgu af
völdum penicillín ónæmra pneumókokka.
Hjúpgerðir: Penicillín ónæmu pneumókokk-
arnir hafa nánast eingöngu verið af þremur
hjúpgerðum, það er hjúpgerðum 6 (83%), 19
(11%) og 23 (5%). Hjúpgerð 6 hefur verið
langalgengust, en hún er því miður fjölónæm,
það er að segja ónæm fyrir penicillíni, fyrstu og
annarrar kynslóðar cefalóspórínum, erýtró-
mýcini, klindamýcíni, tetracýclíni, klóramfeni-
kóli, súlfalyfjum og trímetóprími. Þannig er
hún ónæm fyrir öllum lyfjum sem tiltæk eru til
inntöku nema rífampicíni, sem ekki skal nota
eitt sér vegna hættu á ónæmismyndun. Allir
fjölónæmu stofnarnir af hjúpgerð 6 sem hafa
verið undirflokkaðir, hafa verið af stofngerð
6B. Fjölgun hjúpgerðar 6 hófst 1991 og var
No. of cases
Fig. 3. Quarterly incidence ofpenicillin resistantpneumococci
in Iceland (patient specimens, repeat isolates have been ex-
cluded). The hatched areas represent multiresistant strains.
%
Fig. 4.Yearly incidence rates of penicillin resistant pneumo-
cocci in Iceland.
No. of cases
Fig. 5. Age distribution of patients with penicillin resistant
pneumococci in Iceland. The first 10 columns represent one
year each, but the following 6 columns 10 years each.