Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.07.1997, Side 46

Læknablaðið - 15.07.1997, Side 46
512 LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 Ómskoðanir við skurðaðgerðir Notkun ómunar sem grein- ingartækis við skurðaðgerðir hefur aukist síðustu ár. Hér er um að ræða ómskoðanir í opn- um aðgerðum en einnig óm- skoðanir við kögunaraðgerðir. Kögunarómun er nýjung sem er að ryðja sér til rúms en er enn ekki komin í almenna notkun. Kostir ómskoðunar í aðgerð umfram myndgreiningarrann- sóknir fyrir aðgerð eru meðal annars að myndgæði hennar eru að jafnaði betri. Við hefð- bundna ómun utan kviðveggjar takmarkast sýn vegna þarma- lofts ogbeina. Fita og aðrirvefir í kviðveggnum spilla oft fyrir. I aðgerðarómun er ómhausinn lagður beint á líffærið sem á að skoða og því hafa þessir þættir ekki áhrif á myndgæðin. Fjar- lægðin til líffærisins sem skoða á er minni en við hefðbundna ómun sem gerir kleift að nota hljóðbylgjur með hærri tíðni en ella, en hærri tíðni gefur meiri upplausn og betri myndgæði. Nálægðin veldur því að tak- markað gegnumdrægi, sem er fylgifiskur hárrar tíðni, kemur ekki að sök. Með ómrannsókn í aðgerð er hægt að greina breytingar sem ekki hafa sést við rannsóknir fyrir aðgerð. Breytingar sem ekki sjást eða þreifast í sjálfri aðgerðinni verða oft sýnilegar við ómun. Oft má meta eðli breytinga svo sem hvort um blöðru eða gegnheila fyrirferð er að ræða og hvort hún sé æða- rík eða -snauð. Hægt er að meta nálægð æxlis við æðar, ganga og aðliggjandi líffæri og hvort um ífarandi vöxt sé að ræða. Allt þetta getur haft afgerandi áhrif á ákvarðanatöku í aðgerð. Ómrannsóknir við opnar skurðaðgerðir hafa verið fram- kvæmdar um allnokkurt skeið eða frá byrjun áttunda áratugar- ins og notkun þessarar tækni eykst. Ómhausar til notkunar í aðgerðum eru frábrugðnir hefð- bundnum ómhausum að því leyti að þeir eru minni og þannig lagaðir að hægt er að smeygja þeim inn í þröng holrúm til dæmis milli lifrar og þindar. Ómun í opnum aðgerðum er aðallega notuð við stigun ill- kynja æxla og til að ákvarða staðsetningu þeirra fyrir brott- nám. Hér má nefna mat á lifrar- krabbameinum og meinvörpum í lifur, staðsetningu og dreifingu heilaæxla, staðsetningu inn- kirtlaæxla í brisi og mat á nýrna- krabbameinum fyrir hluta nýrnaúrnáms. Af öðrum ábend- ingum má nefna ómun í hjarta- aðgerðum bæði fyrir mat á ósæð og ástandi hjarta. Alls kyns aðgerðir með hjálp kögunar verða sífellt algengari. Við kögun blasir yfirborð líffær- anna við sjónum og greina má yfirborðslægar breytingar eða stærri fyrirferðir, en skurðlækn- irinn getur ekki gert sér grein fyrir ástandi þeirra með þreif- ingu á sama hátt og við opnar aðgerðir. Ómun í kögunarað- gerðum er nýjung sem upphefur að nokkru leyti þessa takmörk- un kögunaraðgerða og á því án efa mikla framtíð fyrir sér. Við kögunarómun eru notað- ir sérstakir ómkannar sem færð- ir eru inn í kviðarholið gegnum 10-12 mm port. Um er að ræða langa granna ómhausa með stýranlegum enda. Auk þess að greina sjúklegar breytingar er hægt að nota ómunina til að stýra sýnatöku úr kviðarholslíf- færum. Einnig er mögulegt að nota þessa tækni til að stýra staðbundinni meðferð við æxlis- vexti þar sem notuð er alkóhól innspýting, kuldameðferð (cryotherapy) eða leysi hita- meðferð (interstitial laser hyp- erthermy). Ómun í kögunarað- gerðum verður að öllum líkind- um fyrst og fremst notuð við stigun illkynja æxla og við mat á gallgöngum við gallblöðrutök- ur. Abending getur verið fyrir kögun með ómun í flestum ill- kynja æxlum sem tengjast efri meltingarvegi þar með talin lifr- arfrumuæxli, lifrarmeinvörp, gallgangar og briskirtilskrabba- mein þar sem ekki hefur verið sýnt fram á dreifingu æxlis með öðrum aðferðum. Kögunaróm- unin getur metið stækkaðar eitlastöðvar, meinvörp í lifur og staðbundna dreifingu æxla af meiri nákvæmni en hefðbundn- ar rannsóknir fyrir aðgerð geta gert. Það krefst töluverðrar æfing- ar að ná tökum á ómun og hlýt- ur þetta einnig að eiga við óm- anir á aðgerðarstofum þótt þar séu viðfangsefnin oft afmark- aðri en við hefðbundnar óm- skoðanir. Skurðlæknar hljóta að koma að þessum rannsókn- um og verða þeir því að afla sér grunnþjálfunar í ómtækni og hafa nána samvinnu um þær við myndgreinjngarlækna. Aukin samvinna milli sér- greina er vaxandi nauðsyn. í mörgum tilfellum skarast nú starfssvið sérgreina meir en áður svo sem í kviðarholsað- gerðum og -rannsóknum, inn- anæðaaðgerðum og rannsókn- arinngripum. Líffæra- og sjúk-

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.