Læknablaðið : fylgirit - 01.07.1995, Page 37

Læknablaðið : fylgirit - 01.07.1995, Page 37
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 37 oftast á miðjum aldri og geta virst mjög vel á sig komnir, eru samt sem áður að rækta með sér kransæðasjúkdóm eða aðra æðakvilla. Pað er því ekki nægilegt að beina athyglinni eingöngu að blóðþrýstingshækkuninni og meðhöndla hana, heldur þarf að ráðast á alla áhættuþættina. Þessir einstaklingar þurfa einatt að breyta um lífsstíl, megrast um mörg kíló og hefja markvissa líkams- rækt, sem þarf að halda áfram árum saman. Stundum færist blóðþrýstingur í eðlilegt horf með breytingu á lífsvenjum svo sem fækkun auka- kílóa og markvissri líkamsrækt eins og að ofan getur. Sjálfsagt er að beita þessum aðferðum til lækkunar blóðþrýstings, en oftast þarf jafnframt þessu að gefa lyfjameðferð, sem halda þarf áfram árum saman. Blóðþrýstingur hækkar oftast aftur, ef lyfjameðferð er hætt vegna þess að í raun er ekki verið að meðhöndla orsök blóðþrýstings- hækkunarinnar heldur aðeins blóðþrýstings- hækkunina sjálfa. Orsökin er eins og að ofan greinir oftast óþekkt. Nútíma lyfjameðferð geng- ur yfirleitt vel og lyfin hafa nú orðið tiltölulega fáar aukaverkanir og vitað er að með skynsam- legri blóðþrýstingslækkun má koma í veg fyrir fylgikvilla háþrýstingsins. Að lokum skal það áréttað, að mikilvægt er að greina háþrýsting á vægu stigi. Rannsókn verður þá einföld og meðferð vænleg til árangurs. For- varnarstarf sem felst í blóðþrýstingsmælingum við sem flest tækifæri er mikilvægt og æskilegt er, að allir viti nokkurn veginn um blóðþrýstingsgildi sín. ir hafa ilott af Skyrýrá IŒA cr sannkallaá rárilicrntskyr <>!• f:vst nú í flcstum nuttvöniccrslunum. !>(«) cr ciiui skyrið sem er náttúrulcíid fitusnautt

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.