Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.1999, Page 66

Læknablaðið - 15.04.1999, Page 66
338 LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 Hlutfallsleg skipting milli þessara deilda hélst svipuð allt tímabilið, þó sést minnkandi hlutfall lyfjadeildarsjúklinga. Innlagnarástæðum var skipt niður í 22 flokka og þeir algengustu eru sjúkdómar í miðtaugakerfi, hjartasjúkdómar og eftir stórar skurðaðgerðir en tæplega 20% inn- lagna voru eftir slys. Aldursdreifing hélst svip- uð allt tímabilið og virðist ekki vera hlutfalls- leg fjölgun á eldri sjúklingum. Síðastliðin 28 ár hefur því innlögnum stöð- ugt farið fjölgandi en fjöldi sjúklinga á vökn- unardeild hefur haldist svipaður. Mikil aukning hefur orðið í hlutfalli þeirra sem þurfa öndun- arvélarmeðferð en það bendir til vaxandi fjölda mikið veikra sjúklinga. Þrátt fyrir það hefur orðið marktæk lækkun í dánarhlutfalli og nteð- allegutími hefur styst. Framfarir í læknavísind- um virðast því nokkuð greinilega vera að skila sér í skilvirkari meðferð og bættum horfum. S-17. Nýgengi og þriggja mánaða dánar- tala sjúklinga með ARDS Aðalbjörn Þorsteinsson', Ivar Gunnarsson', Kristinn Sigvaldason2, Páll Hallgrímsson2, Girisli Hirlekar3 Frá svœfinga- og gjörgæsludeildum ‘Landspít- alans, 2Sjúkrahúss Reykjavíkur og 3Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri Nýgengi og 90 daga dánartala sjúklinga með bráða lungnabilun og alvarlegra form hennar (acute lung injury og acute lung distress syn- drome) var kannað hérlendis á átta vikna tíma- bili (frá 6. október til 30 nóvember 1997). Rannsóknin var hluti af samnorrænni rann- sókn. Allar gjörgæsludeildir landsins tóku þátt í rannsókninni. Könnunin náði til sjúklinga sem voru eldri en 15 ára. Skráðir voru þeir sjúklingar sem vegna öndunarbilunar þurfti að leggja í öndunarvél. Ekki voru teknir með sjúk- lingar sem vöknuðu í öndunarvél eftir aðgerðir, þar með taldar hjartaaðgerðir. Til að finna þá sem voru með bráða lungnabilun og ARDS (adult respiratory distress syndrome) var síðan stuðst við skilgreiningu American-European consensus conference on ARDS. A þessu tíma- bili voru 25 sjúklingar lagðir í öndunarvél vegna öndunarbilunar, af þeim voru átta með bráða lungnabilun og þar af fimm með alvar- legra form hennar ARDS. Samkvæmt þessu er algengi lungnabilunar 80,2, bráðrar lungnabil- unar 25,7 og ARDS 16,0, miðað við 100.000 íbúa og ár. Nítíu daga dánartala var hjá þeim sem eingöngu voru með öndunarbilun 29,4%, af þeim sem fengu bráða lungnabilun dóu 33,3% og 20,0% þeirra sem fengu ARDS létust. Ef litið er á fjölda gjörgæslusjúklinga (að- gerðarsjúklingar vistaðir til eftirlits ekki með- taldir) þá var fjöldi þeirra á þessu tímabili 182. Með öndunarbilun voru 13,7%, 4,4% voru með bráða lungnabilun og 2,7% með ARDS. S-18. Loftvegahindrun og alvarlegur súr- efnisskortur í kjölfar lungnaskurðað- gerðar. Sjúkratilfelli Katrín María Þormar, Gunnar Skúli Armanns- son, Kristinn B. Jóhannsson Frá svœfingadeild Landspítalans Inngangur: í sjúkratilfelli þessu er sagt frá ungri konu sem varð fyrir mjög alvarlegum súrefnisskorti í lungnaaðgerð vegna tilfærslu æxlis sem olli algerri lokun loftvega. Tilfelli: Um er að ræða 25 ára konu með endurteknar sýkingar í hægra lunga í tæp tvö ár. Lá sjúklingur endurtekið á sjúkrahúsunt vegna þessa. Að öðru leyti var sjúklingur frísk- ur og hafði aldrei reykt. Rannsóknir leiddu í ljós æxlisvöxt inn í hægri millilungnaberkju og nær algert samfall á mið- og neðri lappa hægra lunga. Sjúklingur fór í lungnaaðgerð, hann var svæfður og sett niður tvöföld vinstri barka- slanga. Hægra lunga fellt saman og fjarlægðir mið- og neðri lappi hægra megin. Þegar blása átti upp hægra lunga þandist það ekki vel út. Súrefnismettun var eðlileg fram að þessu. Speglað var niður í hægri berkju og sást þar fyrirferð. Reynt var ítrekað að fjarlægja þessa fyrirferð með sveigjanlegum berkjuspegli en tókst ekki. Sett var ný einföld barkaslanga til að auðvelda berkjuspeglun. Þá varð skyndilega erfitt að koma lofti í sjúkling, loftvegamótstaða jókst og mettun féll. Berkjuspeglun sýndi að massinn hafði flust yfir í vinstri berkju og lok- aði henni því næst alveg. Sjúklingur varð fyrir alvarlegum súrefnis- skorti og gerðar voru ráðstafanir til að tengja hann við hjarta- og lungnavél. Brjósthol var opnað um bringubein og vinstra lunga kreist og reynt að mjólka fyrirferð úr vinstra lunga. Við það tókst að blása í vinstra lunga og eftir það hélst betri mettun. Alvarlegur súrefnisskortur var í að minnsta kosti 10 mínútur. Þegar komið var á hjarta- og lungnavél var farið með stífan berkjuspegil niður í vinstri meginberkju og dregin þaðan upp fyrirferð, urn 2 cm að lengd. Eftir það gekk vel að blása lofti í bæði lungu og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.