Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.01.1998, Side 42

Læknablaðið - 15.01.1998, Side 42
40 14. Gitter MJ, Jaeger TM, Petterson TM, Gersh BJ, Silver- stein MD. Bleeding and thromboembolism during anti- coagulant therapy: a population-based study in Roch- ester, Minnesota. Mayo Clin Proceed 1995; 70: 725-33. 15. Petersen P, Boysen G, Godtfredsen J, Andersen ED, Andersen B. Placebo-controlled, randomised trial of warfarin and aspirin for prevention of thromboembolic complications in chronic atrial fibrillation. Lancet 1989; I: 175-82. 16. The Boston Area Anticoagulation Trial for atrial fibril- lation investigators. N Eng J Med 1990; 323: 1505-11. 17. Landefeld CS, Beyth RJ. Anticoagulant related bleed- ing: clinical epidemiology, prediction, and prevention. Am J Med 1993; 95: 315-27. 18. Karlsson F, Sverrisson JÞ, Guðbrandsson P. Langtíma- meðferð með blóðþynnandi lyfjum á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri 1981-1987. Læknablaðið 1990; 76: 107-10. Nuvelle (Schering) TÖFLUR; G 03 F B 01 R, E Hver pakkning inniheldur 16 hvítar og 12 bleikar töflur. Hver hvít tafla inniheldur: Estradiolum INN, valerat, 2 mg. Hver bleik tafla inniheldur: Estradiolum INN, valerat, 2 mg, Levonorgestrelum INN 75 mícróg. Eiginleikar: Nuvelle inniheldur estradíól valerat (valerinsýru ester af náttúrulega estrógen kvenhormóninu, estradíól) og samtengt prógestogen, levónorgestrel. Estradíól valerat bætir upp minnkaða estrógenframleiðslu í líkamanum við tíðahvöri. Levónorgestrel viðbót á síðari hluta hvers tímabils viðheldur reglulegum tíðahring og vinnur gegn ofvexti í leg- slímhúð. Estradíól valerat og levónorgestrel frásogast vel frá meltingarvegi og koma fram í blóði innan 15 mín. Við frásog og fyrstu umferð um lifur klofnar estradíól valerat í estradíól og valerin sýru. Á sama tíma umbrotnar estradíól áfram og er virkasta umbrotsefnið estrón. Próteinbinding estradíóls er 97%. Estradíól valerat er ekki útskilið á óbreyttu formi um- brotsefni estradíóls eru skilin út í þvagi og galli. Levónorgestrel er útskilið sem óvirk umbrotsefni í þvagi og saur. Ábendingar: Uppbótarmeðferð við einkennum estrógen- skorts við tíðahvörf. Til varnar beinþynningu hjá konum með aukna áhættu á beinþynningu (þ.e. eftir brottnám eggja- stokka, snemmbær tíðahvörf, ættgeng tilhneiging til bein- þynningar, skert hreyfigeta og langvinn meðferð með ster- um og konur undir kjörþyngd). Nuvelle dugir ekki sem getn- aðarvörn. Frábendingar: Þungun, truflun á lifrarstarfsemi, gula eða þrálátur kláði á fyrri meðgöngu, Dubin-Johnsons heilkenni, Rotor heilkenni, segabláæðabólga eða blóðsegamyndun eða saga um það, sigðfrumublóðleysi, grunur um hormóna- tengda sjúkdóma eða æxli í legi og brjóstum, ógreind óreglu- leg blæðing frá legi, truflun á blóðfituefnaskiptum, saga um meðgöngubólu (herpes gestationis), otosclerosis sem hefur versnað við fyrri meðgöngu, endometriosis, alvarleg sykur- sýki með æðabreytingum, brjóstakvilli (mastopathy). Meðganga og brjóstagjöf: Lyfið á hvorki að nota á með- göngutíma né af konum með barn á brjósti. Aukaverkanir: Langvarandi einhliða meðferð með estró- genum getur hugsanlega aukið líkur á illkynja æxlum í leg- bolsslímhúð og brjóstum, en sú hætta minnkar við notkun estrógen-gestagen blöndu, sem líkir eftir hormónaferli tíða- hringsins. Fyrstu mánuði meðferðarinnar getur borið á milliblæðingum og spennu í brjóstum. Petta eru venjulega tímabundin ein- kenni og hverfa við áframhaldandi meðferð. Algengar (>1%): Brjóstaspenna, höfuðverkur, blæðinga- truflanir. Sjaldgæfar (0,1-1%): Bjúgur, vökvasöfnun, uppþemba og aukin matarlyst. önnur einkenni sem geta komið fram eru: kvíði, hjartsláttar- ónot, depurð, svimi, meltingatruflanir, verkir í fótum, breyting- ar á kynhvöt, ógleði, útbrot, uppköst, þyngdarbreyting. Milliverkanir: Hætta skal notkun á hormónagetnaðar- vörnum þegar meðferð hefst með Nuvelle og nota getnaðar- varnir sem ekki innihalda hormón. Lyf sem virkja lifrarenzým, t.d. barbitúröt, flogaveikilyf og rífampicín, geta dregið úr verk- unum lyfsins. Varúð: Hætta skal töku lyfsins þegar í stað ef grunur er um þungun, ef mígreni eða slæm höfuðverkjarköst byrja eða versna við töku, ef slys, sjúkdómur eða ráðgerð skurðaðgerð eru talin geta aukið hættu á segamyndun, við gulu, lifrabólgu, versnun á flogaveiki og við verulega hækkun á blóðþrýstingi, við merki um blóðtappa, bláæðabólgu eða segarek. Fyrir- liggjandi sléttvöðvahnútar í legi geta stækkað vegna áhrifa frá estrógenum. Ef þetta kemur í Ijós á að hætta meðferð. Hjá sjúklingum með vægan langvinnan lifrarsjúkdóm á að fylgjast með lifrarstarfsemi á 8-12 vikna fresti. Endurtekin milliblæðing á meðan á meðferð stendur kallar á athugun á legslímu og jafnvel töku vefjasýnis. örsjaldan hafa komið fram góðkynja og enn sjaldnar illkynja æxli í lifur við notkun hormónalyfja af svipuðu tagi og Nuvelle. Af þessum sökum skal hafa lifraræxli í huga við greiningu ef kviðverkir, stækkuð lifur eða merki um blæðingar í kviðaholi koma fyrir. Athugið: Lyfið skal einungis gefið eftir nákvæma almenna læknisskoðun og kvenskoðun. Slíka skoðun á að endurtaka a.m.k. einu sinni á ári við langtímameðferð, en að auki í hvert sinn sem ber á truflunum á blæðingum. Áður en meðferð hefst þarf að útiloka að þungun sé til staðar. Skammtastærðir handa fullorðnum: 1 tafla daglega. Meðferð hefst á 5. degi tíða eða á hvaða degi sem er eftir tíðahvörf. Fyrstu 16 dagana eru hvítu töflurnar teknar og síðari 12 dagana bleiku töflurnar. Blæðing, lík tíðum, kemur 2-3 dögum eftir að byrjað hefur verið á nýrri pakkningu. Ekki er gert hlé á milli pakkninga. Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum. Pakkningar: 28 stk. (þynnupakkað) x 1; 28 stk. (þynnupakkað) x 3. Thorarensen lyf Vatnagarðar 18 • 104 Reykjavík • Sími 568 6044 \

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.