Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.07.1997, Qupperneq 27

Læknablaðið - 15.07.1997, Qupperneq 27
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 493 Ályktun: Heilsan skiptir meginmáli fyrir lífs- gæðin. Heilsutengd lífsgæði þarf að meta til að gera sér fulla grein fyrir ástandi sjúklinganna, þörf þeirra fyrir heilbrigðisþjónustu og gagn- semi hennar. Inngangur A síðustu tveimur áratugum hafa lífsgæði verið vaxandi þáttur í umræðunni um meðferð og umönnun sjúklinga. Lífsgæði (Quality of Life) voru fyrst skráð í Index Medicus 1977 (1), en á síðustu tveimur árum eru skráðir 1.094 titlar í Medline, sem fjalla um lífsgæði. Mat á lífsgæðum hefur verið notað til að greina á milli sjúklingahópa og meta áhrif meðferðar (2,3). Sem dæmi má nefna rannsóknir á áhrifum meðferðar á háþrýstingi á lífsgæði (4), heilsu- tengd lífsgæði sjúklinga með geðsjúkdóma sem eru í meðferð hjá heilsugæslulæknum (5) og áhrif meðferðar á sjúklinga með sortuæxli (6). Lífsgæði hafa verið kölluð þriðja víddin, sem skoða þarf við mat á ástandi sjúklinga og ár- angri meðferðar í viðbót við hefðbundnar líf- fræðilegar mælingar og mat á heilsufarsástandi (7). Með auknum möguleikum á meðferð fjöl- margra sjúkdóma, verður æ nauðsynlegra að gera sér grein fyrir hvernig sjúklingarnir meta líðan sína fyrir og eftir meðferð, það er heilsu- tengd lífsgæði, því að flestir vilja ekki aðeins bæta árum við lífið, heldur gæða árin betra lífi. Því er nauðsynlegt að finna jafnvægi milli lífs- gæðanna og umfangs meðferðar og þess gagns sem hún gerir (4) Heilsutengd lífsgæði fjalla um líðan fólks með tilliti til sjúkdóma þess, slysa og meðferð- ar (1). Læknismeðferð getur lengt líf og bætt gæði þess lífs sem ólifað er (8), auk þess sem hún hefur áhrif á ýmis atriði sem mæld verða á lífeðlis- eða lífefnafræðilegan hátt. Bætt lífs- gæði eru jafnmikilvæg og önnur markmið heil- brigðisþjónustunnar (9). Tilgangurinn með því að mæla lífsgæði er að reyna að meta áhrif heilsufars og meðferðar á líf sjúklinganna í víð- ara samhengi en því einu sem læknar mæla í daglegu starfi (10). Mat á lífsgæðum er mikil- vægt til þess að gera sér grein fyrir líðan sjúk- linganna og hugsanlegri notkun þeirra á heil- brigðisþjónustunni sem er meira háð almennri líðan fólks en þeim sjúkdómi sem það hefur (10). Lífsgæði eru bæði persónubundin og efnis- leg. Þau síðarnefndu sem tengjast lífsgæða- kapphlaupinu, er hægt að meta hlutlægt, þó að deila megi um með hvaða kvarða eigi að mæla þau og hvað teljist viðunandi á hverjum tíma. Líðan og lífsfylling eru hins vegar persónu- bundin lífsgæði sem ekki verða metin svo við- unandi sé nema af einstaklingnum sjálfum með huglægu mati. Þrátt fyrir það er ekki nóg að svara spurningunum hvernig líður þér og hvernig er heilsan, þó að það séu grundvall- arspurningar í sambandi við heilsutengd lífs- gæði. Svör við slíkum almennum spurningum nægja ekki til að greina á milli sjúklingahópa eða til að bera saman árangur mismunandi meðferðarforma. Til þess að það sé hægt er nauðsynlegt að búa til mælitæki, sem byggja á stöðluðum spurningum um ýmsa þætti per- sónubundinna lífsgæða og heilsu, það er heilsutengdra lífsgæða, svo sem almenns heilsufars, sjálfsbjargargetu, lífsfyllingar og líðanar (5). Samin hafa verið fleiri hundruð slík próf sem ýmist eru almenn og ætluð til nota fyrir alla sjúklinga eða sérstaklega gerð fyrir ákveðna sjúklingahópa (11). Ekki er ljóst að eitt sé öðru betra. Þegar próf eru þýdd af einu tungumáli á annað þarf að athuga eiginleika þeirra á ný, réttmæti og áreiðanleika. Próf af þessu tagi verða að greina á milli sjúkra og heilbrigðra og á milli mismunandi hópa af sjúklingum auk þess að greina breyt- ingar sem verða við meðferð. Æskilegt er að þaú séu gerð úr stuttum spurningalistum sem geta hentað fyrir alla og fólk svarar sjálft eða með smávægilegri aðstoð. Ef þurfa þykir má síðan bæta við spurningum eftir því sem við á eða þarf við ákveðna kvilla. Við þýddum og létum þýða nokkur slík próf, sem hafa verið mikið notuð (12-16) og lögðum fyrir fimm mis- munandi hópa, 147 manns, sjúklinga og aðra, ásamt 10 spurningum, sem einn okkar (K.T.) hafði notað við eftirrannsókn á vímuefnasjúk- lingum, samtals 167 spurningar. Ætlunin var að finna með klasa- og atriðagreiningu hvaða próf hentaði best eða þróa nýtt próf til meta heilsu- tengd lífsgæði. Niðurstaðan varð nýtt almennt próf fyrir heilsutengd lífsgæði (12) sem nefnt er hér HL- prófið (á ensku: IQL - Icelandic Quality of Life). Búið er að rannsaka áreiðanleika þess annars vegar með athugun á innri samkvæmni og við endurtekna prófun. Réttmæti prófsins hefur einnig verið metið með samanburði við annað mælitæki (GHQ-12/QL (13)) og með at- hugun á getu prófsins til að greina á milli mis- munandi sjúklingahópa. Hvort tveggja, áreið- anleiki og réttmæti, reyndust viðunandi (12).
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.