Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.07.1997, Page 67

Læknablaðið - 15.07.1997, Page 67
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 531 áherslu á jafnan rétt einstak- linga til meðferðar. Þessi við- horf koma heim og saman við að þar er heilbrigðisþjónustan aðallega rekin á kostnað samfé- lagsins. Aðrar þjóðir aðhyllast frekar að hlutur „samfélagsins“ vegi þyngst í forgangsröðuninni og geti haft forgang fram yfir læknisfræðilegar þarfir veik- burða einstaklinga. Ef slíkt við- horf réði er hætt við því að heil- brigðisstarfsfólk hér á landi kæmist í siðferðilegan vanda. 777 dœmis yrði lceknaeiðurinn rofinn að verulegu leyti og enn- fremur núgildandi lög nr. 971 1990 um heilbrigðisþjónustu um jafnt aðgengi fólks til heilbrigð- isþjónustunnar. I lögum um réttindi sjúklinga er samþykkt voru á Alþingi 1997 stendur skýrt í gr. 11. Ef nauðsynlegt reynist að forgangsraða sjúk- lingum vegna meðferðar skal fyrst og fremst byggt á lœknis- frœðilegum sjónarmiðum. Ef breyta á fyrirkomulaginu verð- ur að breyta lögum. Osveigjan- legar reglur um forgangsröðun eru ekki raunhæf lausn því að læknisfræðin er í stöðugri fram- för. Erfitt er því að setja ósveigj- anlegar reglur um forgangsröð- un í heilbrigðisþjónustunni og seint verða menn sammála um alþjóðlegar reglur í því efni. Að baki þeirrar óeiningar liggja ólíkir menningarstraumar og siðferðileg viðhorf. A Vestur- löndum virðist jafnvel ríkja nokkur tvöfeldni í þessu efni ef litið er til ákalls margra stjórn- enda og stjórnmálamanna um markaðslausnir á vanda heil- brigðisþjónustunnar. Harður markaðsrekstur getur aldrei samrýmst samfélagslegum við- horfum um jafnt aðgengi ein- staklinga til heilbrigðisþjónustu og verulegur hluti fólks hefur ekki efni á að sækja einkarekna þjónustu. Norræn viðhorf í þessu máli, sem að nokkru leyti eru studd skoðun Hollendinga, virðast mér affarasælust. Megininntak forgangsröðunar verður því að forgangsraða eftir læknisfræði- legum sjónarmiðum en þar eru eftirfarandi sjónarmið í forsæti: - þörf einstaklingsins fyrir meðferð, - virðing fyrir manngildi, - samábyrgð. Það álit ýmissa að kostnaður vegna heilbrigðisþjónustu muni aukast á næstu árum virðist ekki á rökum reist. Að áliti Alþjóða- heilbrigðisstofnunarinnar og bandarískra og enskra heil- brigðisyfirvalda er allt útlit fyrir að svo muni ekki verða og jafn- vel muni kostnaður lækka með- al annars vegna minnkandi legukostnaðar, þó að kostnaður við sumar hátækniaðgerðir muni aukast. Svo virðist sem þessi þróun sé hafin á íslandi ef miðað er við kostnaðartölur síð- ustu ára. Megininntak forgangsröðun- ar í framtíðinni verður því óbreytt að mestu en þó með nokkrum áherslubreytingum. Viðhalda skal: - jöfnu aðgengi allra til heil- brigðisþjónustu, samanber lög um heilbrigðisþjónustu nr. 97/ 1990, - þeirri venju að læknisfræði- leg sjónarmið ráði mestu um meðferð sjúklinga og að alvar- leiki sjúkdóms ráði þar mestu, samanber lög um réttindi sjúk- linga 1997, - samábyrgð með þeim sem veikastir eru, - áherslu á heilsuvernd. sér- staklega tóbaksvarnir, - áherslu á heilsugæslu, - uppbyggingu dagdeilda og utanspítalaþjónustu þar sem til dæmis flestar skurðaðgerðir verða „dagsverk". Draga skal úr byggingu legudeilda. Áhersla skal lögð á að: - ná samkomulagi um áhrifa- mestu og jafnframt hagsýnustu meðferðina hverjusinni. Skarp- ari skil milli meðferðarleiða og skipulags. Dýrar og árangurs- litlar aðferðir verði ekki greidd- ar af almannafé. Árangur með- ferðar metinn með tilliti til „skynsamlegs" kostnaðar, - efla göngu- og dagdeildir sem mest og draga úr legu- deildabyggingum, - byggja sjúkrahótel og sjúkramótel, - efla fjarlækningar og nú- tímaleg tölvu- og sjónvarpssam- skipti við minni sjúkrahús á landsbyggðinni svo að unnt sé að sinna gæðarannsóknum og minniháttar aðgerðum þar, - bæta hagkvæmni í lyfjagjöf- um. Seint verður við því brugð- ist ef svo heldur sem horfir, að lyfjafyrirtæki séu aðal miðlarar til lækna um ágæti lyfja! - efla forvarnir, - bæta aðgengi sjúklinga með hjarta-, æða-, lið- og þvagfæra- sjúkdóma, - hefja rekstur geðsjúkra- heimila í formi sambýla í þétt- býli til þess að sinna fólki með langvinna geðsjúkdóma sem annars er endurinnlagt í fjöl- mörg skipti á dýr bráðageð- sjúkrahús vegna lélegs aðbún- aðar og eftirlits eftir útskrift, - setja reglur um þriggja til sex mánaða biðtíma og bókanir eftir aðgerðum. Brýnt er að fresta öllum ónauðsynlegum byggingar- framkvæmdum og verja því sem þar sparast til að efla þjónustu. Nefnd ráðherra mun ljúka starfi á næsta hausti. Skýrt skal tekið fram að hér eru birtar skoðanir höfundar.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.