Læknablaðið - 15.01.1996, Blaðsíða 135
Yamanouchi
©, Pharmaco
Barnaexem er einn af algengustu
lu'iðjúkclómunuin og oft ákaflega
erfiður börnum og foreldrum þeirra.
Eitt aðaleinkenni barnaexems er mikill
kláði. Þegar börnin Idóra sér stöðugt
verður húðin verri af exeminu, sem
aftur eykur á kláðann. Þannig verður til
vítqhringur sem nauðsynlegt er að
rjúfa. í upphafi er það gert með
sterakremi.
Mildison feitt krem
(hýdrókortisón \%) er veikur steri í
flokki I og hentar vel á þurr og væg
exemtilfelli.
Ekki síður ntikilvægur þáttur í með-
höndlun barnaexems er regluleg
notkun mýkjandi og verndandi krema
er feitt mýkjandi krern og gerir þurra
húð mjúka á ný.
Mildison. Yamanouchi Europe, 870171. KREM, feitt; D 07 A A 02
1 g inniheldur: Hydrocortisonum INN 10 mg, Alcohol cetylstearylicus, Cetomacrogolum 1000, Paráffinum liquidum, Vaselinum album, Methylis
parahydroxybenzoas, Acidum citricum anhydr., Natrii citras anhydr., Aqua purificata q.s. ad 1 g. Eiginleikar: Hýdrókortisón tilheyrir flokki veikra barkstera
(flokkur I) og frásogast lítt í gegnum húðina. Burðarefni lyfjaformsins er fleyti, þar sem dreifða lagið er olía, en samfellda lagið er vatn (oA' emulsio). Vegna
mikils fituinnihalds hentar þetta lyf vel á þurra húð. Ábendingar: Exem og aðrir húðsjúkdómar, þar sem sterar eiga við. Benda má á, að hér er ekki um
sterkan sera að ræða, og því unnt að nota lyfið á viðkvæma húð og þar, sem sterkari sterar valda slæmum aukaverkunum t.d. í andliti. Frábcndingar: ígerðir
í húð af völdum baktería, sveppa eða veira. Varicella. Vaccinia. Lyfið má ekki bera í augu. Aukaverkanir: Langvarandi notkun getur leitt til húðrýrnunar og
rosacealíkra breytinga í andliti, þó síður en sterkari sterar. Varúð: Hafa verður í huga, að sterar geta frásogast gegnum húð. Skammtastærðir handa
fullorðnum og börnum: Ráðlegt er að bera lyfið á í þunnu lagi 1-3 sinnum á dag. Pakkningar: 15 g,; 30 g.; 100 g.: Heimilt er að selja takmarkað magn lyfsins
í lausasölu. Verð nóv/95: 15 g kr. 430. 30 g kr. 768. 100 g kr. 2307. Afrgreiðslutilhögun: U. Greiðslufyrirkomulag: B.