Læknablaðið - 15.01.1996, Blaðsíða 36
24
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
Sjúklingar: Einstaklingar sem greinast með
mótefni gegn alnæmisveiru eru taldir smitaðir
af völdum veirunnar. Þeir sem eru smitaðir af
völdum alnæmisveiru og hafa eða hafa haft
einhverja þá sjúkdóma sem tilteknir eru í töflu
I eru taldir hafa alnæmi. Tilkynning um um
smitaða einstaklinga og þá sem greinst hafa
með alnæmi er send landlæknisembættinu með
nafnleynd samkvæmt lögum um kynsjúkdóma
(26). Þeir sem taldir eru í íslensku skránni eru
einstaklingar sem leitað hafa til íslensku heil-
brigðisþjónustunnar og hafa verið búsettir á
Islandi í lengri eða skemmri tíma.
Nýgengi og dánartölur: í tilkynningum frá
landlæknisembættinu um fjölda smitaðra, hef-
ur að jafnaði verið miðað við dagsetningar til-
kynningar. í nýgengistölum sem gefnar eru í
þessari grein er miðað dagsetningu greiningar
þegar hún hefur verið þekkt. Nýgengi smits af
völdum alnæmis og alnæmis ásamt dánartölum
eftir aldurshópum og greiningarári er reiknað
út frá meðaltalsíbúatölu hvers árs (27) og mið-
að við 100.000 íbúa. Aldursstöðluð dánartala
er miðuð við íslenskan aldursdreifingarstaðal
(28).
Ahœttuþœttir: Samkvæmt hefð hafa smitaðir
einstaklingar verið flokkaðir eftir áhættuhegð-
un eða áhættuþáttum (29). Þannig eru karl-
menn sem einhvern tímann hafa haft kynmök
við karlmenn flokkaðir í áhættuhóp samkyn-
hneigðra eða tvíkynhneigðra. Einstaklingur
sem einhvern tímann hefur sprautað sig með
fíkniefnum er flokkaður í sérstakan áhættu-
hóp. Sá, sem hefur haft kynmök við einstak-
linga af gagnstæðu kyni og hefur ekki aðra
áhættuþætti, er flokkaður í áhættuhóp gagn-
kynhneigðra. Þeir sem smitast hafa við blóð-
gjöf eru flokkaðir í áhættuhóp blóðþega og
dreyrasjúklingar sem fengið hafa storkuþætti
eru taldir til sérstaks áhættuhóps. Börn sem
smitast hafa af sýktum mæðrum við fæðingu
eða á meðgöngu eru talin sérstaklega. Þeir,
sem engar upplýsingar eru um, hvað varðar
áhættu, eru að lokum flokkaðir sérstaklega.
Útbreiðsla: Til að lýsa útbreiðslu alnæmis-
faraldursins er stuðst við samanlagðan fjölda
þar sem tímabundnar sveiflur í fjölda hafa
minni áhrif á útbreiðsluferilið (30). Þegar um
veldisfall útbreiðslu (þegar breyting á fjölda
tilfella er hlutfallslega óbreytt) er að ræða auð-
veldar lógaritmísk umbreyting á samanlögðum
fjölda (eða nýgengi) samanburð á hraða út-
breiðslu í fámennum og margmennum hópum
og einnig er auðveldara að mæla útbreiðslu-
hraðann á tímabilinu. Við útreikning á út-
breiðsluhraða þegar um veldisfall er að ræða er
stuðst við eftirfarandi:
Hallatala (m), eða útbreiðsluhraði, er fund-
in með regression samkvæmt veldisfallinu:
y = rn'
þar sem y táknar samanlagðan fjölda og t tákn-
ar tíma talinn í árum.
Tvöföldunartíma (2T) samanlagðs fjölda má
finna með:
ln 2y, - In y, = t2 In m - t, ln m
eða
2T = t, - t, = (ln 2y, - ln yþ / ln m
Lífslíkur: Skilyrðin fyrir notkun líftöflu eru
vel skilgreindur byrjunar- og endareitur. Því er
sjaldnast til að dreifa ef um tímasetningu smits
er að ræða en hana er oftast erfitt að ákvarða.
Alnæmi er tilbúin vinnuskilgreining en tíma-
setningu þess er hins vegar oftast hægt að
ákvarða með nokkurri nákvæmni þótt
skekkjuvaldar séu fyrir hendi, til dæmis hæfni
læknis til sjúkdómsgreiningar eða ef sjúkdóms-
greining liggur fyrst fyrir eftir andlát sjúklings.
I þessu yfirliti eru lífslíkur því reiknaðar frá
greiningu alnæmis til dauðadags. Útreikningar
á lífslíkum eftir líftöflu taka tillit til þeirra sem
kunna að hverfa úr eftirliti (31).
Niðurstöður
Sjúklingar: Frá því mótefnamælingar gegn
alnæmisveiru hófust í nóvember 1985 greindust
93 smitaðir einstaklingar til ársloka 1994. Af
þeim greindust 35 með alnæmi og 26 dóu af
völdum alnæmis. í töflum II-IV eru taldir þeir
sem greindust með smit af völdum alnæmis-
veiru og alnærni og þeir sem dóu af völdum
alnæmis eftir kynjum, aldri og greiningarári.
Aldursbundið nýgengi og aldursstöðluð dánar-
tala er einnig sýnd. Flestir hinna smituðu voru
á aldrinum 20-29 ára (44%) og flestir þeirra
sem greindust með alnæmi voru á aldrinum
30-39 ára (40%). Nýgengi alnæmis á fyrstu 10
árunum var 1,36 (2,3 hjá körlum og 0,4 hjá
konum). Af þeim 35 sem greindust með al-
næmi létust 26 (74%) á tímabilinu.
Ahœttuþœttir: Fjöldi þeirra sem smitast hafa
af alnæmisveirunni er sýndur í töflu V með
flokkun eftir áhættuþáttum og greiningarári.
Flestir sem smitast hafa af veirunni eru sam-
kynhneigðir karlar (65%). Hlutur gagnkyn-
hneigðra meðal smitaðra fer þó smám saman