Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1994, Side 61

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1994, Side 61
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 25 55 ILLKYNJA HÁÞRÝSTINGUR - FÁTÍÐUR EN HÆTTULEGUR KVILLI. GÓÐUR ÁRANGUR NÚTÍMALEGRAR HÁÞRÝSTINGSMEÐFERÐ- AR. Nanna Kristinsdóttir, Jón Þór Sverrisson og Þorkell Guðbrandsson. Lyflækningadeild Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri. Illkynja háþrýstingur er svæsnasta tegund háþrýstings og auk mikillar blóðþrýstingshækkunar einkennist þetta ástand af bráðum skemmdum í slagæðlingum. Greining fer frarn við augnbotnaskoðun, en þar sjást blæðingar og útferð/vilsa í augnbotnum ásamt bjúgmyndun í sjóntaugardoppu. Illkynja háþrýstingur er nú orðið fatíður, en þarfhast skjótrar greiningar og ákveðinnar meðferðar. Við viljum því hér lýsa þremur nýlegum tilfellum ffá Akureyri og árangri meðferðar. Um var að ræða þijár konur á aldrinum 34 til 47 ára. Blóðþrýstingur við komu mældist 260/170, 240/150 og 240/160 mm Hg. Einkenni voru höfuðverkur, ógleði, krampar og hjá einni konunni helflarlömun vegna heilablóðþurrðar. Nýmastarfsemi var vægt skert við komu hjá öllum þremur og veruleg vinstri slegilsstækkun var til staðar við ómskoðun og á venjulegu hjartalínuriti. Rannsóknir (m.a. nýmaslagæðamynd) leiddu ekki i ljós sérstakar orsakir E 79 háþrýstings. Meðferð var ýmist hafin með labetalol í æð eða um munn og fremur auðveldlega gekk að hemja háþrýstinginn. Langtímameðferð var gefin með 3-4 háþrýstingslyfjum og eftirathugun 1-6 ámm eftir hið illkynja sjúkdómsstig sýndi góða stýringu á blóðþrýstingi og enga versnun á nýmastarfsemi. Vinstri slegilsmassi hafði minnkað vemlega og jafhvel færst alveg í eðlilegt horf. Sjálfvirkar blóðþrýstings- mælingar sýndu eflirtalin meðalgildi (± staðalffávik) að degi til: 117±5.6/79±7.6, 156± 15.8/92± 10.2 og 141± 6.6/92±10.6. Skjót greining og nákvæm blóðþrýstings- lækkandi meðferð er mjög mikilvæg hjá sjúklingum með illkynja háþrýsting. Sjúklegar breytingar í marklíffærum geta gengið vemlega til baka eða jafnvel færst í eðlilegt horf við nútímalega lyfjameðferð. ÁHÆTTUÞÆTTIR HJARTA- OG ÆÐASJÚKDÓMA Á AKUREYRI OG í NÁGRANNABYÐGGUM. NIÐURSTÖÐUR RANNSÓKNAR HÆVAN OG HJARTAVERNDAR FRÁ 1971 - 1972. Þorkell Guðbrandsson, Jón Þór Sverrisson og Magna F. Bimir. Lyflækningadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Á árunum 1971 og 1972 var ffamkvæmd á Akureyri faraldsffæðileg rannsókn á vegum Hjarta- og æðavemdarfélags Akureyrar og nágrennis (HÆVAN) og Hjartavemdar. Rannsóknin var skipulögð með sama hætti og rannsókn Hjartavemdar í Reykjavík og víðar og áherzlur vom lagðar á áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma. Nýlega hefur farið ffam úrvinnsla á hluta af gögnum þessarar rannsóknar og grundvöllur lagður að ffekari eflirathugun m.t.t. afdrifa þeirra 2187 einstaklinga, sem tóku þátt í rannsókninni fýrir 22-23 ámm. Þátttökuhlutfall var tæplega 85%, en einstaklingar (1049 konur og 1138 karlar) fæddir á árunum 1911 til 1930 vom skoðaðir. I þessari athugun verða niðurstöður (meðalgildi ± staðalffávik) kynntar fýrir eftirtaldar breytur fýrir allan hópinn: Slagbilsþrýstingur 142.5 ± 20 mm Hg, hlébils- þrýstingur 87 ± 11 mm Hg, þyngdarstuðull (þyngd/hæð2) 0.260 ± 0.04, kólesteról 6.5 ± 1.2 mmol/1, þriglyceríðar 1.02 ± 0.54 mmol/1, fastandi blóðsykur 4.9 ± 0.82 mmoFl og þvagsýra 0.27 ± 0.06 mmol/1. Meðalgildi þeirra einstaklinga (n=719-942), sem vom í efsta þriðjungi (tertile) fýrir sömu breytur, vom sem hér segir: Slagbilsþrýstingur 164 ± 15, hlébilsþrýstingur 96.6 ± 8, þyngdarstuðull 0.304 ± 0.03, kólesteról 7.8 ± 0.8, þríglyceriðar 1.53 ± 0.61, fastandi blóðsykur 5.52 ± 1.13 og þvagsýra 0.34 ± 0.04. Ljóst er, að mikið farg áhættuþátta hefhr hvílt á mörgum úr þessu úrtaki íbúa svæðisins. Samsöfhun margra áhættuþátta hjá sama einstaklingi var algeng og verið er að kanna nánar sjúkdóma og dauðsfoll þeirra, sem höfðu áberandi samsöfeun áhættuþátta og samanburður gerður við hina, sem enga eða fáa áhættuþætti höfðu. L

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.