Læknablaðið - 15.01.1996, Blaðsíða 50
36
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
sykrungi Hib (and-PRP) í blóði voru rnæld við
sjö mánaða aldur hjá 70 börnum sem höfðu
fengið þrjá skammta af bóluefni. Um 20%
þeirra höfðu ekki náð 0,15 (.ig/ml, sem almennt
er talið lágmarksmagn til skammtíma verndar,
en til langtíma verndar er talið þurfa 2=1 (rg/ml
(7,8). Við 15 mánaða aldur voru mæld mótefni
hjá 58 börnum sem höfðu fengið fjóra bóluefn-
isskammta og höfðu 56 börn (95%) > 1 [xg/ml.
Eitt barn mældist með <0,06 [tg/ml þriggja,
sjö, 14 og 15 mánaða.
í mars 1993 fékk 21 þessara barna, þá þriggja
til fjögurra ára, skammt af PRP-D og voru
mótefni gegn PRP og barnaveiki mæld í blóð-
sýnum teknum fyrir og fimm vikum eftir gjöf
þessa aukaskammts af PRP-D. Meðaltítri
(Geometric Mean Titer) and-PRP fyrir
skammtinn var 1,11 (0,06-13,37) en 137,11
(14,72-1307,42) eftir skammtinn (5).
Barnið sem mældist með <0,06 við 15 mán-
aða aldur reyndist tæplega fjögurra ára vera
með 8,04 í fyrra sýninu og 22,22 í því síðara.
Til samanburðar voru fengin blóðsýni úr sex
óbólusettum börnum á aldrinum sex til sjö ára
og einu þriggja ára (sem var erlendis á fyrsta og
öðru ári) og fjórum börnum sem höfðu fengið
einn PRP-D skammt þar sem þau voru eldri en
14 mánaða vorið 1989. Meðaltítri þessara 11
barna var 1,01 pg/ml (0,21-91,47).
Mótefni gegn barnaveiki hjá börnunum sem
fengu aukaskammt af PRP-D þriggja til fjög-
urra ára mældust að meðaltali 0,37 AE/ml
(0,01-2,56) fyrir skamtinn en 11,69 AE/ml
(0,32-81,92) eftir. Magn ^0,01 AE/ml er talið
verndandi gegn barnaveiki (9).
Umræða
Að frumkvæði Ólafs Ólafssonar landlæknis
tóku heilbrigðisyfirvöld þá ákvörðun 1988 að
boðið skyldi upp á bólusetningu gegn Hib fyrir
ungbörn á íslandi.
Hófst hún vorið 1989 tveimur til fjórum ár-
um áður en nærliggjandi Evrópulönd, önnur
en Finnland, hófu samsvarandi bólusetningu.
PRP-D var þá eina eggjahvítutengda bóluefnið
gegn Hib, sem komið var á markað. Hafði það
verið gefið 30.000 börnum í Finnlandi og
reynst veita 87% vernd. Til umræðu kom að
bíða eftir árangursríkari bóluefnum gegn Hib,
sem voru í þróun en sú bið hefði kostað mörg
sjúkdómstilfelli af völdum Hib.
Árangur PRP-D bólusetningar hér á landi
reyndist ekki síðri en í Finnlandi. Á 10 ára
tímabili 1980-1989 greindust 92 börn með
heilahimnubólgu af völdum Hib og 21 með
bráða barkaloksbólgu.
Frá hausti 1989 hefur ekkert barn greinst
með þessa sjúkdóma. Árin 1980-1989 ræktaðist
Hib úr blóði 58 barna eldri en eins mánaðar og
úr liðvökva eingöngu hjá þremur börnum. Frá
1990 hafa þrjú börn eldri en eins mánaðar
greinst með blóðsýkingu af völdum Hib.
Fjögur börn sem fengið höfðu PRP-D veikt-
ust af sýkingum af völdum Hib, eitt þriggja
mánaða fékk heilahimnubólgu 12 dögum eftir
fyrsta skammtinn, tvö fengu blóðsýkingu eftir
einn skammt og eitt eftir þrjá skammta. Ekkert
barn hefur greinst með sýkingu af völdum Hib í
heilahimnum, blóði eða barkaloki eftir fjóra
skammta.
Aðsetursstaður Hib stofna er aðallega í nef-
koki barna á aldrinum þriggja mánaða til fimm
ára en þaðan geta þeir borist í miðeyra, skúta,
lungu, augu eða barkalok og valdið staðbundn-
um sýkingum og/eða komist í blóð og þaðan í
liði, bein og heilahimnur. Eftir því sem fleiri
börn á þessum aldri eru saman komin til dæmis
í dagvistun því fleiri meðal þeirra verða Hib
berar eða fá sjúkdóma af völdum Hib.
Til að athuga hvort Hib stofnum fækkaði í
umferð eftir því sem fleiri fullbólusett börn yxu
upp var frá hausti 1990 til vors 1992 og aftur
fyrsta fjórðung árs 1994 leitað að Hib meðal
allra H. influenzae stofna í aðsendum sýnuni
frá hálsi, nefkoki, eyrum og augum barna yngri
en sex ára. Leitað var í sýnum frá eldri ein-
staklingum haustið 1990 og fyrsta fjórðungi árs
1994. Niðurstöður voru til úr leitum sem gerð-
ar voru 1984 og 1986.
Hib stofnar reyndust vera 10-16% af finnan-
legum H. influenzae stofnum í þessum sýnum
til vors 1991 en fækkaði þá snögglega. Síðan
hafa mjög fáir Hib stofnar fundist hvort sem
leitað hefur verið í sýnum frá börnum eða eldri
einstaklingum.
PRP-D bólusetning hefur því nánast útrýmt
Hib berum meðal barna og er það í samræmi
við reynslu af öðrum eggjahvítutengdum bólu-
efnum gegn Hib (10,11).
Skýring á hvarfi Hib stofna úr nefkoki bólu-
settra barna er sennilega sú að PRP-D bóluefni
hvetji til myndunar Ig A mótefna gegn PRP á
slímhúðum. Slík mótefni hafa fundist í munn-
vatni barna eftir bólusetningu með öðrum
eggjahvítutengdum bóluefnum gegn Hib (12).
Eftir að bólusetningin hófst og á meðan