Læknablaðið - 15.07.1997, Blaðsíða 61
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
527
hátt verðandi lækna og heil-
brigðisstéttir í hinum ýmsu sér-
greinum.
í nágrannalöndum okkar hef-
ur síðastliðin 20-30 ár verið lögð
rík áhersla á kennslu, rannsókn-
ir og meðferð barna- og ung-
lingageðlækna innan stofnana
og barnadeilda og í samvinnu
við heilsugæslulækna. Pessi
þjónusta hefur aukist verulega á
undanförnum árum á Norður-
löndum og nær í dag einnig til
ung- og smábarnaverndar.
Sama gildir um vinnu á sálfræði-
deildum skóla á Norðurlönd-
um, en þær starfa í nánu sam-
starfi við teymi barna- og ung-
lingageðlækna innan heilsu-
gæslustöðva og tengjast
jafnframt rannsóknum innan
læknadeilda.
Læknadeildir (prófessorar í
barna- og unglingageðlækning-
um) á hinum Norðurlöndunum
standa nú fyrir rannsóknum á
geðheilbrigðisvanda barna og
unglinga til að kortleggja nánar
umfang hegðunar- og tilfinn-
ingaerfiðleika meðal barna/
unglinga til að mæta þörfum
þeirra sem fyrst og stuðla þann-
ig að fjárhagslegum sparnaði í
heilbrigðiskerfinu í framtíðinni.
Markmiðið er einnig að efla
fyrirbyggjandi aðgerðir og
koma fyrr til móts við geð-
heilsuvanda og áfallaröskun
barna og unglinga meðal annars
til að draga úr áfengis- og fíkni-
efnavanda á unglingsárum.
Þverfagleg samvinna er efld og
reynt að brjóta niður stofnana-
og sérfræðingamúra og draga
þannig úr kostnaði við meðferð
með rannsóknarvinnu og sam-
hæfa þá þjónustu sem fyrir er
milli skóla, sjúkrahúsa og
heilsugæslu.
Neyðartilfellum í barna- og
unglingageðlækningum hefur
fjölgað hér á landi á undanförn-
um árum án þess að komið hafi
verið til móts við þá staðreynd.
Lögð er vaxandi áhersla á fyrir-
byggjandi aðgerðir í neyðar-
þjónustu í nágrannalöndum
okkar til að hindra langtíma-
vanda og stuðla að samfelldri
meðferð frá upphafi. Einnig er
neyðarþjónusta tengd rann-
sóknarvinnu og kennslu.
Neyðarþjónustan í nágranna-
löndunum tengist vanalega há-
skólasjúkrahúsum og hefur að-
allega haft afskipti af eftirfar-
andi vanda og verið flokkuð á
þrenna vegu innan sérgreinar-
innar:
1. Hefðbundin neyðarþjónusta
- sjálfsvígstilraunir - felmturs-
röskun (panic disorder)
- þunglyndi (post traumatic
stress disorder)
- bráðageðveiki, alvarlegir
hegðunarerfiðleikar
- áfengis- og vímuefnavandi og
slys tengd þeim
- æðisköst hjá þroskaheftum,
einhverfum og geðveikum
börnum/unglingum.
2. Fyrirbyggjandi aðgerðir í
neyðarþjónustu
- líkamlegar kvartanir (maga-
verkur, höfuðverkur, óljós
einkenni)
- foreldrar ekki til samstarfs
vegna veikinda barns eða
vegna innlagnar á sjúkrahús
- deilur í samskiptum lækna og
foreldra vegna langveikra
barna
- grunur um líkamlega van-
rækslu, vanþrif eða ofbeldi
gagnvart barni/unglingi
- ýmis vandamál tengd þroska-
heftum, einhverfum, ofvirk-
um og alvarlega geðveikum,
meðal annars ofbeldistengd-
ur vandi, líkamlegt ofbeldi
eða ógnanir innan stofnana.
3. Ný þjónusta fyrir börn og
unglinga
- vegna kynferðislegrar mis-
notkunar
- fyrirburðir með fylgikvilla,
vanþrif, samskiptaerfiðleikar
við foreldra
- þroskaheft börn með sam-
skiptavanda við foreldra
- vandi foreldra með margbura
(tvíbura, þríbura, fjórbura)
- vöggudauði - skyndidauði
barna, áhrif á foreldra og
systkini, áfallahjálp
- alvarleg slys og örkuml
barna, áhrif á foreldra og við-
brögð foreldra og systkina
- ýmis lögreglumál sem tengj-
ast börnum og unglingum, til
dæmis þegar börn hverfa að
heiman
- mætingavandi í skólum vegna
vímuefna
- ýmiss annar vandi tengdur
langveikum börnum og ung-
lingum.
Þjónusta þessi á hinum Norð-
urlöndunum og í öðrum ná-
grannalöndum okkar er skipu-
lögð af prófessorum í barna- og
unglingageðlækningum, sem
annast jafnframt rannsóknar-
störf og kennslu. Vinnan er auk
þess unnin af þverfaglegu teymi
barna- og unglingageðlæknis,
hjúkrunarfræðings, félagsráð-
gjafa og sálfræðings. Slíkt teymi
myndi einnig sinna ráðgjafar-
störfum við aðrar deildir stofn-
ana og sjúkrahúsa, þar sem
börn og unglingar eru vistuð.
Teymið annast sjúkdóms-
greiningu og meðferð, tekur
þátt í forvarnarstarfi, rannsókn-
arstarfi og kennslu og gefur ráð
varðandi eftirmeðferð og tilvís-
anir á aðrar stofnanir.
Öll þessi vinna er meira og
minna óunnin hér á landi vegna
þess að skort hefur prófessors-
stöðu innan læknadeildar HI.
Barna- og unglingageðlæknar
á íslandi vænta góðs samstarfs
við læknadeild HI, mennta-,
fjármála- og heilbrigðisyfirvöld
varðandi þessi mál til að skipað
verði í stöðu prófessors í barna-
og unglingageðlækningum við
læknadeild HÍ og ofangreindum
aðgerðum verði hrundið til
framkvæmda hið fyrsta.