Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.07.1997, Page 47

Læknablaðið - 15.07.1997, Page 47
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 513 Frá móttöku nýútskrifaðra læknakandídata. Ljósm.: jt Tekið á móti nýkandídötum í Hlíðasmára 8 Mánudaginn 16. júní síðstlið- inn var tekið á móti nýkandídöt- um í húsnæði læknafélaganna að Hlíðasmára 8 í Kópavogi. Við sama tækifæri undirrituðu kandídatarnir Heitorð lœkna. Einar Stefánsson forseti læknadeildar og Sverrir Berg- mann formaður Læknafélags Is- lands ávörpuðu kandídata. Stjórn Hollvinafélags lækna- deildar hafði ákveðið að veita viðurkenningu þeim kandídat er hæsta einkunn hlyti á embættisprófi. Hana hlaut Jón Tómasson og veitti Vilhelmína Haraldsdóttir honum bókarverðlaun fyrir hönd hollvinafélagsins. Heitorð lækna Ég sem rita nafn mitt hér und- ir, lofa því og legg við dreng- skap minn að beita kunnáttu minni með fullri alúð og samvizkusemi, að láta mér ávallt annt um sjúklinga mína án manngreinar- álits, að gera mér far um að auka kunnáttu mína í læknafræðum. að kynna mér og halda vand- lega öll lög og fyrirmæli, er lúta að störfum lækna. Sjá næstu síðu dómafræðileg framsetning myndefnis er í daglegu starfi sí- fellt meir í formi sneiðmynda svo sem ómunar, tölvusneið- mynda og segulómunar. Lækn- ar þurfa í vaxandi mæli að þekkja líffærafræðina frá sjón- arhorni þessara rannsóknarað- ferða til þess að geta nýtt sér þær í starfi sínu. Nýrri tækni við aðgerðir mun fylgja aukin notkun aðferða myndgreiningar, ekki aðeins til greiningar í aðgerð eins og lýst hefur verið hér að ofan varð- andi ómun, heldur einnig við framkvæmd aðgerða og inn- gripa. Aukin notkun sneið- myndatúlkunar til líffæra- og sjúkdómafræðikennslu lækna- nema, unglækna og tilvonandi sérfræðinga er því nauðsynleg til að búa þá betur undir læknis- starfið á nýrri öld. Pétur H. Hannesson röntgen- og myndgreiningar- deild Landspítalans Jónas Magnússon handlækningadeild Landspítalans

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.