Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1999, Síða 35

Læknablaðið - 15.04.1999, Síða 35
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 309 Niðurstöður: Á tímabilinu 1974-1985 varð engin breyting á tíðni hálshnykks í umferðar- slysum hjá körlum (1,2/1.000) en hækkun hjá konum á fyrstu tveimur árunum úr 1,54/1.000 í 2,16/1.000 á árunum 1984-1985. Tíðni háls- hnykkja náði hámarki árið 1991 og var 6,43 hjá körlum en 8,64 hjá konum. Tíðnin lækkaði í 5,09/1.000 árin 1992-1996 hjá körlum. Tíðnin lækkaði í 6,68 hjá konum 1993 en hækkaði aft- ur og náði aftur 8,64 á 1.000 konur árið 1996. Skipting milli kynja helst að mestu óbreytt, það er 40% karlar og 60% konur. Á þessu tímabili hefur ekki orðið sambærileg aukning á tíðni umferðarslysa. Hlutfall aukningar aldursstaðl- aðrar tíðni var 11,5/1.000 á aldrinum 15 til 19 ára hjá körlum og 7,38/1.000 hjá konum. Háls- hnykkur vegna annarra slysa en umferðarslysa í Reykjavík jókst 2,3 falt fyrir karla úr 0,83/ 1.000 frá 1975-1978 í 1,9/1.000 1992-1996. Aukningin fyrir konur var 3,6 föld frá úr 0,6/ 1.000 í 2,19/1.000. Ályktanir: Tíðni hálshnykks hjá konum og körlum vegna umferðarslysa jókst aðallega frá 1985 til 1991. Tíðnin hefur lækkað ívið hjá körl- um á síðustu árum en hjá konum lækkaði tíðnin aðeins frá 1991 til 1993 en náði aftur fyrra hámarki árið 1996. Tíðni umferðaróhappa hefur ekki aukist á sambærilegan hátt á sama tímabili. Það hefur orðið aukning á tíðni hálshnykkja vegna annarra orsaka en umferðarslysa. Ekki er ljóst hvað hefur orsakað jafnmikla aukningu á hálshnykkjum og raun ber vitni. E-10. Nýir möguleikar í meðferð lærbeins- brota við skaftenda gerviliða í mjöðm Ríkarður Sigfússon, Halldór Jónsson jr. Frá bœklunarskurðdeild Landspítalans Inngangur: Brot á lærlegg við gervilið í mjöðm eru erfið viðureignar, sérstaklega stuttu eftir ísetningu gerviliðarins. Meðferðarmögu- leikar hafa verið að setja inn nýtt langt skaft sem brúar brotið gegnum mergholið eða utaná- liggjandi plata/plötur með vírum og skrúfum. Að skipta út skaftinu er mjög stór, erfið og tímafrek aðgerð, bæði fyrir sjúkling og skurð- lækni. Að setja brotaplötu með skrúfum gegn- um lærbeinið er tæknilega erfitt þar sem merg- holið er fullt af málmi og steypu. Brotaplötur og stálvír hafa auk þess veruleg áhrif á blóð- flæði í beinhimnu og bein og hægja á gróanda í brotinu. Af þessum sökum var tekin í notkun nýr festibúnaður. Þetta er hvelfd stálplata með griplum frá hliðunum, kölluð Mennen® plata, sem gefur góðan styrk og örugga festingu án þess að þurfa að hreyfa við gerviliðnum. Efniviður og aðferðir: Á tveggja ára tíma- bili hafa átta sjúklingar (ein kona og sjö karlar, aldur 55-80 ára) verið meðhöndlaðir. Tíma- lengd frá ísetningu gerviliðar var frá fjórum vikum til sex ára. Bæði var um hálf- og heilliði að ræða, en allir voru steyptir í legginn. Með sjúkling í hliðarlegu var opnað inn á brotið með skurði á utanvert læri í framhaldi af fyrri mjaðmarskurði. Við fleygbrot voru fyrst settir einn til tveir stálvírar. Notuð var ein stærð af plötu (sú stærsta). Platan var fest með því að þrýsta griplunum inn að og í beinið með sér- stakri töng. Eftir aðgerð var notuð plastspelka í sex vikur. Strax var leyft að tylla í fótinn. Hefð- bundin sýklalyf voru gefin. Niðurstöður: Aðgerðartími var undir einni klukkustund og blæðing undir hálfum lítra. Vel gekk að fá sjúklinga aftur á fætur. Einn dó strax í kjölfar aðgerðar af ástæðu óháðri inngripinu. Enginn sýktist. Sex sjúklingar eru sannanlega grónir. Ályktanir: Mennen® platan hefur reynst vel og er stórt framfaraskref við festingar á lær- beinsbroti kringum skaftenda gerviliða í mjöðm. Sérstaklega minnkar hún álag á sjúkling og skurðlækni með styttum aðgerðartíma og óverulegri blæðingu. E-ll. Nýgengi bátsbeinsbrota í Malmö. Samanburður á tíðnitölum milli sjötta og tíunda áratugarins Brynjólfur Y. Jónsson', Henrik Diippe2, Inga Redlund-.lolinell3, Olof Johnell2 Frá ‘handlœkningadeild Sjúkrahúss Akraness, 2bœklunarlœkningadeild og 3röntgendeild há- skólasjúkrahússins í Malmö Inngangur: Nýgengi beinbrota hefur breyst talsvert á öldinni. Þetta á helst við um svoköll- uð gisnunarbrot, eins og mjaðmar- og úlnliðs- brot. Tilgangur þessarar athugunar var að kanna nýgengi bátsbeinsbrota. Efniviður og aðferðir: Allar röngenmyndir og -lýsingar hafa verið geymdar á röntgendeild sjúkrahússins í Malmö frá byrjun aldarinnar. Allar myndir sem teknar voru af úlnliðssvæði voru skoðaðar aftur af sama aðila og fersk brot á bátsbeini voru skráð fyrir tímabilin 1953- 1957 og 1991-1992. Niðurstöður: Á árabilinu 1953-1957 fundust 150 brot, en 134 á árunum 1991-1992. Brot voru þrisvar sinnum algengari í körlum miðað
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.