Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.07.1997, Page 62

Læknablaðið - 15.07.1997, Page 62
528 LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 Frá tryggingayfirlækni Nýjar reglur um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í þjálfun Taka gildi 1. september 1997 Á fundi sínum þann 13. júní 1997 samþykkti tryggingaráð nýjar reglur varðandi greiðslu- þátttöku sjúkratrygginga í þjálf- un. Með nýju reglunum er stefnt að einföldun og að draga úr skriffinnsku, jafnframt því að samræma greiðslureglur varð- andi sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun. Sérstaklega er hugsað um að börn, ellilífeyris- þegar og öryrkjar þurfi ekki að greiða háar fjárhæðir fyrir þjálf- un, óháð sjúkdómsgreiningu. Greiðsluþátttaka sjúkra- trygginga í sjúkraþjálfun og tal- þjálfun hefur hingað til farið eft- ir sjúkdómsgreiningu. Reglur um greiðsluþátttöku TR vegna þjálfunar hafa verið breytilegar eftir því hvort um sjúkra-, iðju- eða talþjálfun er að ræða og í litlu samræmi við greiðslur sjúkratrygginga fyrir aðra sjúk- dómsmeðferð. Sá sem hefur ill- víga liðagigt hefur til dæmis ekki þurft að greiða neitt fyrir sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun, en þurft að greiða hluta kostnaðar við læknisþjónustu (hvort held- ur er hjá heimilislækni eða sér- fræðingi), blóð- og röntgen- rannsóknir og lyfjameðferð (en hefur þar greitt minna en ella ef hann er öryrki eða ellilífeyris- þegi). Nýju reglurnar eru sem hér segir: Börn og unglingar yngri en 16 ára, ellilífeyrisþegar og örorku- lífeyrisþegar greiða á stofu þjálfara 25% þjálfunarkostnað- arins fyrir fyrstu 15 skiptin á al- manaksári. Ef þjálfunarskipti eru á einu almanaksári fleiri en 15 greiðir TR þjálfunina að fullu út almanaksárið (staðfest með útgáfu skírteinis, sem sækja þarf um). Hér er miðað við saman- lagðan skiptafjölda á almanaks- ári í sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun. Aðrir greiða á stofu þjálfara 50% þjálfunarkostnaðarins fyrir fyrstu 24 skiptin á alman- aksári, en eftir það 25% kostn- aðarins út almanaksárið. Miðað er við samanlagðan skiptafjölda á almanaksári í sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun. Greiðsluþátttaka í heima- sjúkraþjálfun: Sjúklingur greið- ir sama gjald og vegna sjúkra- þjálfunar á stofu, en sækja þarf fyrirfram um heimild til heima- þjálfunar hjá TR. Forsenda þess að samþykkt sé greiðsla sjúkra- þjálfunar í heimahúsi er að sjúk- dómsástand eða fötlun umsækj- anda sé þess eðlis að hann sé lítt ferðafær og að aðstæður hans séu að öðru leyti þannig að hon- um sé ókleift að komast á stofu til sjúkraþjálfara. Ef óskað er eftir greiðslu TR fyrir sjúkra- þjálfun í heimahúsi þarf því læknir eða sjúkraþjálfari að gefa upplýsingar um aðstæður heima hjá umsækjanda (til dæmis á hvaða hæð hann býr og hvort lyfta er í húsinu) og hvað komi í veg fyrir að hann geti ferðast á milli heimilis og þjálfunarstaðar (til dæmis með ferðaþjónustu fatlaðra). Tryggingayfirlækni er heimilt að falla frá greiðsluþátt- töku sjúklings í heimasjúkra- þjálfun ef um mjög alvarlegt sjúkdómsástand (til dæmis krabbamein eða sjúkdóm Park- insons á lokastigi) eða mjög al- varlega fötlun er að ræða. Reglur um endurgreiðslu á umtalsverðum útgjöldum sjúkratryggðra: Fyrirhugað er að Heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytið breyti reglum um endurgreiðslu á umtalsverð- um útgjöldum sjúkratryggðra vegna læknishjálpar og lyfja, á þann veg að þær nái einnig til kostnaðar við þjálfun (sjúkra- þjálfun, iðjuþjálfun og talþjálf- un). Með því móti er hægt að koma til móts við þá sem hafa mjög lágar tekjur og þurfa mikla þjálfun. Auk þess geta tekjulág- ir Iífeyrisþegar sótt um uppbót á lífeyri sinn vegna sjúkrakostn- aðar vegna kostnaðar við þjálf- un. Bráðabirgðaákvæði: Par sem nýju reglurnar gilda aðeins fjóra mánuði á árinu 1997 verður miðað við að börn, ellilífeyris- þegar og örorkulífeyrisþegar greiði 25% af kostnaði við þjálf- un fyrir fyrstu fimm skiptin og síðan greiði TR þjálfunina að fullu út almanaksárið og að aðr- ir greiði fyrstu átta skiptin 50% þjálfunarkostnaðarins, en eftir það 25% kostnaðarins út alm- anaksárið. Pjálfun vegna afleiðinga slysa sem bótaskyld eru hjá TR verð- ur sem fyrr greidd að fullu.)

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.