Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.1997, Síða 60

Læknablaðið - 15.09.1997, Síða 60
596 LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 óumbreytanlegt að ákveðið launahlutfall skuli ríkja hér- lendis en staðreyndin er hins vegar sú að læknar hafa dregist mjög aftur úr og þurfa leiðrétt- ingu og því verulega hækkun á grunnkaupi sínu.“ Ingunn segir að auk mikillar þreytu sem gæti meðal lækna og óánægju með kjör sé ekki síður óánægja meðal þeirra með starfsaðstöðu og síaukið vinnu- álag. „Sú þreyta og óánægja er sýnu alvarlegri nú en verið hef- ur þar sem alþjóðlegur vinnu- markaður lækna er mun opnari nú og læknar geta auðveldlega haldið til starfa erlendis og er raunar sóst eftir læknum héðan. Það gildir helst um Norðurlönd- in og ungir læknar sem eru að ljúka sérnámi eru ekkert að flýta sér heim þegar þeir frétta hvaða kjör og aðstaða er í boði. Pess vegna er núna mun meiri hætta á að læknar hér yfirgefi stöður sínar og fari þangað sem betri kjör bjóðast - og ekki síst betri vinnuaðstæður." Þetta á til dæmis við um rönt- genlækna Landspítalans en eins og kunnugt er hafa þeir sagt upp störfum sínum og hætta hver af öðrum á næstu mánuðum. Einn úr hópnum hefur ákveðið að taka við starfi erlendis og annar færir sig yfir á Sjúkrahús Reykjavíkur þar sem betri kjör bjóðast þar sem röntgenlæknar hafa náð samningum um að fá að vinna ferliverk á spítalanum og fá ákveðna hlutdeild í tekjum vegna þeirra. Á slíkum samn- ingi hefur yfirstjórn Landspítal- ans ekki ljáð máls. Mönnum líst ekki á kjörin Einar Jónmundsson, einn röntgenlækna Landspítalans, segir menn hafa misst þolin- mæðina og séu orðnir lang- þreyttir á miklu vinnuálagi og samanburður við kjör á Sjúkra- húsi Reykjavíkur sé röntgen- læknum Landspítalans verulega óhagstæður. Erfitt hafi verið að fá nýja lækna til starfa, meðal annars til að gegna starfi pró- fessors og yfirlæknis deildarinn- ar, mönnum lítist ekki á kjörin. Stjórn spítalans hafi gert sér ljóst að leita verði leiða til að bæta kjörin svo slíkur maður fá- ist til starfa en þá verði jafn- framt að bæta kjör annarra lækna á deildinni. Hann segir vinnuna á deildinni hafa þyngst mjög á seinni árum, meðal ann- ars með nýjungum og fjölbreytt- ari rannsóknum sem teknar hafi verið upp. Ingunn Vilhjálmsdóttir segir að uppsagnir röntgenlæknanna séu verulegt áhyggjuefni en af- staða þeirra sé skiljanleg, þeir hafi hreinlega fengið sig full- sadda af ástandinu og muni leita annað. „Við finnum þennan óróa í öðrum hópum lækna líka og alls staðar kraumar óánægjan. Læknar eru ábyrg stétt og þeir fara ekki í verkfall í venjulegum skilningi og þeim er skylt að halda uppi lágmarks neyðar- þjónustu. Verkfall í einhverri mynd er þó einn kosturinn í þessu áróðursstríði sem við stöndum í og við getum einnig gripið til ýmissa aðgerða til að knýja á um bætt kjör og munum gera það,“ segir Ingunn en á næstunni er fyrirhugaður al- mennur fundur meðal lækna um stöðuna í kjaramálum og hver ættu að vera næstu skref. Á Sjúkrahúsi Reykjavíkur hefur starfað skipulagsnefnd sem kannað hefur starfsaðstöðu lækna> en Halldór Kolbeinsson segir að líkt og á Landspítalan- um hafi gætt vaxandi óánægju meðal lækna með hana. „Dæmi eru um að þrír til fjórir sérfræð- ingar deili með sér skrifstofu- herberginu og hafa allir sér- fræðingarnir þá ekki aðgang að tölvum og eru menn því orðnir þreyttir á aðstöðuleysinu. Við vonumst þó til að geta náð fram umbótum eftir að könnun skipulagsnefndarinnar liggur fyrir, þá ætti að vera ljóst hversu erfið öll starfsaðstaða lækna á Sjúkrahúsi Reykjavíkur er.“ Hópar segja upp TR samningi Rúmlega 50 læknar hafa sagt sig frá samningi Trygginga- stofnunar ríkisins og eru það til dæmis 15 háls-, nef- og eyrna- læknar, 17 bæklunarskurðlækn- ar og nokkrir þvagfæraskurð- læknar og almennir skurðlækn- ar. Hluti hópsins, þvagfæra- skurðlæknar, var laus undan samningnum nú 1. september en hinir frá 1. október. Kristján Guðmundsson HNE-sérfræð- ingur er einn þeirra og segir þessar uppsagnir meðal annars til komnar vegna óánægju með viðskiptin við Tryggingastofnun ríkisins. „Læknar eru einfaldlega orðnir þreyttir á því að hafa ekki fengið neina hækkun á samningi frá 1991 og það eina sem breyst hefur er að TR krefst afslátta og skerðinga sem við verðum að taka á okkur. Á síð- ustu árum hafa orðið miklar breytingar á rekstri læknastof- anna og ekki síst hjá þeim hóp- um sem sagt hafa upp þar sem framfarir krefjast nýrra tækja og fjárfestinga. Við erum til dæmis að taka inn tæki vegna speglana og verðum að fjármagna þau kaup með núverandi samningi sem þýðir að nettólaunin lækka að sama skapi. Tryggingastofn- un er tilbúin að semja um þátt- töku í þessum kostnaði en segir að þá komi til skerðing á öðrum liðum, það yrði aðeins tilflutn- ingur og það dugar ekki fyrir okkur.“ Læknarnir eru margir á því að breyta þurfi þeirri grunnhug- mynd að þeir sem leita þurfi læknis einu sinni til tvisvar á ári
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.