Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1994, Page 41
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 25
37
HOLSJÁRSKURÐUR Á HRINGVÖÐVA VEGNA
ÞRENGSLA OG/EÐA SAMDRÁTTAR í
HRINGVÖÐVA Á BORGARSPÍTALA 1981-92.
Hannes Hrafnkelsson, Ásgeir Theodórs.
Lyflækningad. St Jósefsspítalans, Hafnarfirði og
Borgarspítalans. Heilsugæslustöðin á
Seltjamarnesi.
Á síðasta áratug hefur verið sýnt fram á mikilvægi
holsjárrannsóknar af gallvegum og brisi (HRGB =
ERCP) til greiningar og meðferðar á sjúkdómum í
gallvegum og brisi. Einn þeirra sjúkdóma er
þrengsli og/eða Samdráttur í Hringvöðva ( SíH =
sphincter of Oddi dysfunction).
Tilgangur þessarar rannsóknar var að athuga hve
margir sjúklingar höfðu gengist undir
holsjáraðgerð vegna SÍH á Borgarspítalanum á
árunum 1981-1992, hvemig sjúklingunum hefði
vegnað og hvaða aukaverkanimar hefðu komið
fram.
HRGB var framkvæmd á 477 sjúklingum árin
1981-90. Sjúkraskrár þeirra sjúklinga, sem höfðu
greininguna SÍH og gengust undir
hringvöðvaskurð vom athugaðar frekar. Haft var
samband við sjúklingana símleiðis og þeir spurðir
um einkenni eftir meðferðina. Þrjátíu og þrír
sjúklingar (6,9%) gengist undir hringvöðvaskurð
vegna SÍH, konur 31 og karlar 2. Meðaltími frá
því aðgerð var gerð þar til sjúklingur var spurður
var 5,6 ár og meðalaldur þeirra var 56,6 ár. Af 33
sjúklingum vom 6 látnir (meðalaldur 85,5 ár).
Ekki tókst að ná til þriggja sjúklinga og einn
treysti sér ekki til að svara vegna gleymni. Af þeim
24 sjúklingum (88%), sem tókst að spyija, hafa 17
(74%) orðið góðir eða betri, en 6 (22%) eins eða
verri. Um 74% sjúklinga, höfðu gengist undir
gallblöðmtöku áður en þeir fengu greininguna S(H
og 11 (44%) af þeim sem svömðu höfðu gengist
undir frekari meltingarfærarannsóknir eftir
holsjárskurð. Sex sjúklingar (18%) fengu
aukaverkanir af aðgerð. Engin alvarleg
aukaverkun átti sér stað. Einungis lítill hluti
sjúklinga 8 (18%) vom gmnaðir um SÍH áður en
þeir fóra 1HRGB.
Ályktanir: Niðurstöður sýna að árangur af
hringvöðvaskurði við SiH er all góður. Það ber að
hafa greininguna oftar f huga þvf lítill hluti
sjúklinga f rannsókninni var gmnaður um SfH fyrir
HRGB.
NOTKUN VIÐNÁMS FLATARMÁLSMÆLINGU Á
LÍFTÆKNILEGUM EIGINLEIKUM VÉLINDA -
IMPEDANCE PLANIMETRY.
Kiartan Örvar. St Jósefsspítala Hafnarfirði og
Sjúkrahúsi Akraness.
Viðnáms flatarmálsmæling - Impedance planimetry - er ný
rannsóknaraðferð sem notuð er til að skoða liftæknilega
(biomechanical) eiginleika i holliffæri Með þessari aðferð
er þverviddar-flatarmál (cross - sectional area) mælt
stöðugt og samhliða þvi er fýlgst með þrýstingi innan í
görninni (intraluminal pressure). Með þessum
upplýsingum er hægt að reikna út ýmsa líftæknilega
eiginleika í görn, svo sem vegg - hringferilþrýsting
(circumferential wall tension) og veggstífni (wall
stiffness). Þessir líftæknilegu eiginieikar endurspegla
annars vegar þan hæfíleika og hins vegar veggstifni i
görninni Það er nýlunda að hægt sé að mæla þetta í
lifandi likama (in vivo). Með þessari mæliaðferð voru
liftæknilegir eiginleikar vélinda í mönnum skoðaðir.
Sérstök slanga með blöðm var hönnuð svo hægt væri að
mæla stöðugt þverviddarflatarmálið og þrýsting.
Mælislöngunni var komið fyrir í vélinda í 13 heilbrigðum
sjálfboðaliðum, um það bil 30 cm frá tanngarði Við hvíld
\ar ekki mælanleg vöðvaspenna (tonus) i vélinda. Blaðra
á mælislöngunni var siðan i þrepum þanin út með vökva
upp að 40 cmHiO Stöðug mæling á þvervíddarflatarmáli
og þrýstingi inni i blöðrunni gaf möguleika a að reikna ut
þaneiginleika og vegg hringferilþrýsting. Þvervíddar-
tlatarmál vélindans jókst línulega með auknum
blöðruþrýstingi Blöðruútþenslan kom af stað
vöðvasamdrætti í vélindanu, bæði fýrir ofan blöðmna og á
blöðrustað Til þess þurfti blöðruþrýstingur að ná 15
cmHjO og þverviddarflatarmál fýrir þröskuld þessa
vöðvasamdráttar var 153 +/- 12 mm2. Vöðva-
samdráttarkrafiurinn var við upphaf vöðvasamdráttarins
15-20 cmH20 og fór upp í 47-50 cmH20 við 20-40
cntHiO blöðmþrýsting Veldisaukning (exponential) sást
á vegg hringferilþrýstingnum með hækkandi garna-
þrýsstingi Veggstifnin óx stöðugt, hratt við lægri blöðm-
þrýsting, (10-20 cmH20 en hægar við hærri blöðru-
þrýsting (25-40 cmH20).
Niðurstaða: Með notkun viðnámsflatarmálsmælingu má
finna út líftæknilega eiginleika í vélinda Með auknum
blöðmþrýstingi hækkar vegghringferilþrýstingur og
veggstifni og þverviddarflatarmálið eykst. Þegar
ákveðnum þröskuldi er náð byrjar vöðvasammdráttur
bæði týrir ofan blöðm og á blöðmstað.