Læknablaðið - 15.07.1997, Blaðsíða 72
536
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
Áskorun
Undirritaður skorar á Sverri Bergmann lækni, og núverandi
formann Læknafélags íslands, að gefa kost á sér í stöðu forstjóra
Ríkisspítala.
Helgi Hafsteinn Helgason
formaður Félags ungra lækna
Greinargerð
Fyrir um það bil einu og hálfu
ári lét Páll Sigurðsson af störf-
um sem ráðuneytisstjóri í Heil-
brigðis- og tryggingamálaráðu-
neytinu eftir farsæla starfsævi.
Þá var Davíð Á. Gunnarsson,
þáverandi forstjóri Ríkisspítala,
skipaður eftirmaður Páls og
Vigdís Magnúsdóttir hjúkrun-
arframkvæmdastjóri sett for-
stjóri Ríkisspítala tímabundið
til tveggja ára. Nú er þeim tíma
að ljúka og því má vænta að
staðan verði kynnt formlega
næstkomandi vetur.
Pað að veita Ríkisspítölum
forstöðu er ábyrgðarmikið og
krefjandi starf. Ef vel á að vera
þarf forstjórinn að hafa mjög
góða faglega þekkingu á eðli
starfsemi sjúkrahúsa auk þess
sem hann þarf að hafa staðgóða
stjórnunar- og rekstrarþekk-
ingu. Hann verður að hafa
reynslu í að nýta sér þá þekk-
ingu, vera skeleggur stjórnandi
og rökfastur í ákvarðanatöku.
Faglega verður slíkur ein-
staklingur að vera læknismennt-
aður og í raun ætti það að vera
krafa læknastéttarinnar að svo
verði.
Sverri Bergmann þarf ekki að
kynna. Sverrir er virtur í sinni
sérgrein sem taugalæknir, auk
þess sem hann hefur víðtæka
stjórnunarlega reynslu eftir ára-
langa baráttu fyrir framgangi
læknisþjónustunnar, sem for-
maður Læknafélags Islands og
áður sem alþingismaður.
Framhald á svari
báðum megin við samninga-
borðið.
3. Hér skeður í fyrsta sinni að
yngri læknar á Landspítalanum
og einnig á öðrum Ríkisspítöl-
um fá kauphækkun eyrna-
merkta sem bílastyrk fyrir næt-
urvaktastörf. Pað dró síðan
vænan dilk á eftir sér í launa-
málum yngri spítalalækna.
4. Ég nota þetta tækifæri til
að minnast Gústavs A. Jónas-
sonar ráðuneytisstjóra og
þakka honum sanngirni, dreng-
skap hans og forystu í þessu
launamáli okkar Friðriks. Gúst-
av var mesti heiðursmaður,
hægur, ljúfur og gamansamur.
Hann var einn af þekktustu
gamanleikjahöfundum í
Reykjavík á sinni tíð. Honum er
hér með, þótt seint sé, fluttar
alúðarfyllstu þakkir og djúp
virðing fyrir alla framkvæmd
hans í þessu launamáli okkar
Friðriks.