Læknablaðið - 15.01.1996, Blaðsíða 49
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
35
Table IV. Number of Haemopliilus influenzae/Hib isolates from swabs, sputum or tracheal aspirates sent in for diagnostic
purposes at different time periods from patients over 5 years ofage.
Year/Months 6-10 years 11 -20 years yrs 21-60 years > 60 years Total/Hib (%)
1984/Jan-April 13/0 5/0 16/1 13/2 47/3 (6.4)
1986/Aug-Nov 10/0 7/0 23/2 23/1 63/3 (5)
1990/Sept-Dec 5/2 10/2 22/3 43/11 80/18 (22)
1994/Jan-Mar 23/0 18/0 49/0 31/0 121/0
Eftir 1989 hefur ekkert barn veikst af heila-
himnubólgu af völdum Hib (mynd).
Á árunum 1980-1989 greindist einn fullorð-
inn, 61 árs kona, með heilahimnubólgu af völd-
um Hib (1981). Eftir 1989 hefur einn fullorðinn
greinst, 26 ára karlmaður árið 1993 (tafla II).
Hib ræktaðist úr blóði 58 barna eldri en eins
mánaðar og úr liðvökva þriggja barna á árun-
um 1980-1989. Börnin voru á aldrinum sex
mánaða til 10 ára og lifðu öll. Fimm þeirra
greindust árið 1989, þar af hafði eitt sem einnig
var með barkaloksbólgu (sjá síðar) fengið einn
skammt af PRP-D (tafla I).
Árin 1990-1991 ræktaðist Hib úr blóði
þriggja barna eldri en eins mánaðar, þau lifðu
öll. Eitt barn var óbólusett (tafla II), eitt barn
hafði fengið einn PRP-D skammt og eitt þrjá
skammta (tafla I).
Eftir 1991 hefur Hib ekki ræktast úr blóði
barns eldra en eins mánaðar (mynd).
Á árunum 1980-1989 greindust átta fullorðn-
ir (sjö konur og einn karl) og einn nýburi með
blóðsýkingu af völdum Hib. Nýburinn var tek-
inn með keisaraskurði á 27. viku meðgöngu og
ræktaðist Hib frá leghálsi móður en blóð frá
henni var ekki sent í ræktun.
Á árunum 1990-1992 ræktaðist Hib úr blóði
þriggja fullorðinna, sem allt voru þungaðar
konur. Ein missti fóstur, önnur fæddi barn
með Hib í blóði, sú þriðja fæddi ósýkt barn.
Einnig ræktaðist Hib frá fylgju fæðandi konu
og úr blóði nýburans (tafla II).
Bráð barkaloksbólga er nær alltaf vegna Hib
sýkingar, oft er Hib blóðsýking samfara.
Á árunum 1980-1989 greindist 21 barn á aldr-
inum 12 mánaða til fimm ára með þessa sýk-
ingu, öll lifðu. Fimm börn veiktust 1989, fjögur
voru óbólusett en eitt barn hafði fengið einn
skammt af PRP-D (tafla I). Fjórtán voru lögð
inn á Landspítala, fjögur á Landakotsspítala og
þrjú á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Blóð
var sent í ræktun frá 18 og ræktaðist Hib frá 12
þeirra. Fjögur sem voru með neikvæða blóð-
ræktun höfðu fengið sýklalyf áður en blóðsýni
Table V H. influenzae isolates from nasopharyngeal swabs
from children 0-6 years of age attending day-care centres in
Reykjavík
Year Months No H. infl. Day- strains care centres No children No Hib strains
1992 Feb A 47 20/0
March B 36 19/0
“ C 40 18/0
May D 55 18/0
Oct E 41 24/0
Total 5 219 99/0
var tekið, en Hib ræktaðist úr stroki af barka-
loki frá einu þeirra.
Eftir 1989 hefur þessi sjúkdómur ekki greinst
hjá neinu barni á ofannefndum sjúkrahúsum.
Tveir fullorðnir greindust með bráða barka-
loksbólgu samfara blóðsýkingu af völdum Hib
á árunum 1980-1989, 30 ára kona árið 1988 og
44 ára karl árið 1989, en síðan enginn.
2. Leit að Hib stofnum í sýnum frá börnum
og fullorðnum. Hib stofnar reyndust vera 10-
16% af H. influenzae stofnum í sýnum öðrum
en blóði, mænu- og liðvökva frá börnum yngri
en sex ára árin 1984, 1986, 1990 og fyrstu þrjá
mánuði ársins 1991 en fækkaði síðan ört. Frá
október 1991 til maí 1992 fannst einn Hib stofn
meðal 415 H. influenzae stofna og í janúar til
mars 1994 einn meðal 282 í sýnum frá þessum
aldurshópi (tafla III). Þessi eini Hib stofn sem
fannst 1994 ræktaðist úr stroki af augnslímhúð
þriggja rnánaða barns.
Færri sýni bárust frá börnum eldri en fimm
ára og fullorðnum. I þeim hópi voru Hib stofn-
ar 5-6% á árunum 1984 og 1986, 22% árið 1990
en engir fundust 1994 (tafla IV).
í sýnum frá 219 börnum á dagheimilum 1992
fannst enginn Hib stofn (tafla V).
í nefkoksstrokum sem tekin voru í janúar
1993 frá 372 nemendum 17-21 árs fundust H.
influenzae stofnar hjá 57, þar af var ein stúlka
með Hib stofn (6).
3. Mótefnamælingar. Mótefni gegn hjúp-