Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.07.1997, Side 53

Læknablaðið - 15.07.1997, Side 53
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 519 mati Kjartans bæði eðlilegur og mikilvægur þáttur í starfi lækna og telur hann að í sumum grein- um. til dæmis hjá meltingar- læknum, komi kringum 90% sjúklinga til ineðferðar á stofum eða göngudeild en leggist ekki inn á spítala. - Par liggur hluti skýringar- innar á því hvers vegna svo margir læknar fá greiddan svo stóran hluta launa sinna eftir þessu kerfi. Eg legg áherslu á að þótt verk séu unnin á göngu- deild er stundum um að ræða áhættusamar aðgerðir og þá er nálægð við sjúkrahúsið mikil- væg til að hægt sé að leita til annarra lækna. Og við verðum að athuga að við ferliverk eru sjúklingarnir ekki sjúklingar sjúkrahússins heldur er þeim vísað til ákveðinna lækna; mönnum er ekki vísað á Land- spítalann í aðgerð heldur til Bjarna Þjóðleifssonar sem ber þá alla ábyrgð á aðgerðinni. Og Kjartan telur öll rök hníga að því að ferliverkakerfinu sé við haldið. - Mér finnst mikilvægt að leiðrétta mismun sem er í kerf- inu og þetta verður að mínu viti alltaf hluti af starfsaðferðum okkar. Hvort farið verður að greiða eftir einhvers konar fast- launakerfi má mín vegna athuga síðar en ég er þó miklu fremur á því að greiða skuli öllum lækn- um eftir vinnuframlagi þeirra, svipað og gert var á Landakoti og eins og gert er hjá St. Jósefs- spítalanum í Hafnarfirði. Það ætti að mínu viti að stíga skref- inu lengra og nota viðvika- greiðslur til lækna inni á sjúkra- húsunum og láta slíkt kerfi ná til allra þátta, svo sem meðferðar, viðtala, aðgerða, kennslu, rannsókna og stjórnunar, þann- ig næst réttlátara kerfi. - Með þessu tel ég líka vera hægt að þurrka út ágreining um það hvort sjúklingar eru inni- liggjandi eða á göngudeild, því það má ekki hafa áhrif á greiðsl- ur til læknisins. Alltaf mat út frá vinnuframlagi Kjartan minnir á að í Banda- ríkjunum séu menn metnir eftir vinnuframlagi og verðleikum eða verðmæti þegar launin eru annars vegar og það jafnvel í fastlaunakerfi. Læknar sem séu dugandi við rannsóknir og geti aflað styrkja séu spítalanum verðmætir og prófessorar hafi hærri laun en aðstoðarprófess- orar og svo framvegis. - Ég tel auðvelt að koma á hérlendis viðvikagreiðslum sem gilt gætu um alla vinnu lækna, það væri auðveldara en að meta störfin eftir verðmæti þeirra. Laun lækna verða hins vegar alltaf eitthvað misjöfn, menn vinna mismikið, hafa mismik- inn áhuga á rannsóknum eða stjórnun og mismikinn áhuga á að vinna langan vinnudag, þess vegna er réttlátast að greiða eft- ir því hversu mikið menn leggja ásig. Þá telur Kjartan að blandað kerfi leiði alltaf til tortryggni og mismununar. - Bæði sjúkrahúsin og sjúk- lingar eiga heimtingu á því að læknar skili þeirri vinnu sem ætlast er til af þeirn á sjúkrahús- unum. Séu læknar á föstum launum en vinni jafnframt ferli- verk eiga þeir ekki að vera á fastakaupinu daginn sem þeir eru í ferliverkum. Um þetta hef- ur vissulega verið samið en þarna er alltaf hætta á að menn séu á tvöföldum launum í senn eða skili ekki því sem ætlast er til. Það er þessi mismunun sem ég held að allir læknar séu sáttir við að reyna að eyða. Kjartan Örvar er þeirrar skoðunar að óánægja með laun sjúkrahúslækna hafi aukist eftir að Landakot var lagt niður og læknar þaðan fluttust á Sjúkra- hús Reykjavíkur og fluttu með sér meiri ferliverkavinnu þang- að en tíðkast hafði þar á bæ. - Þarna hafa menn séð bæði kerfin í sambandi við göngu- deildarvinnuna en á Landspítal- anum hafa læknar frekar farið og unnið á eigin stofum. Það er ljóst að ná verður fram einhverj- um breytingum á þessu greiðslufyrirkomulagi en ég tel líka ljóst að þeir sem vinna ferli- verk í dag munu ekki sætta sig við óbreytta vinnu og að launin fari í sameiginlegan sjóð, þá er sú hætta fyrir hendi að ferliverk- in flytjist alveg burt af spítala- deildum og á stofur þar sem aðstaðan getur verið misjöfn. Við megum ekki missa það ör- yggisnet sem spítalar eru fyrir sjúklingana og ég vil líka undir- strika að öflug ferliverkastarf- semi í tengslum við spítala getur ýtt mjög undir rannsóknir og veitt öllum starfsmönnum þar aukna reynslu og hæfni. En hvað með umræðu um að rannsóknir verði útundan séu menn eingöngu að vinna eftir ferliverkum? - Því má einfaldlega svara með því að benda á að fáar und- irgreinar hafa skilað jafnmikilli vísindavinnu og meltingarsér- greinin. Nægir að benda á að fjöldi ágripa á síðustu lyflækna- þingum hefur verið mikill úr þeim hópi og það eru rannsókn- ir sem eru að langmestu leyti unnar af sérfræðingunum sjálf- um en ekki aðstoðarlæknum. Ég tel því rannsóknar- og vís- indavinnu vel sinnt af þessum hópi og það er mikil fagleg um- ræða og vinna meðal meltingar- lækna. jt

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.