Læknablaðið - 15.01.1996, Blaðsíða 58
42
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
Trimeth.-sulpha
Ampicillin
Metronidazol
Aminoglycosides
2nd gen.
ccphalosporins
3rd gen.
cephalosporins
Penicillin
Proportion of antimicrobials prescrihed
Fig. 1. The most commonly prescribed antimicrobials for
treatment of infections.
Mctronidasol
Cloxacillin
2nd gen.
cephalosporins
lst gen.
ccphalosporins
43
17
17
0 10 20 30 40 50
Proportion of antimicrobials prescribed
Fig. 2. The most commonly prescribed prophylactic agents.
Fig. 3. Appropriateness of antimicrobial use.
Sýklalyf sem mest voru notuð í forvarnarskyni
eru sýnd á mynd 2.
Meðferðarlengd: Sýklalyfjameðferð var að
meðaltali beitt í 8,2 daga (vikmörk 1-47).
Varnarmeðferð var hins vegar að meðaltali 1,4
dagar (vikmörk 1-4). Varnarmeðferð var beitt
lengur en í tvo daga í 11 tilvikum (10%).
Réttmœti meðferðar: Höfundunum tveimur
(KGK og SG) sem mátu réttmæti meðferðar
bar fullkomlega saman í 80,5% tilfella en í
meginatriðum, það er hvort meðferð væri við-
eigandi (rétt) eða óviðeigandi (ábótavant,
röng), í 92,5% tilfella. í þeim tilfellum er
ósamræmi gætti í mati þeirra komust þeir ávallt
að sameiginlegri niðurstöðu.
Meðferð 174 sjúklinga sem kannaðir voru
fyrra tímabilið var talin rétt í 85 (49%) tilvik-
um, í 72 (41%) tilvikum taldist henni vera
ábótavant og hún röng í 17 (10%) tilvikum.
Meðferð 128 sjúklinga á seinna tímabilinu var á
sama hátt talin rétt í 52 (41%) tilvikum, henni
taldist vera ábótavant í 49 (38%) tilvikum og
hún röng í 27 (21%) tilvikum (p=0,02).
Þegar meðferð á báðum rannsóknartímabil-
um var metin saman (mynd 3) voru 137 sjúk-
lingar (45%) taldir hafa fengið rétta meðferð,
121 sjúklingur (40%) taldist hafa fengið með-
ferð sem var ábótavant en 44 sjúklingar (15%)
fengu meðferð sem talin var röng. Sýklalyfja-
meðferð 165 sjúklinga (55%) var þannig talin
röng eða henni ábótavant.
Á lyfjadeildum var hlutfall lyfjaávísana sem
talið var vera ábótavant eða rangt 42%, á
skurðdeildum 63% og á kvennadeildum 53%
(p<0,001).
í alls 121 tilviki taldist lyfjavali vera ábóta-
vant. Oftast, eða í 73 tilvikum (60%), var lyfja-
valið rangt en í 48 tilvikum (40%) voru lyfin
talin gefin í röngum skömmtum.
Af 195 tilvikum þar sem sýklalyfjum var ávís-
að í meðferðarskyni var meðferð 92 (47%)
sjúklinga talin rétt, meðferð 78 (40%) sjúk-
linga var talið ábótavant og 27 (13%) töldust
hafa fengið ranga meðferð. Af 83 tilvikum þar
sem sýklalyf voru notuð í varnarskyni var með-
ferð 39 (47%) sjúklinga talin rétt, meðferð 26
(31%) talið ábótavant og 18 (22%) röng. Með-
ferð 24 sjúklinga sem fengu sýklalyf í varnar-
og meðferðarskyni var talin rétt í sex (25%)
tilfellum, meðferð talið ábótavant í 17 (71%)
tilfellum og hún röng í einu (4%) tilfelli. Sé
réttmæti meðferðar borin saman hjá sjúkling-
um sem annað hvort fengu lyf til varnar eða í