Læknablaðið - 15.01.1996, Blaðsíða 42
30
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
Mynd 4. Ferill yfir Hfslíkur sjúklinga
með alnæmi yfir fimm ára tímabil.
Samanlagðar lífslíkur eru reiknaðar
á þriggja mánaða tímabilum. Rofnu
ferlarnir tákna 95% öryggismörk á
UfsUkum.
Lífslíkur(%)
útbreiðsla smits hófst þar mun fyrr eða á
sjöunda áratugnum (32). Enda þótt elstu blóð-
sýni með merki um smit af völdum alnæmis-
veiru hér á landi séu frá 1983 er líklegt að
útbreiðsla þess hafi hafist mun fyrr. Nýgengi
greinds smits náði hámarki hér á landi á árun-
um 1985-1988 en hefur síðan haldist nokkuð
stöðugt. Fjöldi þeirra sem greinst hafa með
smit segir þó ekki til um það, hve margir eru
smitaðir í samfélaginu þar sem margir smitaðir
eru einkennalausir. Nýgengi alnæmis óx fyrstu
árin á tímabilinu en hefur haldist nokkuð stöð-
ugt frá árinu 1988. Dánartala vegna alnæmis
hefur vaxið hlutfallslega meira hin síðari ár en
fjöldi þeirra sem greinst hafa með sjúkdóminn.
Bæði nýgengi og dánartala sjúkdómsins eru
óbeinar vísbendingar um að dregið hafi úr út-
breiðslu smits á undanförnum árum og að ekki
hafi verið margir ógreindir smitaðir einstak-
lingar í samfélaginu á undanförnum áratug.
Kerfisbundnar mótefnamælingar á sjúklingum
sem leggjast inn á sjúkrahús benda til hins
sama en algengi smits hefur reynst lágt eða á
bilinu 0,1% - 0,02% (33). ísland er eina landið
í Vestur-Evrópu þar sem ekki hefur verið um
árlega aukningu á nýgengi alnæmis að ræða
(34).
Karlmenn hafa verið í meirihluta þeirra sem
hafa smitast á tímabilinu enda eru samkyn-
hneigðir karlar stærsti áhættuhópurinn hér sem
víðast annars staðar á Vesturlöndum (34,35).
Hlutur kvenna meðal smitaðra hefur þó vaxið
jafnt og þétt á undanförnum árum en það er
sambærileg þróun og átt hefur sér stað í
Evrópu (34). Ekkert barn smitaðist hérlendis á
tímabilinu. Alnæmi hefur ekki greinst meðal
blóðþega frá árinu 1986, enda hófst skimun
fyrir alnæmissmiti meðal blóðgjafa á árinu
1985. Á íslandi hefur dregið verulega úr út-
breiðslu smits á meðal samkynhneigðra karla á
tímabilinu. Marktæk aukning hefur hins vegar
orðið á útbreiðslu smits meðal gagnkyn-
hneigðra einstaklinga enda þótt þeir séu, enn
sem komið er, fámennir. Á hinn bóginn hefur
útbreiðsla alnæmissmits ekki náð að breiðast
út meðal fíkniefnaneytenda hér á landi. í sum-
um ríkjum Evrópu, til dæmis á Ítalíu og Spáni
eru fíkniefnaneytendur sem nota sprautur
stærsti áhættuhópurinn (34). í ljósi þess að
smitandi lifrarbólgur af gerð B og C, sem hafa
sömu smitleið og alnæmisveiran, hafa náð að
breiðast út meðal fíkniefnaneytenda sem
sprauta sig hér á landi (36-38) er sá hópur í
hvað mestri hættu að smitast af völdum alnæm-
isveirunnar.
Dánartölur vegna alnæmis voru ekki háar á
íslandi á tímabilinu. Þær reyndust hæstar með-
al karla í aldurshópunum 30^19 ára. í Banda-
ríkjunum hefur dánartalan vegna alnæmis hins
vegar aukist jafnt og þétt og hefur náð þeim
sessi að verða ein algengasta dánarorsök allra á
aldrinum 25^4 ára þar í landi (39).
Lífslíkur þeirra sem greindust með alnæmi á
Islandi reyndust nokkuð meiri en sést hefur
meðal annarra slíkra sjúklinga þar sem mið-
gildi á lífslíkum hefur reynst 12,5 mánuðir með
3,4% fimm ára lífslíkur (8). Það kann að skýr-
ast af því að sú rannsókn tók til áranna 1981-
1987 en íslenska rannsóknin tók til áranna
1985-1994 en á undanförnum árum hefur orðið
framför í meðferð bæði fylgisýkinga og alnæm-
issmitsins.