Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1999, Síða 59

Læknablaðið - 15.04.1999, Síða 59
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 331 un ógleðistillandi lyfja. Á síðustu þremur árum hefur svæðisbundin þriggja lyfja utanbasts- meðferð (búpívakaín 0,1 mg/ml, fentanýl 2 pg/ml, adrenalín 2 ug/ml) verið beitt til verkja- stillingar stæm aðgerða á handlækningadeild Landspítalans og hefur ógleðitíðni við þá með- ferð verið könnuð. Efniviður og aðferðir: Könnuð var ógleði hjá 1.033 sjúklingum. Árangur verkjameðferðar var skráður nákvæmlega á eftirlitsblað á fjögurra klukkustunda fresti. Einnig voru skráð lífsmörk sjúklings, magn lyfs gefið á tímaeiningu auk fylgikvilla eins og skerðingar á hreyfigetu, kláða og ógleði. Ogleðitíðni var metin sem væg eða slæm (uppköst, meðferðarþörf). Hún var metin með tilliti til aðgerða, kyns, verkja og verkjalyfja- þarfar. Ogleði á aðgerðardegi og fyrsta degi eftir aðgerð var borin saman við ógleði á öðrum að- gerðardegi eða síðar. Niðurstöður: Slæm ógleði reyndist vera hjá 14,3% á fyrsta degi og 8,3% á öðrum degi. Mun fleiri konur en karlar voru haldnar slæmri ógleði bæði á fyrsta og öðrum degi eða 18,6% á móti 10,1% og 10,2% á móti 6,9%. Þegar lit- ið var á kviðaholsaðgerðir miðað við aðrar að- gerðir var ógleðitíðnin mun hærri í fyrri flokkn- um, eða 20,2% á móti 9,9% á fyrsta degi og 13,8% á móti 3,7% á öðrum degi. Hjá sjúkling- um með eða án verkja, Visual Analog Scale (VAS) >3 á móti <3, reyndist ógleði svipuð á fyrsta degi, eða um 14%, en mun hærri á öðrum degi ef VAS var >3, eða 18,9% á móti 7,8%. Þegar litið er á verkjalyfjaþörf á öðrum degi, minnkar ógleðin við minni skammt við kviðar- holsaðgerðir en er óháð skammti við bæklunar- aðgerðir. Ályktanir: Ogleði eftir aðgerðir tengist kyni sjúklings og aðgerð. Einnig virðist vera tengsl milli verkja og ógleði og verkjalyfjagjafar og ógleði. S-3. Tengsl þriggja lyfja utanbastsverkja- meðferðar og kláðatíðni við stærri aðgerð- ir á handlæknadeildunt Landspítalans Sólveig Hafsteinsdóttir, Gísli Vigfússon, Odd- ur Fjalldal, Ástríður Jóhannesdóttir, Jón Sig- urðsson Frá svœfingadeild Landspítalans Inngangur: Notkun ópíata við utan- og inn- anbastsdeyfingar hefur aukist mjög á undan- förnum áratugi. Upp úr 1970 jókst skilningur manna á verkun ópíata og tengslum þess við viðtæki í mið- taugakerfinu. Með því að koma lyfjunum sem næst viðtæki ífarandi verkjaboðs mátti minnka og fækka mjög skömmtum lyfjanna, auka verkjastillingu án þess að auka verulega fylgi- kvillatíðnina. Notuð hafa verið ýmist vatnsleys- anleg ópíöt eins og morfín eða fituleysanleg lyf eins og fentanýl. Vegna mismunandi lyfjafræði- legra eiginleika þessara lyfja er lyfjagjöf innan- og utanbasts, svæðisbundin staðsetning leggja og fylgikvillar með mismunandi hætti. Þannig eru fylgikvillar þriggja lyfja utanbastsmeðferð- ar taldir vera mun minni en morfíns. Á síðustu þremur árum hefur svæðisbundin þriggja lyfja utanbastsmeðferð (búpívakaín 0,1 mg/ml, fent- anýl 2 ug/ml, adrenalín 2 pg/ml) verið beitt til verkjastillingar við stærri aðgerðir á handlækn- ingadeild Landspítalans og hefur kláðatíðni við þá meðferð verið könnuð. Efniviður og aðferðir: Kannaður var kláði hjá 1.033 sjúklingum. Skráðir voru nákvæm- lega á eftirlitsblaði á fjögurra klukkustunda fresti fylgikvillar eins og kláði og ógleði. Kláðatíðni var metin sem væg eða slæm (með- ferðarþörf). Hún var metin með tilliti til aðgerða, kyns og verkjalyfjaþarfar. Kláði á aðgerðardegi og fyrsta degi eftir aðgerð var borinn saman við kláða á öðrum aðgerðardegi eða síðar. Niðurstöður: Vægur og slæmur kláði reyndist vera meiri á aðgerðardegi og fyrsta degi eftir aðgerð (19,9% á móti 4,3%) en á öðrum degi eða seinna (13,7% á móti 2,5%). Slæmur kláði reyndist meiri hjá körlum en kon- um á báðum viðmiðunartímum. Slæmur kláði var svipaður aðgerðardag og fyrsta dag eftir aðgerð við kviðarholsaðgerðir borið saman við aðrar aðgerðir (3,8% á móti 4,4%) en nokkru lægri við aðrar aðgerðir á öðrum degi (1,9% á móti 3,3%). Ályktanir: Vægur kláði er algengur eftir svæðisbundna þriggja lyfja utanbastsmeðferð. Hins vegar er slæmur kláði sjaldgæfur og auð- veldur í meðferð og sjaldan (0,5% tillfella) þarf að hætta meðferð hans vegna. S-4. Rétt staðsetning utanbastsleggjar við verkjasegment mænu er forsenda góðs árangurs við þriggja lyfja utanbasts- verkjameðferð. Mat á hreyfigetu og stað- setningu leggjar við stærri aðgerðir á handlækningadeildum Landspítalans Gísli Vigfússon, Oddur Fjalldal, Jón Sigurðs- son, Þorsteinn Sv. Stefánsson Frá svœfingadeild Landspítalans
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.